Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Lengjudeild karla
Dalvíkurvöllur
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
3 - 1
ÍBV
ÍBV
Abdeen Temitope Abdul 4'1 - 0Abdeen Temitope Abdul 15'2 - 02 - 122' Sverrir Páll Hjaltested (víti)Borja Lopez Laguna 70'3 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
Það er fagnað á Dallas!
Lengjudeildin. Þar sem er óvænt ef úrslitin eru ekki óvænt! Nýliðar Dalvíkur/Reynis sem spáð er neðsta sæti vinna ÍBV í fyrstu umferð.
92. mín
Jóhann Örn Sigurjónsson kemur inn af bekknum.
91. mín
Komið í uppbótartíma!
85. mín
Nikola Kristinn Stojanovic kemur inn af bekknum hjá Dalvík.
83. mín
Eyjamenn eru að sækja og vonast eftir því að grípa í líflínu.
ÍBV
74. mín
InnJón Ingason
ÚtSverrir Páll Hjaltested
ÍBV
74. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtRasmus Steenberg Christiansen
Dalvík/Reynir
70. mín
Heimamenn aftur komnir í tveggja marka forystu!

Borja Lopez Laguna

Hikst á útsendingunni og þetta sást ekki vel en Borja López fagnar!
68. mín
Víðir lætur sig falla í teignum en aldrei til í dæminu að þetta væri vítaspyrna.
67. mín
Abdeen Abdul í leit að þrennunni en skotið hans beint á Jón Kristin.
ÍBV
64. mín
Gult spjald

Eiður Atli Rúnarsson

63. mín
Sverrir Páll skallar yfir eftir fyrirgjöf.
57. mín
Víðir Þorvarðarson og Eiður Atli Rúnarsson komnir inn sem varamenn hjá ÍBV. Í þeim skrifuðu orðum fær Dalvík aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika.
54. mín
Naumlega framhjá
Sverrir tók aukaspyrnuna sjálfur og skaut naumlega framhjá. ÍBV að undirbúa tvöfalda skiptingu.
Dalvík/Reynir
53. mín
Gult spjald

Matheus Bissi Da Silva

Fyrir brot á Sverri Páli. ÍBV fær aukaspyrnu á vænlegum stað.
52. mín
ÍBV nálægt því að jafna
Vicente Valor með aukaspyrnu sem mér sýndist hafna í stönginni.
48. mín
Eins og sjá má er Dalvík glæsileg á þessum árstíma
Mynd: OZ
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
Fáum við enn ein óvæntu úrslitin í þessari deild eða nær ÍBV endurkomu? Spennandi seinni hálfleikur er farinn af gang og það var Vicente Valor sem sparkaði seinni hálfleik í gang.
Mynd: Raggi Óla
45. mín
Hver er Abdeen Abdul?
Abdeen Abdul skoraði bæði mörk heimamanna í fyrri hálfleik. Abdul er 29 ára gamall írskur sóknarmaður og hefur spilað víðsvegar um heiminn. Hann lék síðast með Penang í Malasíu. Þar á undan spilaði hann með KF Skënderbeu í Albaníu þar sem hann skoraði 14 mörk í 36 leikjum.
Mynd: Dalvík/Reynir
45. mín
Arnar Ingi flautar til hálfleiks
Tíðindamikill fyrri hálfleikur. Dalvík/Reynir leiðir eftir óskabyrjun á þessum leik. Við stefnum á að fylgjast grannt með gangi í seinni hálfleik ef útsendingin frá Dalvík leyfir!
43. mín
Byrjunarlið Dalvíkur 3-4-2-1
Lalic Rúnar - Zambrano - Bissi Gunnlaugur - Þröstur - Freyr - Guerrero Borja - Áki Abdul
40. mín
Byrjunarlið ÍBV 4-2-3-1
Jón Kristinn Guðjón Ernir - Nökkvi - Rasmus - Felix Valor - Tómas Bent Oliver - Bjarki - Alex Sverrir Páll
37. mín
Eyjamenn sótt talsvert síðustu mínútur. Tómas Bent með skot sem Lalic á ekki í miklum vandræðum með.
31. mín
Það er kuldalegt um að lítast á Dalvík og snjóþekjur í kringum völlinn en á bekknum er mönnum heitt í hamsi og Arnar Ingi dómari gaf gult á bekkinn hjá ÍBV áðan.
ÍBV
22. mín
Mörkin halda áfram að hrannast inn!

Sverrir Páll Hjaltested

Lalic í marki heimamanna fór í rétt horn en náði ekki að verja.
20. mín
Aðeins um úrslitaþjónustu að ræða
Því miður er ekki hefðbundin bein textalýsing frá þessum leik heldur aðeins úrslitaþjónusta þar sem það allra helsta kemur inn. En við bendum á beina útsendingu frá leiknum sem hægt er að nálgast hér að neðan.
Dalvík/Reynir
15. mín
Ég skal segja ykkur það!

Abdeen Temitope Abdul

Þessi Lengjudeild fer heldur betur af stað á áhugaverðan hátt! Dalvík/reynir sem spáð var neðsta sæti er 2-0 yfir gegn ÍBV. Eftir þunga sókn náði Abdeen Temitope Abdul að skora sitt annað mark! Kom boltanum í netið eftir vandræðagang í vörn ÍBV.
Dalvík/Reynir
4. mín
Maaark

Abdeen Temitope Abdul

Skorar með skalla eftir fyrirgjöf frá hægri.
1. mín
0. mín
Stuðst verður við útsendingu Youtube í textalýsingunni
0. mín
Það voru heldur betur áhugaverð úrslit í Lengjudeildinni í gær
0. mín
Dalvík/Reyni spáð neðsta sæti af þjálfurum og fyrirliðum
12. Dalvík/Reynir Í neðsta sæti í spánni eru Dalvíkingar. Það voru nánast allir sem voru með liðið í neðsta sæti í sinni spá, en það er ekki mikil trú á liðinu. Dalvík lék síðast í næst efstu deild árið 2003 en þá var liðið sameinað með Leiftri og hét liðið Leiftur/Dalvík. Félagið hafnaði í neðsta sæti deildarinnar það árið með ellefu stig. Dalvík hefur verið að flakka á milli 2 og 3. deildar síðastliðin tuttugu ár. Dalvík/Reynir komst upp úr 3. deild árið 2022 og var spáð sjöunda sæti í 2. deild í fyrra en þeir komu svo gott sem öllum á óvart og unnu deildina. Það verður fróðlegt að sjá hvernig liðinu mun vegna í sumar en mögulega er þetta of stórt verkefni.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þjálfarinn: Dragan Stojanovic er þjálfari Dalvíkur og á hann skilið gríðarlegt hórs fyrir það sem hann hefur gert með liðið til þessa. „Ég ætla að byrja á því að hrósa Dragan Stojanovic. Ógeðslega klókur þjálfari sem veit hvað hann er að gera og kann þetta allt. Hann hefur þjálfað í mörg ár og er með skýrt plan," sagði Baldvin Már Borgarsson í Innkastinu í fyrra þegar Dalvík komst upp. Dragan hefur þjálfað fjölda liða, þar á meðal Þór, Völsung, KF og Fjarðabyggð.
   24.04.2024 11:30
„Höfum sótt aðra í þeirra stað sem við teljum að styrki okkur meira"
Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann fer yfir liðin; þeirra styrkleika, veikleika og fleira. Í fyrra var hann aðstoðarþjálfari Ægis í Lengjudeildinni og þekkir hann því hana býsna vel. Styrkleikar: Agaður og vel skipulagður leikstíll er það sem kom Dalvík/Reyni frekar óvænt upp úr 2. deildinni síðasta sumar, það mun reyna enn frekar á liðið að byggja ofan á þann sterka grunn þar sem liðið sýndi í fyrra að það þurfti ekkert alltaf að dóminera leikina eða spila eins og Man City til þess að vera sterkari aðilinn. Gátu stjórnað leikjum vel án bolta og þurfa á því að halda í ár. Veikleikar: Finnst full mikil leikmannavelta frá því í fyrra, D/R stefndi vissulega á að skipta út erlendum mönnum og sækja enn betri, en það er algjört spurningamerki hvernig það tekst til frekar en að byggja ofan á með leikmönnum sem voru búnir að vera saman heilt tímabil. Einnig er það risa skarð frá því í fyrra að missa út lánsmennina frá KA og Þór sem voru lykilmenn. Lykilmenn: Þröstur Mikael Jónasson - Fyrirliðinn, harðjaxlinn og drifkrafturinn. Leikmaður sem mér finnst persónulega eiga að vera löngu búinn að taka skrefið í sterkara lið, fór vissulega í Grindavík en fékk ekki tækifæri. Þröstur3000, eins og hann er kallaður, er besti Íslendingurinn í liðinu og það mun mikið mæða á honum ef liðið ætlar að halda sæti sínu í deildinni. Áki Sölvason - Gríðarlega iðinn við kolann fyrir framan markið, baneitraður sóknarmaður sem kann að skora mörk, þannig leikmenn eru alltaf gulls ígildi, kraftmikill, áræðinn og veit hvar markið er. Franko Lalic - Gríðarlega góður markvörður með reynslu úr Lengjudeildinni, líklegast þá mestu í liðinu svona snöggt á litið, hann getur svo sannarlega varið markið og hann þarf að eiga gott sumar til þess að Dalvíkingar geti notið þess. Fylgist með: Gunnlaugur Rafn Ingvarsson, kraftmikill og sterkur sópari á miðjuna, smá svona gamla skóla nagli í honum en flottur í fótbolta og getur tekið fleiri hlutverk að sér en að brjóta bara upp sóknir. Hann er 21 árs og orðinn þokkalega reynslumikill fyrir aldur en er nú mættur á stærra svið en nokkurn tímann áður og ég held hann geti höndlað það vel. Komnir: Alejandro Zambrano frá Spáni Abdeen Temitope Abdul frá Malasíu Amin Guerrero frá Spáni Nikola Kristinn Stojanovic frá Þór Matheus Bissi frá Kasakstan Björgvin Máni Bjarnason frá KA (var á láni hjá Völsungi) Dagbjartur Búi Davíðsson á láni frá KA (var á láni hjá KF) Freyr Jónsson frá Grindavík Markús Máni Pétursson frá KA Máni Dalstein Ingimarsson á láni frá KA Mikael Aron Jóhannsson frá KA Valur Örn Ellertsson frá KA Farnir: Florentin Apostu til Ítalíu Gunnlaugur Bjarnar Baldursson í Tindastól Hamdja Kamara til Spánar Númi Kárason í Magna Toni Tipuric í Ægi Auðunn Ingi Valtýsson í Þór (var á láni) Kári Gautason í KA (var á láni) Sigfús Fannar Gunnarsson í Þór (var á láni) Dómur Badda fyrir gluggann: 5, nei 3. Frekar hlutlaus fimma, það er erfitt að meta þessa nýju erlendu leikmenn, Ale Zambrano er að koma aftur eftir að hafa verið hjá Aftureldingu fyrir nokkrum árum, Bissi er óskrifað blað en D/R missir Kamara, Kára Gauta, Þorvald Daða, Sigfús og fleiri lykilmenn frá því í fyrra, þetta er eiginlega bara þristur, ég breyti úr fimmu í þrist. Fyrstu þrír leikir Dalvíkur/Reynis: 4. maí, Dalvík/Reynir - ÍBV (Dalvíkurvöllur) 9. maí, Njarðvík - Dalvík/Reynir (Rafholtsvöllurinn) 18. maí, Dalvík/Reynir - Fjölnir (Dalvíkurvöllur) Í besta og versta falli að mati Badda: Í besta falli níunda sæti og í versta falli tólfta sæti.
0. mín
ÍBV er spáð fjórða sæti
4. ÍBV Vestmannaeyingar eru aftur mættir í Lengjudeildina eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni í fyrra. Síðasta sumar var erfitt fyrir ÍBV þar sem liðið lenti í mikið af meiðslum og náði litlum sem engum takti. Eftir tímabilið drógu Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Heimir Hallgrímsson, tveir miklir Eyjamenn, upp slæma mynd af fótboltanum í Vestmannaeyjum. Heimir talaði um það í viðtali við Fótbolta.net að þeir sem stjórni í Eyjum hafi sofið á verðinum með fótboltann og að hann sé að dragast aftur úr. Það er spurning hvort þetta fall niður í Lengjudeildina hafi verið ákveðin vakning fyrir Eyjamenn og hvort þeir fari aftur að rífa sig í gang.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfarinn: Hermann Hreiðarsson stýrir áfram skútunni hjá ÍBV, líkt og hann hefur gert síðustu ár. Það eru fáir með jafnmikið Eyjahjarta og Hemmi Hreiðars. Einn af okkar bestu fótboltamönnum á síðustu 20 árum eða svo, og einn besti varnarmaður sem Ísland hefur átt. Hann er að þjálfa Eyjaliðið í annað sinn en er með talsvert meiri reynslu núna. Þessi skemmtilegi karakter er núna á leið inn í sitt þriðja tímabil eftir að hafa tekið við liðinu aftur og það verður fróðlegt að sjá hvort hann nái að koma ÍBV upp í fyrstu tilraun.
   29.04.2024 11:30
„Það hafa átt sér stað miklar lagfæringar"
Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann fer yfir liðin; þeirra styrkleika, veikleika og fleira. Í fyrra var hann aðstoðarþjálfari Ægis í Lengjudeildinni og þekkir hann því hana býsna vel. Styrkleikar: Margir flottir leikmenn til staðar. Vonandi heilsteyptari og sterkari stemning fyrir liðinu þar sem fleiri Íslendingar verða í stórum hlutverkum. Heimavöllurinn yfirleitt öflugur fyrir Eyjamenn. Veikleikar: Þunnur hópur. Meiðsli hafa strítt Eyjamönnum undanfarin ár og vill ég meina að þau hafi sett stórt strik í tímabil Eyjamanna í fyrra sem á endanum féllu. Í ár er hópurinn talsvert þynnri en áður og það gæti komið í bakið á Eyjamönnum ef lykilmennirnir haldast ekki heilir. Lykilmenn: Rasmus Christiansen - Gríðarlega klókt hjá ÍBV að sækja þennan reynslubolta, leiðtoga og frábæra einstakling. Ekki skemmir fyrir að hann er mjög góður í fótbolta og nánast innfæddur Eyjamaður eftir að hafa orðið ástfanginn þarna. Tómas Bent Magnússon - Að mínu mati einn besti miðjumaður deildarinnar. Búinn að vera meiddur of mikið undanfarið og ég er að fatta það núna að ég gleymdi honum hreinlega í úrvalsliðið í útvarpsþættinum. Hann væri mögulega þar inni fyrir liðsfélaga sinn Alex Frey. Bestu deildar lið eiga að skoða þennan ef Eyjamenn komast ekki upp; á ekkert heima í Lengjudeildinni. Alex Freyr Hilmarsson - Frábær knattspyrnumaður sem þarf að eiga gott tímabil til að aðstoða Eyjamenn í baráttunni, þarf að búa til nokkur færi fyrir Sverri Hjaltested og hina sóknarmennina. Fylgist með: Henrik Máni Hilmarsson, ungur hafsent á láni frá Stjörnunni. Virkilega efnilegur leikmaður. Komnir: Rasmus Christiansen frá Aftureldingu Hjörvar Daði Arnarsson frá HK Vicente Valor frá Bandaríkjunum Henrik Máni B. Hilmarsson á láni frá Stjörnunni Eiður Atli Rúnarsson á láni frá HK Víðir Þorvarðarson frá KFS Farnir: Eiður Aron Sigurbjörnsson í Vestra Elvis Bwomono til St. Mirren Guy Smit til KR (var á láni frá Val) Halldór Jón Sigurður Þórðarson í Fylki Jón Jökull Hjaltason í Þór Breki Ómarsson Guðjón Orri Sigurjónsson Filip Valencic til Póllands Kevin Bru Michael Jordan Nkololo Richard King til Jamaíku Dwayne Atkinson til Jamaíku Dómur Badda fyrir gluggann: 6 Vantar kannski svolítið inn fyrir Eið Aron, Elvis og fleiri gæða leikmenn sem hafa farið, en ég ætla samt að láta Eyjamenn standast prófið fyrir að snarfækka erlendum málaliðum og taka frekar inn unga íslenska stráka sem fá vonandi stór hlutverk í liðinu, hugsanlega á kostnað 'short term' árangurs. Fyrstu þrír leikir ÍBV: 4. maí, Dalvík/Reynir - ÍBV (Dalvíkurvöllur) 10. maí, ÍBV - Þróttur R. (Hásteinsvöllur) 20. maí, ÍBV - Þór (Hásteinsvöllur) Í besta og versta falli að mati Badda: Í besta falli enda þeir í þriðja sæti og í versta falli enda þeir í sjöunda sæti.
0. mín
Dómarateymið
Arnar Ingi Ingvarsson er dómari leiksins í dag. Hann er með þá Guðna Frey Ingvarsson og Arnþór Helga Gíslason sér til aðstoðar á línunum en enginn skiltadómari er í dag. Magnús Siguðurður Sigurólason ser eftirlitsmaður KSÍ og fylgist með störfum dómara og umgjörð leiksins.
Arnar Ingi dæmir í dag. | Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Leikdagur á Dalvík
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Dalvík. Hér mætast Dalvík/Reynir og ÍBV í 1. umferð Lengjudeildar karla. Leikurinn hefst klukkan 14:00 á Dalvíkurvelli.
Mynd: Jóhann Már Kristinsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.