Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
FH
FH
Besta-deild kvenna
Kaplakrikavöllur
Sól og smá goli
1 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Breukelen Lachelle Woodard 96'1 - 0
Dómari: Tomasz Piotr Zietal
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Ótrúlegar lokasekúndur þegar FH vann Þrótt

Hvað réði úrslitum?

Stelpurnar í Þrótti voru mikið betri þessum leik, sértaklega í fyrri hálfleik. Þær voru meira með boltann og sköpuðu fleiri færi. FH gafst þó aldrei upp og áttu flotta kafla. Þær nældu sér í eitt mark sem er það sem telur í fótbolta.

Bestu leikmenn

1. Arna Eiríksdóttir

Arna, fyrirliði FH, var frábær í vörninni. Hún var eins og alvöru fyrirliði og það var oft Van Dijk fýlingur í henni.

2. Aldís Guðlaugsdóttir

Mjög flott í rammanum í dag. Hún nældi sér í clean sheet og átti góðan leik.

Atvikið

Það er engin vafi að atvik leiksins var markið hennar Breukelen í loka sekúndu leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

FH klifrar upp 4. sæti í deildinni með 3 stig hér í dag. Þróttur eru aðeins með 1 stig í deildinni og liggja í 9. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Almennt séð áttu bæði lið góðan leik. Það voru þó leikmenn eins og Leah Maryann frá Þrótti og Elísa Lana úr FH sem áttu ekki sértakan leik í dag. Leah var ekki nógu dugleg með hlaupin sín og að gefa boltann. Elísa átti nokkur léleg hlaup og klúðraði nokkrum góðum færum.

Dómarinn - 6

Þetta var ágætlega dæmdur leikur hjá Tomasz og félögum. Mér fannst stundum ekki vera sett sama línan á milli FH og Þrótt, og fannst ég Þróttur vera fá meira af ódýrum aukaspyrnum heldur en FH. Bæði rauðu spjöldin voru vel dæmd, ég skil Tomasz að gefa Andreu rautt fyrir að sparka boltanum eftir að það var flautað, en það var mögulega of harsh ákvörðun að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.