Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Keflavík
Keflavík
Besta-deild kvenna
HS Orku völlurinn
1 - 2
Valur
Valur
Fanney Inga Birkisdóttir (sjm) 35'1 - 01 - 155' Fanndís Friðriksdóttir 1 - 260' Nadía Atladóttir
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Seinni hálfleikur dugði Val gegn Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Eftir frábæran fyrri hálfleik Keflavíkur og að sama skapi út úr karakter frammistöðu hjá Val kveikti lið gestanna á sér á réttum tíma. Á fyrsta korteri síðari hálfleiks sneru þær taflinu við og drógu þrjú stig í hús. Keflavíkurstúlkur geta nagað sig í handarbökin að hafa misst fókus á sínum leik á þessum kafla því ef hann er dreginn frá voru þær síst lakara liðið í leiknum. Valsliðið er þó vant að vinna leiki og þær sýndu það í kvöld. Þurftu enga flugeldasýningu til á grasinu í Keflavík en gerðu það sem þær þurftu.

Bestu leikmenn

1. Kate Cousins

Flestar hættulegar sóknir Vals fóru á einn eða annan hátt i gegnum hana. Sýndi góða yfirsýn þegar hún lagði upp sigurmarkið fyrir Nadíu og átti heilt yfir ágætis leik.

2. Elianna Esther Anna Beard

Kraftmikil á miðju Keflavíkur í kvöld og var að tengja vel við liðsfélaga sína. Átti nokkrar álitlegar skottilraunir og var ekki langt frá því að jafna leikinn í blálokinn er skot hennar fór rétt framhjá marki Vals sekúndum áður en flautað var af.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins var skrautlegt í meira lagi. Eftir skot af varnarmanni fær Elfa Karen Magnúsdóttir boltann við endalínu hægra megin í teignum. Aðþrengd varnarmönnum setur hún boltann fyrir markið þar sem enga samherja var þó að finna. Fanney í marki Vals virðist eitthvað hafa misreiknað boltann sem virkaði hættulaus og virðist hreinlega missa hann yfir línuna og mark því dæmt.

Hvað þýða úrslitin?

Valur með fullt hús stiga líkt og Breiðablik en situr í 2.sæti deildarinnar á lakari markatölu en Breiðablik. Keflavík á botninum stigalausar.

Vondur dagur

Batakveðjur á Jasmín Erlu Ingadóttir sem varð fyrir því óláni að fá boltann af talsverðum krafti í höfuðið í fyrri hálfleik. Hún reyndi að halda leik áfram en fljótlega varð ljóst að hún gæti ekki haldið leik áfram. Hún var svo flutt á sjúkrahús til skoðunar með heilahristing. Vonum að hún jafni sig fljótt og snúi aftur á völlinn.

Dómarinn - 8

Góð frammistaða hjá dómara leiksins og aðstoðarmönnum. Leyfði leiknum að fljóta og var ekki að flauta um of. Leikstjórn með ágætum í nokkuð þægilegum leik að dæma svona utan frá séð í það minnsta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.