Leik lokið!
Ótrúlegur endir á þessum leik!! Heimamenn taka stigin þrjú hér á lokasekúndunum!
95. mín
MAAAAAARK!!!!
Sigfús Fannar Gunnarsson (stoðsending: Rafael Alexandre Romao Victor)
Sigfús Fannar að innsigla sigurinn! Rafael kemst upp að endalínu og sendir boltann fyrir á Sigfús sem skorar á opið markið!94. mín
MAAAAAARK!
Rafael Alexandre Romao Victor
Rosalega mikið í gangi þessa stundina! Missti alveg af þessu marki en Rafael er að tryggja Þórsurum stigin þrjú! Gersamlega tryllist allt stuðningsmenn Þórs hlaupa inn á völlinn92. mín
Rautt spjald
Oliver Bjerrum Jensen
Afturelding að fá annað rautt!!92. mín
Þór á aukaspyrnu við vítateigslínuna
90. mín
InnKári Steinn Hlífarsson
ÚtHrannar Snær Magnússon
Hrannar meiddur
87. mín
HAAAA!!??
Hvernig fór þessi ekki inn!! Darraðadans inn á teig Aftureldingar. Þrír Þórsrar sem koma fótunum í boltann en koma honum ekki yfir línuna!
85. mín
Gult spjald
Ýmir Már Geirsson
82. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtAron Jóhannsson
82. mín
InnElmar Þór Jónsson
ÚtEgill Orri Arnarsson
80. mín
Rafael Victor sendir Sigfús Fannar einan í gegn en honum tekst ekki að setja boltann framhjá Arnari Daða. Vel gert hjá Arnari.
79. mín
Aron Ingi með skot í litlu jafnvægi og boltinn fer vel framhjá markinu.
76. mín
MAAAARK!
Egill Orri Arnarsson
Hinn ungi Egill Orri skallar boltann í netið af stuttu færi og jafnar metin! VIð fáum rosalegar lokamínútur!74. mín
Þór fær horn
71. mín
InnAlexander Már Þorláksson
ÚtIngimar Arnar Kristjánsson
Tvöföld breyting hjá Þórsurum
71. mín
InnHermann Helgi Rúnarsson
ÚtBjarki Þór Viðarsson
66. mín
Þór fær hornspyrnu
Afturelding skallar boltann í burtu
63. mín
Aftureldingu hefur liðið mjög vel undanfarnar mínútur. Hafa haldið boltanum gríðarlega vel en verið varkárir.
58. mín
Rafael Victor með boltann og er að bruna upp völlinn. Aron Jóhansson sýnist mér vera reyna pressa hann og Rafael hörfar í burtu og fær dæmt á sig brot.
54. mín
Þórsarar herja vel á mark Aftureldingar hér síðustu mínútur.
50. mín
Þór fékk aukaspyrnu en ekkert kom út úr henni
49. mín
Rautt spjald
Gunnar Bergmann Sigmarsson
Brýtur á Þórsara sem er að sleppa í gegn. Beint rautt!49. mín
Gult spjald
Egill Orri Arnarsson
braut á Georg Bjarnasyni47. mín
Egill Orri Arnarsson með flottan bolta fyrir markið. Rafael og Ingimar fara báðir upp í boltann en komast hvorugir í hann.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn
45. mín
Hálfleikur
Aron Jóhannsson liggur hérna eftir um leið og flautað er til hálfleiks. Virtist hafa verið sleginn í andlitið.
45. mín
Aron Ingi Magnússon með fínan skalla en Arnar Daði vel á verði og grípur boltann.
43. mín
Bjargað á línu!
Gunnar Bergmann með skallann sýnist mér en Þórsarar ná að bjarga á síðustu stundu.
40. mín
Þór fær horn
39. mín
Sigfús Fannar með góðan sprett. Kemst upp að endalínu en finnur ekki samherja inn á teignum.
37. mín
Gult spjald
Georg Bjarnason
Nú koma spjöldin hægri vinstri.35. mín
Gult spjald
Rafael Alexandre Romao Victor
Afturelding fær aukaspyrnu. Rafael Victor fær spjald, hann var ekki nálægt þessu. hlítur að hafa sagt eitthvað.34. mín
Birkir reynir aftur skot. Þetta var svona 'heatcheck'. beint á Arnar Daða í marki Aftureldingar.
33. mín
Þórsarar fá aukaspyrnu hinu megin
32. mín
Váá
Hrannar Snær Magnússon með hörkuskot en boltinn fer í stöngina. Þórsarar bjarga síðan í horn. Ekkert kom út úr því.
30. mín
Gult spjald
Kristófer Kristjánsson
Gult á Kristófer sýndist mér. Afturelding með aukaspyrnu, eru síðan dæmdir brotlegir inn á teig Þórsara.29. mín
Birkir Heimis með skot en boltinn framhjá
27. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtFannar Daði Malmquist Gíslason
Fannar Daði að fara af velli. Hnéið gaf sig eitthvað hjá honum. Virkilega slæmt fyrir hann þarsem ekki er mjög langt síðan hann var að stíga upp úr krossbandaslitum.
21. mín
Afturelding fær aukaspyrnu við vítateigslínuna
Skot úr þröngu færi sem Aron Birkir ver
19. mín
Maaaaark!
Birkir Heimisson
Birkir með mark beint úr aukaspyrnu, sláin inn!16. mín
Birkir með hörku tilraun inn í D-boganum en skotið rétt framhjá.
15. mín
Maaarkk... nei.. Rafael Victor skallar boltann í netið eftir aukaspyrnu frá Birki Heimis en rangstaða dæmd.
14. mín
Þór fær aukaspyrnu á álítlegum stað
9. mín
Þetta var afskaplega rólegt á milli markanna. Þórsarar létu aðeins vita af sér en alls ekki nógu mikið bit í sóknarleiknum.
8. mín
MAAARK
Andri Freyr Jónasson
Gestirnir komnir með tveggja marka forystu! Andri Freyr sleppur einn í gegn og eftirleikurinn auðveldur.2. mín
MAAAAARK
Georg Bjarnason
Georg kemur boltanum í netið. Aron Birkir ætlar að kýla boltann frá eftir horn en hittir hann ekki, Georg er mættur á svæðið og kemur boltanum einhvern vegin yfir línuna.2. mín
Afturelding á horn
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn farinn af stað. Seinkaði aðeins smá bras á klukkunni.
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völl
Þetta er að bresta á. Heimamenn leika í hvítum treyjum og rauðum buxum en gestirnir í rauðum treyjum og svörtum buxum.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús
Hægt að sjá þau hér sitthvoru megin við textalýsinguna.
Lets go ???? pic.twitter.com/HGrpfLRzbs
— Þór fótbolti (@Thor_fotbolti) May 9, 2024
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Ástbjörn Þórðarson leikmaður FH í Bestu deildinni spáir í 2. umferð Lengjudeildarinnar. Hann spáir heimasigri með hjálp liðsfélaga síns.
Þór 3-2 Afturelding (16:00 í dag)
Ég spurði nýja liðsfélaga minn og sessunaut Bjarna Guðjón hvernig þetta færi. Hann sagði að þetta yrði góður leikur með mikið af mörkum en þar sem þetta er inni í Boganum segir hann Þór taka þetta 3-2.
Þór 3-2 Afturelding (16:00 í dag)
Ég spurði nýja liðsfélaga minn og sessunaut Bjarna Guðjón hvernig þetta færi. Hann sagði að þetta yrði góður leikur með mikið af mörkum en þar sem þetta er inni í Boganum segir hann Þór taka þetta 3-2.

Fyrir leik
Tríóið
Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með flautuna hér í dag. Eysteinn Hrafnkelsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage verða honum til aðstoðar. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
Toppslagur
Um er að ræða titilbaráttuslag samkvæmt spá þjálfara og fyrirliða fyrir mótið. Þeir spáðu Aftureldingu efsta sætinu í sumar og Þórsurum í 2. sæti.

Fyrir leik
Góðan daginn
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og Aftureldingar í 2. umferð Lengjudeildarinnar. Leikurinn fer fram í Boganum á Akureyri.


