Fotbolti.net
Besta deildin
Bogi Sigurbjörnsson
Besta-deild kvenna
Greifavöllurinn
Sól og blíða og smá gola
Tindastóll
Tindastóll
3 - 0
Fylkir
Fylkir
Elísa Bríet Björnsdóttir 12'1 - 0María Dögg Jóhannesdóttir 44'2 - 0Laufey Harpa Halldórsdóttir 85'3 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Tindastóll með frábæran 3 - 0 sigur gegn Fylki á sínum vara heimavelli

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikur hjá Stólunum, bæði á boltanum og þegar þær voru ekki með boltann. Pressan var frábær og áttu Fylkir erfit með að komast yfir miðju í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik voru þær ekki alveg jafn hátt og minna að færum en samt fagmanleg framistaða í seinni hálfleik.

Bestu leikmenn

1. Elísa Bríet

Elísa var frábær í dag, fyrir utan markið var hún í nánast öllum boltum og var mikilvægur partur af uppspili Stólana

2. Laufey Halldórsdóttir

Laufey var einnig frábær í dag, hún var dugleg að fara upp kantinn úr vængbakvarðarstöðunni og að koma boltanum fyrir, svo kórunaði hún þennan góða leik með marki

Atvikið

Helga Guðrún leit út fyrir að hafa lent í hræðilegum meiðslum snemma í leiknum og fór langur tíma að græja hana aftur, hún kom síðan aftur inn á áður en hún fór af velli í hálfleik líklegast útaf meiðslum

Hvað þýða úrslitin?

Eftir leikinn í dag eru Stólarnir í 4 sæti með 6 stig og lítur þetta mjög vel út hjá þeim. Fylkis stelpur voru að tapa sínum fyrsta leik og eru þær í 6 sæti.

Vondur dagur

Kayla Bruster átti mjög vondan dag í vörn Fylkis í dag, hún var óörugg með boltan og það voru mistök frá henni sem leiddu að fyrsta marki Stólana.

Dómarinn - 7

Það voru sumir dómar eða ekki dómar sem voru skrítinir en alls ekki nein stór mistök. Stóð sig bara með prýði
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.