Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
Boginn
Þór
Þór
4 - 2
Afturelding
Afturelding
0 - 12' Georg Bjarnason0 - 28' Andri Freyr Jónasson Birkir Heimisson 19'1 - 2Egill Orri Arnarsson 76'2 - 2Rafael Alexandre Romao Victor 94'3 - 2Sigfús Fannar Gunnarsson 95'4 - 2
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Þolinmæði þrautir vinnur allar

Hvað réði úrslitum?

Eftir frábæra byrjun Mosfellinganna gerðu þeir sér þetta erfitt fyrir þegar Gunnar Bergmann var rekinn af velli. Þórsarar voru þolinmóðir og það losnaði loksins um stífluna.

Bestu leikmenn

1. Birkir Heimisson

Þvílíkur fengur fyrir Þór. Frábær frammistaða og stórkostlegt mark sem hann henti í beint úr aukaspyrnu.

2. Rafael Victor

Var nálægt því að vera skúrkurinn en það er stutt á milli í fótboltanum. Skorar markið sem kemur Þórsurum í forystu og leggur upp markið sem innsiglar sigurinn.

Atvikið

Það eru fullt af atvikum í þessum leik. Rauðu spjöldin, glæsilegt mark hjá Birki Heimissyni, fyrsta mark Egils og Fannar Daði meiddist á hné eftir að hafa stigið illa í fótinn, hann hefur slitið krossband á sama hné, vonandi fyrir hann og Þór að þetta sé ekki alvarlegt.

Hvað þýða úrslitin?

Þórsarar komnir með fjögur stig eftir tvær umferðir en Afturelding aðeins með eitt stig.

Vondur dagur

Það var nálægt því að vera Rafael Victor eða Ingimar Arnar. Þeir fengu svo sannarlega tækifærin til að gera út um leikinn. Rafael tókst að gera það að lokum í uppbótatíma. Verulega klaufalegt hjá Gunnari Bergmann Sigmarssyni að láta reka sig af velli, reyndist dýrkeypt þar sem Afturelding var með fín tök á þessu í fyrri hálfleik.

Dómarinn - 5

Afskaplega misjöfn frammistaða í dag. Línan var ekki stöðug hjá honum. Hann negldi þó rauðu spjöldin að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.