Leik lokið!
Víkingur sigrar í Laugardalnum
95. mín
Gult spjald
Emma Steinsen Jónsdóttir
Gult spjald fyrir tafir.92. mín
Rétt yfir!
Þróttarar nálægt því að jafna hér í uppbótartíma. Kristrún með skalla sem fer rétt yfir.
90. mín
Það eru 6 mínútur í uppbótartíma.
87. mín
það eru 220 áhorfendur hér í kvöld.
86. mín
InnHafdís Bára Höskuldsdóttir
ÚtShaina Faiena Ashouri
84. mín
Shaina við það að sleppa í gegn en geggjuð tækling hjá Sæunni í vörn Þrótts.
80. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtMaría Eva Eyjólfsdóttir
79. mín
Gult spjald
María Eva Eyjólfsdóttir
79. mín
Færi!
Caroline með hættulegan bolta inn á teig gestanna. Skalli á fjær sem fer af Birtu og afturfyrir endamörk.
78. mín
Víkingu fær horn.
Ekkert verður úr því.
Ekkert verður úr því.
77. mín
Sigdís á skalla á fjær eftir geggjaða fyrirgjöf. Boltinn yfir markið.
72. mín
Rétt yfir!
Bylmingsfast skot sem fer rétt yfir markið. Leah fær boltann rétt fyrir utan teig og lætur vaða í átt að marki Víkings. Hittir hann vel og boltinn sleikir slánna.
67. mín
InnKristrún Rut Antonsdóttir
ÚtÍsabella Anna Húbertsdóttir
66. mín
Gott úthlaup!
Shaina komin í gegn en Molle hrifsar boltann af henni.
62. mín
MAAAAR... Rangstæða
Fyrirgjöf frá Sigdísi inn á teginn og klárar Selma Dögg vel en flaggið fór á loft. Gestirnir nálægt því að tvöfalda forystuna.
57. mín
Færi!
Góð fyrirgjöf inn á teig Víkings og er það Freyja Karín sem á skalla á mark. Skallar boltann niður í jörðina og Birta getur gripið hann auðveldlega í markinu.
56. mín
Gott spil hjá Þrótti! Spila sig vel út úr pressunni og koma sér í vænlega stöðu. Freyja Karín með skot úr þröngu færi sem hafnar í hliðarnetinu.
52. mín
Seinni fer rólega að stað. Þróttur að halda í boltann.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Þróttur kemur seinni í gang.
45. mín
Hálfleikur
Litlu bætt við og dómarinn flautar til hálfleiks. Lokaður leikur framan af en varð fjörugru er leið á hálfleikinn. Sigdís kom gestunum yfir eftir skyndisókn en annars hefur verið lítið um almennileg færi.
Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálflekinn að vörmu spori!
Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálflekinn að vörmu spori!
45. mín
Þróttur fær horn.
Hættulegt horn sem endar með skalla á markið. Birta framarlega og missir boltann næstum yfir sig og inn, en nær til hanns.
Hættulegt horn sem endar með skalla á markið. Birta framarlega og missir boltann næstum yfir sig og inn, en nær til hanns.
43. mín
Skot á mark!
Gott hlaup upp vinstri kanitinn hjá Sierra. Hún snýr inná völlin og á fast skot í átt að marki gestanna. Hittir hann vel en boltinn beint a Birtu í markinu semg grípur hann.
39. mín
Enn og aftur sækja gestirnir hratt. Selma með sendingu fyrir en boltinn of innarlega og Molle grípur hann.
32. mín
Þróttur 0-1 Víkingur
MAAAARK!
Sigdís Eva Bárðardóttir (stoðsending: Freyja Stefánsdóttir)
Góð skyndisókn hjá gestunum. Langur bolti inn fyrir vörn Þróttar og Freyja er komin í gegn. Hún gerir frábærlega er hún sendir boltann fyrir markið á Sigdísi sem klárar í galopið markið.Þróttur 0-1 Víkingur
26. mín
Gult spjald
Caroline Murray
25. mín
Vel varið!
Geggjaður sprettur hjá Sierrra Marie sem kemst fram hjá tveimur varnarmönnum Víkings. Á gott skot fyrir utan teig sem Birta ver vel í markinu.
23. mín
Gult spjald
Ísabella Anna Húbertsdóttir
20. mín
Langskot
Skot vel fyrir utan teig í átt að marki Víkings. Skotið hátt og hægist verulega á boltanum. Birta grípur í markinu.
17. mín
Víkingur fær horn.
Þróttur hreinsar.
Þróttur hreinsar.
15. mín
Rangstæða
Sæunn kominn ein á móti markmanni eftir góða sendingu frá Ísabellu. Líklega endað með makrki en flaggið fer á loft.
14. mín
Allt hnífjafnt þessar mínuturnar. Gestirnir byrjuðu betur en Þróttarar hafa hægt og rólega verið að vinna sig inn í þetta.
6. mín
Færi!
Shaina komin ein á móti markmanni. Skotið laust og Molle grípur í marki Þrótts.
1. mín
Snembúin aukaspyrna á hættulegum stað fyrir Víking. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.
Hættulegur bolti en enginn nær til hanns. Markspyrna frá marki Þrótts.
Hættulegur bolti en enginn nær til hanns. Markspyrna frá marki Þrótts.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir rúlla þessu í gang.
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Liðin ganga inn á völlinn.
Fyrir leik
Skýjað í Laugardalnum
Ágætis aðstæður hér í kvöld. 9°C, skýjað og léttur úði.
Fyrir leik
Dómarateymið
Jovan Subic dæmir leikinn hér í kvöld og eru það þau Patryk Emanuel Jurczak og Eydís Ragna Einarsdóttir sem verða með flöggin. Eftirlitsmaður er Snorri Páll Einarssoon og varadómari er Tomasz Piotr Zietal


Fyrir leik
Hafrún Rakel spáir í spilin
Hafrún Rakel, landsliðskona spáði fyrir um 5. umferð Bestu deildarinnar. Hún spáir Víkingum sigri hér í kvöld.
Þróttur R. 0 - 1 Víkingur R.
“Stál í stál leikur hérna, Katla mætir aftur í rammann og verður með hverja vörsluna á fætur annarri. Coach king Kristó verður með eldræðu í hálfleik og Vikes sigla þessu heim eftir hana.”

Þróttur R. 0 - 1 Víkingur R.
“Stál í stál leikur hérna, Katla mætir aftur í rammann og verður með hverja vörsluna á fætur annarri. Coach king Kristó verður með eldræðu í hálfleik og Vikes sigla þessu heim eftir hana.”

Fyrir leik
Víkingur R.
Nýliðarnir úr Fossvoginum sitja fyrir leikinn í kvöld í 8. sæti Bestu deildarinnar. Víkingur byrjaði tímabilið á sterkum útisigri á móti Stjörnunni en hafa ekki sigrað síðan. Víkingi var spáð sjöunda sæti í sumar af spekingum fótbolta.net. Víkingur mætti Þór/KA í síðustu umferð og tapaði þar 2-1 eftir að hafa komist yfir snemma leiks. John Andrews hefur verið að gera mjög góða hluti með þetta skemmtilega Víkingslið og verður spennandi að sjá hvernig þeim mun ganga í deild þeirra bestu í sumar!


Fyrir leik
Þróttur R.
Þróttarar hafa farið brösulega af stað í sumar og eru enn án sigurs. Þróttur situr í 9. sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld, en þeim var spáð sjötta sætinu fyrir mót. Þróttur mætti FH í síðustu umferð og tapaði þar í blálokin er Breukelen Lachelle skoraði á sjöundu mínútu uppbótartíma. Gerðar voru talsverðar breytingar í Laugardalnum í vetur bæði á leikmannahóp og þjálfarateymi. Hinn reynslumikli Ólafur Kristjánsson er tekin við liðinu eftir að Nik Chamberlain var ráðinn til Blika. Mikið af nýjum leikmönnum í Þrótti, nýr þjálfari og verður gaman að fylgjast með uppbyggingunni í Laugardalnum í sumar!


Fyrir leik
Heil og sæl!
Góðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu á viðuregin Þróttar og Víkings. Leikurinn fer fram á Avis-vellinum í Laugardalnum og hefst kl. 18:00






Skýrsla og viðtöl koma seinna í kvöld!