Fotbolti.net
Besta deildin
@HalldorGauti08Halldór Gauti Tryggvason
Þróttur R.
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
0 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 132' Sigdís Eva Bárðardóttir
Dómari: Jovan Subic
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson

SKÝRSLAN: Víkingur með sterkan útisigur í Laugardalnum

Hvað réði úrslitum?

Svolítið lokaður leikur í Laugardalnum í kvöld. Lítið um færi framan af þó að það færðist meira fjör í þetta er leið á leikinn. Vilji Víkingsliðsins er það sem réði úrslitunum í kvöld, einfaldlega eins og þær vildu þetta meira.

Bestu leikmenn

1. Sigdís Eva Bárðardóttir

Sigdís var frábær í kvöld. Ógnaði mikið og stafaði alltaf hætta er hún var með boltann. Sigdís skoraði einnig eina mark leiksins eftir góðan undirbúning frá Freyju Stefánsdóttur

2. Freyja Stefánsdóttir

Freyja frábær í sóknarlínu gestanna í kvöld. Lagði upp markið ogógnaði oft með sínum hraða.

Atvikið

Atvik leiksins myndi vera markið sem Sigdís Eva skoraði á 32. mínútu.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur þýst upp um fjögur sæti efti sigurinn og situr í fjórða sæti deildarinnar eftir leikinn. Þróttur enn sigurlausar og sitja enn í níunda sætinu.

Vondur dagur

Erfitt að setja þetta á einhverja eina en það var svona smá andleysi á tímabili í Þróttaraliðinu og er óhætt að segja að Þróttararliðið sem heild var ekki upp á sitt besta í dag.

Dómarinn - 6

Jovan svolítið srangur í kvöld og var byrjaður að spjalda eftir tuttug mínútna leik. Hann hélt hins vegar ágætri línu og var að mestu leiti samkvæmur sjálfum sér
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.