Leik lokið!
Vera Varis ver stórkostlega eftir hornspyrnu enb flautað til leiksloka í kjölfarið. Öruggur sigur Þór/KA, þetta var aldrei í hættu. Viðtöl og skýrsla væntanleg á síðuna á eftir.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
87. mín
InnGunnhildur Hjörleifsdóttir
ÚtAnita Lind Daníelsdóttir
87. mín
InnJúlía Björk Jóhannesdóttir
ÚtKristrún Ýr Holm
86. mín
Þór/KA fær hér bara gott næði til að spila boltanum í rólegheitum sín á milli. Þetta er að renna út í sandinn.
83. mín
Elianna Beard með skot en boltinn vel framhjá markinu.
82. mín
InnEmelía Ósk Kruger
ÚtKaren María Sigurgeirsdóttir
82. mín
InnSonja Björg Sigurðardóttir
ÚtÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
81. mín
Nálægt
Setur boltann á markið úr aukaspyrnunni og hann sveif næstum því yfir Shelby en hún nær að grípa boltann á síðustu stundu.
80. mín
Gult spjald
Bryndís Eiríksdóttir
Bryndís fær hér fyrstu áminningu leiksins. Keflavík fær aukaspyrnu á fínum stað.78. mín
Fyrirgjöf hérna hjá Keflvíkingum sem Shelby Money grípur inn í. Verið rólegur dagur á skrifstofunni hjá henni.
76. mín
InnSigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir
ÚtAlma Rós Magnúsdóttir
76. mín
InnAnita Bergrán Eyjólfsdóttir
ÚtMelanie Claire Rendeiro
74. mín
InnBríet Jóhannsdóttir
ÚtHulda Björg Hannesdóttir
74. mín
InnSteingerður Snorradóttir
ÚtUna Móeiður Hlynsdóttir
71. mín
FJÖGUR!
Karen María Sigurgeirsdóttir
Regina Fiabema búin að eiga afskaplega erfiðan síðari hálfleik. Sendir boltann hér nánast beint á Karen sem á skot sem Varis ver en Karen fær boltann aftur og leikur á Veru og setur boltann í netið.70. mín
Keflavík fær hornspyrnu
Ekkert kom út úr henni
65. mín
Það eru frábærar fréttir fyrir Þór/KA að þær hafa fengið tvo nýja markaskorara hér í dag. Þrjár næst markahæstar með eitt mark.
60. mín
MAAAAARK!
Margrét Árnadóttir
Gerir svo gott sem út um leikinn! Karen María á skot sem fer í stöngina og Margrét nær að fylgja á eftir og kemur boltanum yfir línuna. Aðdragandinn heldur klaufalegur þar sem það var löng sending fram og Regina Fiabema á slæman skalla beint fyrir fætur Karenar.58. mín
Maaaaark!
Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (stoðsending: Karen María Sigurgeirsdóttir )
Karen María leggur boltann út á Ísfold sem lætur vaða og boltinn fer í netið! Heimakonur komnar með tveggja marka forystu!57. mín
Iðunn aftur með skot við D-bogann en boltinn rétt framhjá markinu.
54. mín
Dauðafæri!
Iðunn Rán Gunnarsdóttir í dauðafæri! Er ansi nálægt Veru Varis eog skýtur beint á hana.
53. mín
Margrét Árnadóttir með skot sem Vera Varis nær að verja í horn.
51. mín
Þór/KA fær hornspyrnu
Keflvíkingar í nauðvörn en koma boltanum að lokum í horn.
46. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Skipting hjá Þór/KA í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Nokkuð bragðlítill leikur hingað til. Við höfum þó fengið mark, vonandi verða þau fleiri í þeim síðari.
44. mín
Sóknarleikur Keflvíkinga ansi bitlaus. Mikið um slakar fyrirgjafir.
40. mín
Nú lá Hulda Ósk, ökklinn eitthvað að stríða henni sýndist mér. Hún er komin aftur inn á völlinn.
37. mín
InnSalóme Kristín Róbertsdóttir
ÚtElfa Karen Magnúsdóttir
Keflavík gerir hér breytingu á liði sínu. Virtist hafa tognað eitthvað
32. mín
Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir með langa sendingu inn á teiginn, Sandra María með skallann en boltinn fer frétt framhjá.
30. mín
Susanna Joy með sendingu inn á teiginn en þar er enginn Keflvíkingur og boltinn fer aftur fyrir.
26. mín
Þór/KA heldur pressunni áfram. Er líklegri til að bæta við en Keflvíkingar að jafna þessa stundina.
21. mín
MAAAARK
Sandra María Jessen (stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir )
Heimakonur eru komnar yfir og það var engin önnur en Sandra María Jessen sem skoraði markið. Fyrirgjöf frá Huldu Ósk beint á pönnuna á Söndru. Þetta var 98 mark hennar í efstu deild. Fáum við þrennu?16. mín
Elfa Karen Magnúsdóttir að sleppa alein í gegn en Shelby Money kemur vel út á móti henni og bjargar Þór/KA. Vörnin galopnaðist þarna. Illa farið með dauðafæri þarna hjá Elfu
11. mín
Keflavík fær hornspyrnu
Hornið teklið stutt, fyrirgjöf sem Þór/KA nær að koma frá svo rennur þetta út í sandinn.
8. mín
Kristrún Ýr Hólm með skot fyrir utan teiginn sem fer beint á Shelby Money.
5. mín
Karen María skallar boltann inn fyrir á Söndru nöfnu sína, hún nær ekki nægilega góðu valdi á boltanum og tekur skot sem fer yfir markið.
2. mín
Bryndís Eiríksdóttir kemur á fulla ferð og sparkar Susönnu Joy Friedrichs niður, hún liggur aðeins eftir en er klár í að halda áfram. Aukaspyrna dæmd á miðjum vellinum.
1. mín
Karen María Sigurgeirsdóttir kemur þessu af stað
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völl
Þetta er að bresta á!
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Byrjunarliðin eru komin inn. Þau má sjá hér sitthvorumegin við textalýsinguna.
Það er ein breyting á hvoru liði. Þór/KA lagði Víking fyrir sunnan í síðustu umferð. Bryndís Eiríksdóttir kemur inn í liðið í stað Hildar Önnu Birgisdóttur sem er ekki í leikmannahópnum.
Keflavík tapaði gegn Val í Keflavík. Regina Fiabema kemur inn í liðið á kostnað Salóme Kristínar Róbertsdóttur sem sest á bekkinn.
Fyrir leik
Hafrún Rakel spáir í spilin
Landsliðskonan Hafrún Rakel Halldórsdóttir, sem spilar með Bröndby í Danmörku, spáir í leikina sem eru framundan og stefnir á að ná fimm réttum.
Þór/KA 3 - 1 Keflavík
Boginn… segir allt sem segja þarf. Sandra heldur áfram að gera það sem hún gerir best og setur tvö í 3-1 sigri.

Fyrir leik
Dómarateymið
Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með flautuna hér í kvöld. Bergvin Fannar Gunnarsson og Sigurjón Þór Vignisson verða honum til aðstoðar. Aðalsteinn Tryggvason er fjórði dómari og Bragi Bergmann er eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
Keflvíkingar án stiga
Þetta hefur verið erfið byrjun hjá Keflvíkingum en liðið er án stiga á botni deildarinnar. Liðið hefur spilað gegn bæði Val og Breiðablik. Liðið komst yfir gegn Val í fyrri hálfleik en missti forystuna í þeim síðari.
Breiðablik 3-0 Keflavík
Keflavík 2-3 Stjarnan
Fylkir 4-2 Keflavík
Keflavík 1-2 Valur

Fyrir leik
Sandra María á eldi
Þór/KA er í 3. sæti en liðið tapaði gegn Val í fyrstu umferð en hefur unnið þrjá leiki í röð. Liðið hefur skorað níu mörk en Sandra María Jessen hefur skorað átta af þeim. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir jafnaði metin gegn Víkingum í síðustu umferð áður en Sandra tryggði liðinu 2-1 sigur.
Valur 3-1 Þór/KA
FH 0-4 Þór/KA
Þór/KA 2-1 Þróttur R.
Víkingur R. 1-2 Þór/KA

Fyrir leik
Góða kvöldið
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Keflavíkur í 5. umferð Bestu deildar kvenna. Leikurinn fer fram í Boganum á Akureyri.



