Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Þróttur R.
Þróttur R.
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
0 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 183' Oumar Diouck
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: Ekki hægt að byrja þetta betur hjá Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Það var mikil barátta í þessum leik og hann gat fallið hvoru megin sem er. Það voru hinsvegar Njarðvíkingar sem áttu frábæra skyndisókn sem skilaði marki og það skildi liðin af þegar uppi er staðið.

Bestu leikmenn

1. Aron Snær Friðriksson

Var frábær í marki Njarðvíkinga. Varði í tvígang algjör dauðafæri frá heimamönnum. Var öflugur í föstum leikatriðum og var öryggið uppmálað.

2. Oumar Diouck

Skoraði markið sem skildi liðin af eftir frábæra skyndisókn. Hefur farið vel af stað á tímabilinu.

Atvikið

Sigurður Steinar Björnsson fer niður í baráttunni við Tómas Bjarka Jónsson í teig Njarðvíkinga í stöðunni 0-0 og vildi fá víti. Stórt atvik á mikilvægum tímapunkti sem Erlendur Eiríksson ákvað að dæma ekki á.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvíkingar eru með fullt hús á toppi deildarinnar. Þróttarar eru áfram með eitt stig eftir þrjár umferðir.

Vondur dagur

Sóknarmenn liðana fengu ekki beint að láta ljós sín skína hér í dag. Var taktískur leikur og ekki mikið um opin marktækifæri. Njarðvíkingar réðu illa við styrkin í Cristofer Rolin þegar hann komst á boltanns svo kannski slæmur dagur hjá Þrótti að koma boltanum ekki oftar á Rolin.

Dómarinn - 6

Heilt yfir vel dæmt. Það er bara þetta vítaspyrnukall frá Þrótti sem hægt er að setja spurningarmerki við. Stórt atvik sem hefði sennilega breytt leikmyndinni. Hef ekki séð atvikið aftur svo Erlendur sleppur með einhvern dauðadóm frá mér og við förum milliveginn í 6. Uppfærist í 8 ef þetta var rétt kall annars niður í 4 ef þetta var rangt kall.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.