Hans Viktor Guðmundsson (stoðsending: Daníel Hafsteinsson )
KA er komið yfir! Hans Viktor skallar boltann í netið eftir hornspyrnu frá Daníel!
KA er komið yfir! Hans Viktor Guðmundsson skallar hornspyrnu Daníels Hafsteinssonar nokkuð auðveldlega í netið. 2-1 á Akureyri ? pic.twitter.com/FMNIlJFq0n
Rodri jafnar metin! Stekkur á boltann með fæturnar á undan sér eftir fyrirgjöf frá Birgi og kemur boltanum í netið af stuttu færi!
Seinni hálfleikur rétt farinn af stað þegar KA jafnar! Rodrigo Gomes skilar fyrirgjöf Birgis Baldvinssonar í markið og staðan er 1-1 á Akureyri ???? pic.twitter.com/0DcN2xueey
Birgir Baldvinsson fellur inn á teig Vestra, einhver köll eftir víti en Erlendur segir að boltinn hafi verið á milli. Held þetta hafi verið rétt kall hjá honum.
46. mín
Síðari hálfleikur er farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
+4
Kominn hálfleikur. KA menn verið með yfirhöndina nánast allan leikinn en Vestri refsar á lokasekúndunum!
45. mín
Gult spjald
Sergine Modou Fall
45. mín
MAAAARK!!
Jeppe Gertsen (stoðsending: Benedikt V. Warén)
Sýnist það vera Jeppe sem kemur boltanum í netið eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnu frá Benedikt Waren. Algjörlega gegn gangi leiksins en ekki spurt af því!
Vestri skorar og leiðir 0-1 í hálfleik! Jeppe Gertsen kemur boltanum í netið eftir flotta aukaspyrnu Benedikt Warén ? Gertsen elskar að skora á Akureyri því hann skoraði einmitt sigurmarkið gegn KA í Bestu deildinni fyrir um þremur vikum síðan! pic.twitter.com/2AwifF2nRO
Fjórum mínútum bætt við. Mikið verið um meiðsli hér.
44. mín
Ívar Örn Árnason með hörku skalla sem Marvin ver glæsilega í horn
43. mín
Gult spjald
Jeppe Gertsen
41. mín
Hans Viktor fellur inn á teignum. Menn kalla eftir vítaspyrnu en ekkert dæmt
40. mín
Ibrahima Balde brýtur á Hallgrím. Aukaspyrna á stórhættulegum stað. Daníel skýtur í vegginn.
36. mín
Gult spjald
Birgir Baldvinsson
Missir boltann útaf og sparkar honum svo í burtu.
31. mín
Birgir Baldvins og Andri Fannar spila vel saman. Birgir á viðstöðulaust skot úr erfiðu færi og boltinn fer beint á Marvin.
27. mín
Fyrirgjöf á Bjarna Aðalsteinsson. Hann nær ekki krafti í skallann og Marvin handsamar knöttinn.
21. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtFriðrik Þórir Hjaltason
Tveir að fara meiddir af velli
21. mín
InnElvar Baldvinsson
ÚtElmar Atli Garðarsson
19. mín
RODRI
Rodri í dauðafæri. Birgir Baldvins með fyrirgjöfina og Rodri setur boltann yfir af stuttu færi.
15. mín
Pétur Bjarnason með áhugaverða tilraun. Jajalo aðeins út úr markinu og Pétur tekur skotið af löngu færi en boltinn fer yfir markið.
12. mín
Elmar Atli steinlá eftir viðskiptivið Daníel Hafsteeinsson. Sýndist hann bara detta á KA manninn. Er staðinn upp og klár í að halda áfram.
7. mín
Hallgrímur Mar að sleppa í gegn, setur boltann í netið en það var búið að flauta rangstöðu. Þetta var tæpt, spurning hvort Elmar Atli Garðarsson hafi gert hann réttstæðan.
4. mín
KA fær hornspyrnu
Skalli framhjá markinu
1. mín
Fyrsta skotið að marki
KA fljótir upp í sókn. Hallgrímur Mar fær boltann rétt fyrir utan vítateig og á áhugalaust skot vel framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Heiamenn koma þessu af stað
Fyrir leik
Þetta er að bresta á!
Liðin eru að ganga út á völl.
Fyrir leik
Breytt um markmenn, Viðar á bekknum og Harley ekki í hóp
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Val í deildinni á laugardag. Kristijan Jajalo kemur í markið fyrir Steinþór Má Auðunsson og Andri Fannar kemur inn fyrir Ásgeir Sigurgeirsson. Stubbur og Ásgeir eru báðir á bekknum. Harley Willard er ekki í hópnum í dag og á bekknum í hans stað er Hákon Atli Aðalsteinsson.
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir fimm breytingar frá tapinu gegn ÍA í deildinni á laugardag. Marvin Darri kemur í markið fyrri William Eskelinen. Þeir Elvar Baldvinsson, Vladimir Tufegdzic, Nacho Gil og Sergine Fall taka sér einnig sæti á bekknum. Inn koma þeir Johannes Selvén, Gunnar Jónas, Pétur Bjarna og Friðrik Þórir. Tarik Ibrahimagic er fjarri góðu gamni.
Arnar Daði Arnarsson, Sérfræðingurinn sjálfur, spáir í leikina.
KA 1 - 0 Vestri Á meðan það virðist vera góð ára yfir Þorpinu er ekki alveg sömu sögu að segja í Brekkunni. Haddi þjálfari KA virðist vera spenntur fyrir komandi fallbaráttu í Bestu-deildinni en hvort hann sé jafn spenntur fyrir bikarnum verður að koma í ljós. Einhvernveginn held ég að Vestri hafi ekki breiddina í að vera einbeita sér að því að halda sér uppi í Bestu og ná árangri í bikarnum og KA menn nýta sér það. Grímsi minn skorar eina mark leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Mar skorar eina mark leiksins
Fyrir leik
Dómarateymið
Erlendur Eiríksson verður með flautuna hér í kvöld. Ragnar Þór Bender og Antoníus Bjarki Halldórsson eru honum til aðstoðar. Sveinn Arnarsson er fjórði dómari og Valdimar Pálsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
KA og Vestri mættust í 3. umferð Bestu deildarinnar í sumar hér á Greifavellinum þar sem Vestri hafði betur. Jeppe Gertsen skoraði eina mark leiksins á síðustu andartökunum. Þetta var fyrsti sigur Vestra í efstu deild en KA er aðeins með tvö stig eftir sex umferðir. Vestri er nú komið með 6 stig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jeppe Gertsen
Fyrir leik
Leið Vestra í 16 liða úrslitin
Nýliðar Vestra í Bestu deildinni eru komnir með tvo sigra í deildinni. Liðið komst í 16 liða úrslit eftir sigur á Haukum í Hafnarfirði.
Staðan var 2-2 í hálfleik en tvö mörk frá Vestra skiluðu þeim sigrinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leið KA í 16 liða úrslitin
Bæði lið hófu leik í 32 liða úrslitunum. KA hefur farið ansi illa af stað í sumar en liðið fékk tækifæri til að koma sér almennilega af stað þegar liðið fékk Lengjudeildarlið ÍR í heimsókn í 32 liða úrslitunum.
Það reyndist hins vegar erfitt verkefni fyrir þá þar sem liðið þurfti framlengingu til að tryggja sér sigurinn. Harley Willard skoraði fyrir KA í venjulegum leiktíma en Bergvin Fannar Helgason jafnaði metin á lokasekúndunum, það var síðan Daníel Hafsteinsson sem tryggði liðinu sigur seint í framlengingunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Góða kvöldið
Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik KA og Vestra í 16 liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á Greifavellinum á Akureyri.