Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla
Kórinn
HK
HK
1 - 2
Valur
Valur
0 - 153' Jónatan Ingi JónssonArnþór Ari Atlason 64'1 - 11 - 279' Jónatan Ingi Jónsson
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Leik lokið!
Sterkur sigur Vals staðreynd
Valsarar fara með sigur af hólmi í áhugaverðum leik hér í Kórnum.
Frekari umfjöllun væntanleg.
93. mín
Stöngin
Boltinn berst á Patrick Pedersen í teignum hann nær að pikka í boltann í engu jafnvægi, boltinn fer í stöngina og rúllar meðfram línunni áður en Arnar Freyr handsamar boltann.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
Valur
90. mín
Gult spjald

Guðmundur Andri Tryggvason

HK
87. mín
InnHákon Ingi Jónsson
ÚtAtli Hrafn Andrason
HK
87. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtAtli Arnarson
Valur
85. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtAdam Ægir Pálsson
83. mín
Valsarar fá aukaspyrnu fyrir utan teig. Tryggvi Hrafn á hörkuskot en enn ver Arnar Freyr frábærlega.
Valur
79. mín
Aftur er það Jónatan!

Jónatan Ingi Jónsson

Jónatan fær skoppandi bolta úr teignum leggur hann fyrir sig og klínir boltanum í hornið.
Valsarar leiða á ný!
77. mín
Valsarar ógna mikið þessa stundina.
75. mín
STÖNGIN!
Adam Ægir með stangarskot úr teignum!
71. mín
Tryggvi Hrafn með skot fyrir utan teig sem Arnar Freyr ver örugglega.
HK
70. mín
InnEiður Gauti Sæbjörnsson
ÚtMagnús Arnar Pétursson
66. mín
Aron Jó með þrumufleyg sem Arnar ver frábærlega!
HK
64. mín
ÞETTA HEF ÉG ALDREI SÉÐ ÁÐUR

Arnþór Ari Atlason

Frederik Schram hreinsar boltann, hann er aðeins frá markinu boltinn fer beint á kollinn á Arnþóri Ara sem skorar með skalla frá sirka 35 metrum, geri aðrir betur!
Sannkallað sprellimark.
62. mín
Patrick Pedersen með tilraun sem fer hátt yfir mark HK-inga.
60. mín
Magnús Arnar með skot fyrir utan teig sem fer yfir mark gestanna.
Valur
60. mín
InnHörður Ingi Gunnarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
55. mín
Patrick Pedersen með skalla sem Arnar ver í horn.
Valur
53. mín
Valsarar leiða!

Jónatan Ingi Jónsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)

Aron Jó á sendingu upp í horn á Tryggva Hrafn sem kemur boltanum fyrir á Jónatan Inga sem klárar vel.
Þarf ekki alltaf að vera flókið!
Valur
46. mín
InnPatrick Pedersen
ÚtBjarni Mark Antonsson
Valur
46. mín
InnBirkir Már Sævarsson
ÚtJakob Franz Pálsson
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Valsarar gera tvöfalda breytingu í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
+2

Liðin skilja jöfn að í hálfleik. Valsarar búnir að fá hættulegri færi en Arnar Freyr er búinn að verja vel í marki HK-inga. Heimamenn mjög þéttir varnarlega og ógna þegar þeir komast á sóknarþriðjunginn.
45. mín
Sigurður Egill í góðri stöðu en Arnar Freyr ver mjög vel.
42. mín
Adam Ægir gerir vel og kemur sér í skotið sem fer rétt framhjá.
41. mín
Arnþór Ari fer ansi harkalega í Bjarna Mark, Arnþór verður að fara varlega nýbúinn að fá gula spjaldið.
39. mín
Jónatan Ingi með þrumuskot fyrir utan teig sem Arnar ver.
HK
37. mín
Gult spjald

Arnþór Ari Atlason

Arnþór fer hátt upp með takkana í einvígi við Hólmar og fær þar af leiðandi fyrsta gula spjald leiksins.

Eftir að hafa séð þetta í endursýningu í Spideo er ég handviss um að Arnþór hafi farið í andlitið á Hólmari, Arnþór heppinn að sleppa með gult þarna.
35. mín
Atli Hrafn rís manna hæst í teignum og á skalla sem fer framhjá marki Valsara.
30. mín
HK-ingar fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, Nunn kemur boltanum á Ísak Aron sem skallar framhjá markinu.
25. mín
Valsarar að vakna
Aron Jó í þröngri stöðu en nær góðu skoti sem Arnar Freyr ver frábærlega, boltinn berst svo út á Adam Ægi sem á skot framhjá.
24. mín
Jakob Franz með frábæra fyrirgjöf á fjær þar er Sigurður Egill sem setur boltann rétt framhjá marki HK.
18. mín
Frábært spil Valsara
Eftir frábært spil fær Lúkas Logi boltann í teignum, Lúkas fer í skotið en varnarmaður kemst fyrir boltann og í hornspyrnu.
16. mín
Ísak Aron með skot hátt yfir mark Valsara.
15. mín
HK-ingar mjög líflegir hér fyrsta korterið.
15. mín
Brynjar Snær með skot frekar beint á Frederik Schram sem ver örugglega.
13. mín
Atli Arnarson með ágætis tilraun fyrir utan teig sem fer framhjá marki Vals.
12. mín
Gott færi HK
Atli Hrafn hælar boltann upp í loft eftir fyrirgjöf á Arnþór Ara sem skallar boltann á markið en Schram ver vel.
Þetta hefði verið sturlað mark!
8. mín
George Nunn með þrumuskot fyrir utan teig sem fer rétt framhjá marki gestanna.
7. mín
Valsarar meira með boltann þessar upphafsmínútur.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Ómar Ingi þjálfari HK setur bróður sinn Ísak Aron inn í byrjunarliðið, en þeir bræður mæta einmitt þriðja bróðurnum honum Orra Sigurði sem er í byrjunarliði Vals.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn!
Valsarar gera þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá síðasta deildarleik, inn koma þeir Sigurður Egill, Adam Ægir og Tryggvi Hrafn, í stað Gylfa Þórs, Patrick Pedersen og Birkis Más.

Ómar gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá sigrinum gegn KR. Inn koma þeir Atli Arnarson og Ísak Aron, í stað Atla Þórs og Þorsteins Arons sem eru báðir utan hóps líklegast vegna meiðsla.
Ívar Orri Gissurason er kominn í leikmannahóp HK-inga en hann var í námi í Bandaríkjunum í upphaf tímabils.
Fyrir leik
Fyrir leik
Gylfi og Arnar ekki með í kvöld
Arnar Grétarson er að taka út leikbann og verður því ekki á hliðarlínunni í kvöld.

Gylfi Þór Sigurðsson verður einnig ekki með Val í kvöld, þetta kemur fram á 433.is í dag.

Gylfi er að glíma við meiðsli í baki. Hann æfði lítið fyrir leikinn gegn Breiðabliki, spilaði svo gegn KA en var ekki í hópnum gegn Aftureldingu á föstudag.

433 ræddi við Arnar Grétarsson, þjálfara Vals, og sagði hann frá því að planið sé að Gylfi fari í myndatöku.

„Hann er allavega ekki með í kvöld væntanlega?" spurði Helgi Sigurðsson í viðtalinu.

„Nei, hann er ekki að starta (í byrjunarliðinu) í kvöld," sagði Arnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Valsarar áfram í bikar
Bæði lið tóku þátt í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins sem leikið var í nú á dögunum.

HK-ingar heimsóttu Fylki í Árbænum. Ómar Ingi stillti upp ungu og óreyndu liði í bikarnum. Leikar enduðu 3-1 Fylki í vil og þar með duttu HK-ingar úr bikarnum.

Valsarar fóru í heimsókn í Mosfellsbæ þar sem Afturelding tók á móti þeim í skemmtilegum leik. Valsarar unnu góðan 3-1 sigur og tryggðu sér þáttökurétt í 8-liða úrslitum þar sem þeir mæta Keflavík á útivelli.

Mynd: Raggi Óla
Fyrir leik
Heimavöllur hlýjunnar heilsar!
Gleðilegan þriðjudaginn kæru lesendur og veriði velkomin í beina textalýsingu úr Kórnum. Hér á eftir munu HK-ingar taka á móti Völsurum í sjöundu umferð Bestu-deildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.