Leik lokið!
Flautað af þegar Fylkir var að gera harða hríð að marki Stjörnunnar. Heimakonum er létt! Vðtöl og skýrsla seinna í kvöld.
92. mín
Gult spjald
Hulda Hrund Arnarsdóttir
Hindra aukaspyrnu.92. mín
Hangið við hornfána
Stjarnan reynir að tefja með að hanga við hornfánann og bíða eftir að klukkan gangi niður.
91. mín
Stjarnan reynir að vinna niður klukkun með því að fara sér hægt.
90. mín
Þrjár mínútur í viðbótartíma.
88. mín
Gyða Kristín bjargar á línu frá Kayla Bruster. Í annað sinn i leiknum sem varið er á línu frá Bruster.
88. mín
Fast skot frá Evu Rut sem Auður varði í horn.
86. mín
Gult spjald
Arna Dís Arnþórsdóttir
82. mín
InnBirta Margrét Gestsdóttir
ÚtGuðrún Karítas Sigurðardóttir
82. mín
InnKolfinna Baldursdóttir
ÚtKlara Mist Karlsdóttir
82. mín
Lítil hætta við mörkin síðustu mínúturnar.
73. mín
InnHrefna Jónsdóttir
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
71. mín
MAAAARK!
Eva Rut Ásþórsdóttir
Geggjjað mark beint úr aukaspyrrnu. Nú gæti orðið spenna síðasta kaflann í leiknum. 2-1.68. mín
Andrea Mist með gott skot að marki sem Tinna Brá varði.
66. mín
Andrea Mist bjargar á marklínu. Þórhildur tók hornspyrnu, beint á kollinn á Kayla Bruster, boltinn var á leið í markið þegar Andrea Mist bjargaði.
63. mín
InnMarija Radojicic
ÚtElísa Björk Hjaltadóttir
59. mín
Gult spjald
Henríetta Ágústsdóttir
Brot í miðjuhringnum. Klara Mist Karlsdóttir þurfti aðhlynningu en heldur leik áfram.54. mín
Gult spjald
Mist Funadóttir
Stöðvaði hraða sókn með að rífa í mótherjann.50. mín
Caitlin Meghani Cosme með gott skot en rétt framhjá marki Fylkis.
50. mín
Hulda Hrund í þröngu færi í teignum, Tinna Brá ver í horn.
47. mín
Úlfa Dís með veikt skot að marki. auðvelt fyrir Tinnu Brá.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn. Engin breyting á liðunum í hálfleik.
45. mín
Kominn hálfleikur. Stjarnan leiðir 2-0.
45. mín
MAAAARK!
Hannah Sharts
Eftir harða hríð að marki Fylkis endaði boltinn fyrir fótum Hönnu sem dúndraði á markið og Stjarnan komin í 2-0.43. mín
Hulda Hrund ætlar sér að skora aftur! Tvö þrumuskot með sekúndu millibili, seinna fór í Úlfu og útaf. Mínútu síðar komin ígott færi en Fylkir hreinsaði.
40. mín
Eva Rut Ásþórsdóttir með skot yfir mark Stjörnunnar.
39. mín
Fylkir er að reyna að bæta í og hafa fengið þrjár hornspyrnur á skömmum tíma sem ekkert kom þó úr.
35. mín
Gyða Kristín með skot framhjá.
33. mín
Gott samspil hjá Úlfu Dís og Gyðu endar á að Gyða skýtur fast að marki en Tinna Brá vandanum vaxin í markinu.
27. mín


Nokkrar myndir



25. mín
Stjarnan er komin yfir
Hulda Hrund Arnarsdóttir
Hulda Hrund fékk sendingu innfyrir vörnina á auðum sjó og skoraði af miklu öryggi. Stjarnan komin í 1 - 0.17. mín
Henríetta Ágústsdóttir með skot hátt yfir mark Fylkis.
13. mín
Frábær sprettur hjá Guðrúnu Karitas sem þrumaði að marki en í utanverða stöngina og framhjá.
8. mín
Abigail Patricia Boyan með skot að marki Stjörnunnar en framhjá.
7. mín
Hinum megin á vellinum svasrar Fylkir með skoti yfir mark Stjörnunnar.
6. mín
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir með fast skot að marki sem Tinna Brá Magnúsdóttir varði.
1. mín
Fylkir byrjar með boltann og sækir í áttina að Árbænum. Vignir Snær Stefánsson aðstoðarþjálfari Stjörnunnar klifraði upp í markið og bjargaði málum.
Fyrir leik
Smá töf
Smá töf á leiknum. Eitthvað bilað í öðru markinu.
Fyrir leik
Liðin eru að hita upp í Miðgarði. Hér erum við laus við allt vesen frá veðri og vindum.
Fyrir leik
Spákonan
Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir tók það að sér að spá í spilin fyrir umferðina sem er framundan fyrir Fótbolta.net.
Stjarnan 0 - 2 Fylkir
Mínar konur í Fylki hafa tapað síðustu tveimur leikjum en mæta meira en klárar í þennan leik og vinna öruggan 0-2 sigur. Eva Rut fyrirliði er með eitraðan fót og setur hann beint úr aukaspyrnu.
Stjarnan 0 - 2 Fylkir
Mínar konur í Fylki hafa tapað síðustu tveimur leikjum en mæta meira en klárar í þennan leik og vinna öruggan 0-2 sigur. Eva Rut fyrirliði er með eitraðan fót og setur hann beint úr aukaspyrnu.

Fyrir leik
Færður inn í hús eftir hádegi í dag
Leikurinn átti að fara fram á Samsungvellinum en það er gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu og því var ákveðið eftir hádegi í dag að fara leikinn inn í hús þar sem er logn og engin úrkoma.


Fyrir leik
Gengið til þessa
Leikurinn í dag er í 6. umferð Bestu-deildar kvenna. Liðin eru á svipuðum stað í töflunni eftir fyrstu fimm umferðirnar.
Heimakonur í Stjörnunni eru î 6. sæti deildarinnar með 6 stig, hafa unnið tvo og tapað þremur.
Gestirnir í Fylki eru í 8. sætinu, hafa unnið einn, gert tvö jafntefli og tapað tveimur. Eru því með fimm stig.
Heimakonur í Stjörnunni eru î 6. sæti deildarinnar með 6 stig, hafa unnið tvo og tapað þremur.
Gestirnir í Fylki eru í 8. sætinu, hafa unnið einn, gert tvö jafntefli og tapað tveimur. Eru því með fimm stig.
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins í dag er þekktur úr fótboltaheiminum, Jens Elvar Sævarsson sem spilaði í fjölda ára með Þrótti er orðinn dómari í dag.
Aðstoðarmenn hans á línunum eru þeir Patryk Emanuel Jurczak og Ronnarong Wongmahadthai. Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er svo skiltadómari.
Skagmaðurinn skeleggi Ólafur Ingi Guðmundsson er svo fulltrúi KSÍ á staðnum og hefur eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.
Aðstoðarmenn hans á línunum eru þeir Patryk Emanuel Jurczak og Ronnarong Wongmahadthai. Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson er svo skiltadómari.
Skagmaðurinn skeleggi Ólafur Ingi Guðmundsson er svo fulltrúi KSÍ á staðnum og hefur eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.

Fyrir leik
Leikdagur í Miðgarði
Góðan daginn og verið velkomin í beina tetalýsingu frá Miðgarði í Garðabæ.
Hér mætast Stjarnan og Fylkir í Bestu-deild kvenna. Leikurinn hefst klukkan 18:00.
Hér mætast Stjarnan og Fylkir í Bestu-deild kvenna. Leikurinn hefst klukkan 18:00.







