Fotbolti.net
Einar Kristinn Kárason
Lengjudeild karla
Dalvíkurvöllur
Dalvík/Reynir
Dalvík/Reynir
2 - 2
Grótta
Grótta
Áki Sölvason 16'1 - 0Amin Guerrero Touiki 30'2 - 02 - 153' Gabríel Hrannar Eyjólfsson2 - 282' Damian Timan95' Christopher Arthur Brazell
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Liðin deila stigunum
Hörkuleikur að baki. Fjögur mörk, tvö á hvort lið og eitt stig sömuleiðis.

Gestirnir náðu að koma til baka í síðari hálfleiknum eftir að heimamenn höfðu haft tveggja marka forustu í leikhléi.

Viðtöl og skýrsla framundan. Takk í dag.
95. mín
Skot!
Gunnlaugur Rafn með hörkuskot fyrir utan teig en framhjá markinu!
95. mín
Horn
Heimamenn fá hornspyrnu.
Grótta
95. mín
Rautt spjald

Christopher Arthur Brazell

Ósáttur við að hafa ekki fengið aukaspyrnuna.
94. mín
D/R fær aukaspyrnu við miðlínu. Síðasti sjéns?
92. mín
Damian spyrnir inn í teig en Alejandro skallar burt.
92. mín
Boltinn kemur inn í teig en heimamenn ná að hreinsa afturfyrir.
91. mín
Langt innkast
Gestirnir fá möguleika til að koma boltanum inn í teig.
90. mín
Lokamínútan
Venjulegur leiktími að líða. Spurning hvað við fáum í uppbót.
84. mín
Allt jafnt á nýjan leik. Spennandi lokamínútur framundan en byrinn er allur með gestunum.
Grótta
82. mín
Skorar

Damian Timan

Fast niðri í hornið vinstra megin. Franko í rétt horn en náði ekki til boltans.
82. mín
Damian fer á punktinn.
80. mín
Víti!
Gunnar Oddur er að dæma víti á heimamenn.

Bæði leikmenn og stúkan alls ekki sammála þessu en það breytir engu. Grímur var sá sem sótti þennan dóm.
78. mín
Skot
Fín tilraun fyrir utan teig. Grímur að mér sýndist eiga skotið en Franko ver vel.

Arnar Þór lætur til sín taka. Skapar þetta færi með því að vinna boltann í loftinu.
Grótta
76. mín
InnArnar Þór Helgason
ÚtKristófer Melsted
Arnar Þór fer upp á topp. Alvöru hæð í fremstu víglínu.
75. mín
Freyr verst vel gegn Valdimar en hornspyrna niðurstaðan.

Heimamenn gera vel í að losa boltann burt. Sóknarþungi gestanna að aukast.
73. mín
Múrinn
Fast skot en vörnin kemst fyrir boltann. Þarna sluppu heimamenn.
72. mín
Allir leikmenn D/R utan Amin niðri á línu
Dómarinn flautar ..
71. mín
Óbein aukaspyrna!
Gunnar Oddur flautar og dæmir óbeina aukaspyrnu inni í teig heimamanna. Leikmenn fórna höndum.

Dalvík/Reynir
70. mín
InnJóhann Örn Sigurjónsson
ÚtNikola Kristinn Stojanovic
Fyrsta breyting D/R
Nikola átt fínan leik. Jóhann inn.
68. mín
Bannað að ýta
,,Hætt þú að ýta" segir Gunnar Oddur þegar Freyr kvartar undan olnbogaskoti frá Valdimar.
66. mín
Enn ein aukaspyrnan sem gestirnir fá, á nákvæmlega sama stað. Aftur er það Damian yfir boltanum.

Boltinn inn í teig en í gegnum allt og alla. Markspyrna.
63. mín
Færi!
Langt innkast frá hægri inn í teig heimamanna. Gróttumaður nær skalla að marki en nær engum krafti svo boltinn endar í höndum Franko.
61. mín
Önnur aukaspyrna á sama stað. Boltinn dettur dauður inni í teig en gestirnir ná ekki að gera sér mat úr þessu. Sóknin heldur hinsvegar áfram þar til Rúnar Helgi sækir aukaspyrnu.
60. mín
Spyrnan frá Damian góð. Arnar nær skallanum en boltinn vel framhjá markinu.
59. mín
Grímur fær aukaspyrnu úti hægra megin. Gestirnir stilla upp.
58. mín
Horn
Áki tekur spyrnuna. Boltinn inn á teig en aukaspyrna dæmd á Amin sem stjakaði við Rafal í markinu.
57. mín
Lífleg byrjun
Fyrstu tíu mínútur síðari hálfleiks hafa verið æsispennandi. Tæklingar, færi, læti og mark.

Meira svona.
Grótta
55. mín
Gult spjald

Tareq Shihab

Fyrir brot á Amin. Óviljaverk að öllum líkindum en verðskuldaði spjald.
Grótta
53. mín
Gestirnir minnka muninn!

Gabríel Hrannar Eyjólfsson

Axel gerir vel í að lyfta boltanum innfyrir vörn D/R, á Gabríel sem skýtur að marki með vinstri fæti upp í hornið fjær.

Afar snoturt mark.
53. mín
Leikurinn enda á milli í upphafi síðari hálfleiks.
50. mín
Færi
Valdimar með fína tilraun úr teig. Skot með vinstri fæti en yfir markið.
Grótta
46. mín
InnAxel Sigurðarson
ÚtTómas Orri Róbertsson
Tvöföld breyting
Grótta
46. mín
InnValdimar Daði Sævarsson
ÚtAron Bjarki Jósepsson
Tvöföld breyting
46. mín
Leikur hafinn
Síðari hálfleikur
Verk að vinna fyrir gestina sem eru tveimur mörkum undir.
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn leiða með tveimur mörkum
Góður hálfleikur að baki hjá D/R. Amin verið akkilesarhæll Gróttu í fyrri hálfleiknum með bæði stoðsendingu og mark.

Gestirnir hafa séð mikið til boltans og sótt en án þess að skapa sér neitt alvöru marktækifæri.

Spennandi fjörtíu og fimm framundan.
45. mín
Víti?
Grótta vill fá vítaspyrnu eftir að Kristófer lætur vaða að marki. Vilja meina að boltinn hafi farið í hönd leiksmanns D/R.

Tríóið vill meina að ekkert hafi verið að þessu.
44. mín
Spyrnan góð frá Áka en dæmd aukaspyrna svo gestirnir geta andað léttar.
43. mín
Horn
D/R fær horn eftir snarpa sókn.
39. mín
Tareq fer niður í teig heimamanna en ekkert dæmt. Hann var ekki að biðja um neitt sjálfur en félagar hans reyndu að fá eitthvað gefins.
38. mín
Spyrnan frá Áka föst en heimamenn ná að halda sókninni á lífi. Boltinn endar í höndum Rafals fyrir rest.
36. mín
Rúnar Helgi vinnur aukaspyrnu úti vinstra megin. Damian mögulega heppinn að sleppa við spjaldið.

Spyrnan föst fyrir frá Áka en Gróttumenn skalla boltann í horn.
34. mín
Langt innkast
Patrik kastar boltanum inn á teig þar sem Gróttumenn vinna skallann. Boltinn dettur hinsvegar þægilega fyrir Franko sem handsamar.
Dalvík/Reynir
30. mín
Tvö núll

Amin Guerrero Touiki (stoðsending: Freyr Jónsson)

Flott sókn heimamanna!

Freyr gerir vel úti hægra megin og sendir fastann bolta inn í teig meðfram jörðinni. Á ferðinni kemur Amin, tekur snertingu áður en hann skýtur að marki með hægri fæti og boltinn í stöngina vinstra megin og inn.
24. mín
Boltinn í vegginn en heimamenn ná ekki að losa boltann. Grótta fær aðra tilraun hinumegin á vellinum. Stúkan farin að pirra sig á manninum með flautuna.

23. mín
Aukaspyrna við vítateigshorn
Damian fer niður og heimamenn allt annað en sáttir.
Dalvík/Reynir
16. mín
Heimamenn komnir yfir

Áki Sölvason (stoðsending: Amin Guerrero Touiki)

D/R hefur ekki átt margar sóknir í þessum leik en þessi bar árangur.

Frábær pressa frá Amin verður til þess að boltinn berst á Áka sem klárar af stuttu færi. Mögulega stoðsending frá Arnari í vörninni en gefum Amin þetta.
15. mín
Gestirnir vilja aukaspyrnu við vítateigshornið þegar Tómas Orri fer niður. Ekkert dæmt.
10. mín
Brot eða víti?
Langur bolti frá öftustu línu Gróttu í þá fremstu þar sem virðist brotið á Matheus. Ekkert dæmt og þá vill Tómas Orri fá víti.

Gunnar Oddur veifar höndum og dæmir ekkert.
9. mín
Skýrslan í ruglinu og stemmir ekki við lið Gróttumanna enda tveir leikmenn skráðir númer 22.

Skal gera mitt allra besta við að koma þessu sem réttast frá mér.
6. mín
Beint í hendur Franko.
6. mín
Horn
Gestirnir eiga hornspyrnu.
Dalvík/Reynir
2. mín
Galið spjald

Amin Guerrero Touiki

Skýtur að marki eftir að flautað hafði verið. Alveg tilgangslaust en Gunnar Oddur gefur enga sjénsa.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru hvítklæddir gestirnir sem hefja leik.
Fyrir leik
Hér koma liðin
Leikmenn ganga inn á gras og eru kynntir til leiks af látúnsbarkanum Magna Þór Óskarssyni.

Góða skemmtun.
Fyrir leik
Korter
Styttist í að leikmenn beggja liða gangi aftur til búningsherbergja. Stundarfjórðungur til stefnu.
Fyrir leik
Í beinni á Youtube
Fyrir leik
Gengi liða
Fyrir leik sitja gestinir í þriðja sæti deildarinnar með átta stig en heimamenn í sjöunda með fimm.

D/R gerði jafntefli úti gegn ÍR í síðustu umferð en Grótta vann 4-3 heimasigur gegn Leikni í hörkuleik.
Fyrir leik
Velkomin til leiks
Vel viðrar til knattspyrnuiðkunar á Dalvík þrátt fyrir að minna sjáist til sólar.

Sjómannadagshelgin er gengin í garð og vonandi verðum vel mætt í stúkuna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.