Fotbolti.net
@dani_darriDaníel Darri Arnarsson
Leiknir R.
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Bongó
2 - 3
Grindavík
Grindavík
0 - 14' Einar Karl Ingvarsson Shkelzen Veseli 23'1 - 11 - 259' Dennis Nieblas Moreno1 - 384' Dagur Ingi Hammer Gunnarsson Róbert Quental Árnason 88'2 - 3
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Jafnteflin búin í bili hjá Grindavík

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn höfðu bara átt að negla meira á markið í fyrri hálfleik þar sem þeir höfðu öll völd á leiknum en um leið og seinni byrjaði þá stigu bara Grindvíkingar upp og kláruðu þau færi sem þeir fengu sem gerði muninn á liðunum í dag.

Bestu leikmenn

1. Einar Karl Ingvarsson, Grindavík

Fannst erfitt að velja tvo bestu menn vallarins þar sem þetta var svoldið járn við járn en Einar Karl skoraði þetta mikilvæga fyrsta mark snemma leiksins og var algjör fighter að 75 mín þegar hann var tekinn af velli þannig hann fær mann leiksins hér í dag.

2. Róbert Quental, Leiknir R.

Róbert var frábær í leiknum,skorar sárabótar markið frábærlega og var að ógna mikið þar sem Grindvíkingar voru í alveg smá brasi með hann sama má eiginlega segja um Aron og Jón Hrafn þeir voru í brasi með þá.

Atvikið

Held bara fyrsta markið sem Einar Karl fær á færibandi frá Andi Hota og hann klárar það líka bara drullu vel má ekkert taka það af honum.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn sitja en á botni deildarinnar með 3 stig. Grindavík koma sér upp í 7.sæti með 7 stig með leik til góða og eru bara komnir í helvíti fína stöðu meðan við hvernig menn voru farnir að tala um liðið.

Vondur dagur

Gæti held ég gefið Andi Hota þetta þar sem hann gefur fyrsta markið, hann sendir bara á Einar Karl sem skokkar síðan bara í gegn og leggur hann framhjá Viktori sem var alveg smá högg í góða byrjun Leiknismanna.

Dómarinn - 7

Gunnar Oddur fær solid sjöuna þar sem maðurinn hefði alveg getað sleppt að flauta stundum en fínasti leikur hjá honum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.