SKÝRSLAN: Stjarnan aftur á langþráða sigurbraut
Hvað réði úrslitum?
Frábært einstaklinsframtak frá Óla Val Ómarssyni braut ísinn fyrir Stjörnuna og snéri leiknum þeim í hag. Stjarnan skoraði svo tvö mörk í uppbótartíma og FH eitt en þegar öllu verður á botnin hvolft þá er þetta sennilega sanngjarn sigur þegar uppi er staðið.
Bestu leikmenn
1. Óli Valur Ómarsson
Var frábær í liði Stjörnunnar í kvöld. Skoraði stórkostlegt mark til að koma Stjörnunni yfir í leiknum til að kóróna frábæra frammistöðu. Var að valda ursla hægra megin á vellinum og var bara heilt yfir besti maður vallarins
2. Emil Atlason
Emil fylgir fast á hæla Óla Vals en hann var frábær uppi á topp fyrir Stjörnuna í kvöld. Skoraði fjórða markið til að kóróna flotta frammistöðu en hann var einnig frábær í barningnum við varnarmenn FH.
Atvikið
Markið hans Óla Vals var frábær. Vinnur boltann djúpt á eigin vallarhelming og þýtur svo af stað upp hægri vænginn og keyrir inn að markteig og setur boltann þéttingsfast í fjærhornið og kemur Stjörnunni yfir.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan kemst aftur á sigurbraut og lyftir sér upp í 5.sætið. FH hinsvegar fellur niður í 6.sætið.
Vondur dagur
Sigurður Bjartur átti ekkert spes dag fyrir framan markið. Komst einusinni í einn á einn við Mathias Rosenorn en lét verja frá sér. Sóknarlína FH átti ekkert spes dag í kvöld eða bara FH liðið ef við tökum Björn Daníel út fyrir sviga.
Dómarinn - 10
Frábærlega dæmdur leikur. Fannst allar ákvarðanir réttar og fékk teymið jafnvel hrós frá Jökli þjálfara Stjörnunnar eftir leik fyrir virkilega vel dæmdan leik. Leyfði smá hörku og leikurinn fékk að fljóta.




