Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla
Würth völlurinn
Gola og léttur úði
Fylkir
Fylkir
3 - 2
Vestri
Vestri
0 - 127' Elmar Atli Garðarsson Matthias Præst Nielsen 35'1 - 1Þóroddur Víkingsson 73'2 - 1Ómar Björn Stefánsson 80'3 - 13 - 288' Jeppe Gertsen
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 673
Leik lokið!
Fylkismenn fara með sigur af hólmi
Arnar Þór flautar til leiksloka, dramatískar lokamínútur hér í lautinni, Fylkismenn hirða stigin 3!
Viðtöl og skýrsla innan skams.
93. mín
Tarik með skot úr teignum en aftur ver Ólafur Kristófer vel.
92. mín
Vestramenn leita af glufum í vörn Fylkis.
90. mín
Fimm mínútum bætt við!
Vestri
90. mín
Gult spjald

Davíð Smári Lamude

89. mín
TVÖFÖLD VARSLA
Benedikt Warén á skot úr þröngu færi, Ólafur Kristófer ver út í teiginn á Jeppe sem er einn í teignum í frábæru færi en aftur ver Ólafur!
Vestri
88. mín
ÞETTA ER EKKI BÚIÐ!

Jeppe Gertsen (stoðsending: Benedikt V. Warén)

Benedikt rennir boltanum út á Jeppe sem setur boltann huggulega í samskeytin fyrir utan teig.
85. mín
Benedikt Daríus með skot sem Eskelinen ver örugglega.
Fylkir
80. mín
ERU ÞEIR AÐ KLÁRA ÞETTA?

Ómar Björn Stefánsson (stoðsending: Nikulás Val Gunnarsson)

Nikulás Val þræðir boltann í gegn á Ómar sem klárar vel. Spurning um rangstöðu þarna, sést ekki vel á myndavélum.
Vestri
79. mín
InnMorten Ohlsen Hansen
ÚtIbrahima Balde
Vestri
78. mín
Gult spjald

Pétur Bjarnason

77. mín
Ómar Björn kominn í frábæra stöðu í teignum og tekur gott skot en Eskelinen á stórbrotna vörslu.
Vestri
74. mín
InnBenedikt V. Warén
ÚtVladimir Tufegdzic
Fylkir
73. mín
HEIMAMENN KOMNIR YFIR!

Þóroddur Víkingsson (stoðsending: Arnór Breki Ásþórsson)

Arnór Breki kemur með fallhlífarbolta í teiginn og Þóroddur stýrir boltanum í hornið fagmannlega.
72. mín
Boltinn dettur fyrir Benedikt Daríus í teignum en hann á skot beint á Eskelinen sem ver.
Benedikt heldur betur að koma sér í færi eftir að hann kom inná.
72. mín
Nikulás Val með skot sem fer af varnarmanni, Eskelinen ver vel og boltinn í hornspyrnu.
71. mín
Gestirnir fá hornspyrnu en ekkert kemur úr henni.
68. mín
Benedikt Daríus í frábæru færi utarlega í teignum en skotið fer beint á Eskelinen markvörð Vestra.
Fylkir
67. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
Fylkir
67. mín
InnUnnar Steinn Ingvarsson
ÚtOrri Sveinn Segatta
Fylkir
65. mín
Gult spjald

Þóroddur Víkingsson

61. mín
Þarna munaði litlu
Benedikt Daríus sker inn á hægri og á skot sem sleikir utanverða fjærstöngina!
59. mín
Silas kominn í góða stöðu og á skot sem fer í varnarmann og í hornspyrnu.
57. mín
Pétur Bjarna fellur við í teig Fylkis en ekkert dæmt!
Rétt ákvörðun hjá Arnari.
Fylkir
55. mín
InnÞóroddur Víkingsson
ÚtOrri Hrafn Kjartansson
52. mín
Gott samspil Selvén og Péturs endar með skoti fyrrnefnda sem fer í varnarmann og aftur fyrir í hornspyrnu.
Fylkir
52. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtEmil Ásmundsson
Fylkir
48. mín
Gult spjald

Emil Ásmundsson

Nú fær Emil gult.
Vestri
47. mín
Gult spjald

Ibrahima Balde

Brýtur á Emil Ásmunds og fær gult spjald að launum. Emil sparkar aðeins á eftir Balde en Arnar Þór dómari sér það ekki.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Vestri byrjar með boltann!
45. mín
Tölfræðin í hálfleik (frá Stöð 2 Sport)
Með boltann: 48% - 52%
Skot: 8-2
Á mark: 4-1
Horn: 2-3
Sendingar: 203-215
45. mín
Stórskemmtilegum fyrri hálfleik lokið
+4
Arnar Þór flautar til hálfleiks, liðin skilja jöfn að.
Fjör og hasar hér í lautinni.
45. mín
+1

Silas Songani sýnir hraða sinn og keyrir upp kantinn og fer svo í skotið sem endar rétt framhjá marki heimamanna.
45. mín
Þremur mínútum bætt við.
45. mín
Silas æðir upp hægri vænginn og kemur með stórhættulega fyrirgjöf sem Pétur Bjarna nær ekki til.
39. mín
BJARGAÐ Á LÍNU!
Fylkismenn sleppa í gegn í tveir á einn stöðu, Orri lyftir boltanum fyrir á Nikulás Val sem skallar boltann í stöngina og hann er á leiðinni inn en Elmar Atli kemur boltanum frá á ögurstundu.
38. mín
Rangstöðumark
Vladimir Tufegdzic skorar með skalla af stuttu færi en réttilega flaggaður rangstæður.
37. mín
Silas á fasta fyrirgjöf fyrir sem Ólafur Kristófer neyðist til að verja frá.
Fylkir
35. mín
PRESTURINN SVARAR!

Matthias Præst Nielsen

Þórður sendir Emil í gegn sem á góðan bolta fyrir og Matthias Præst neglir boltanum í þaknetið, frábært mark!
Tók ekki langan tíma fyrir Fylkismenn að jafna.
34. mín
Orri Hrafn með skot fyrir utan teig eftir flott spil heimamanna, Eskelinen á í engum vandræðum með að handsama boltann.
Vestri
27. mín
CAPTAIN FANTASTIC

Elmar Atli Garðarsson (stoðsending: Vladimir Tufegdzic)

Vestramenn fá hornspyrnu, King tekur, Tufegdzic nær snertingu á boltann og boltinn berst á Elmar á fjærstöng og Elmar kemur boltanum í netið.
Fyrsta mark Elmars í tæp 2 ár!
23. mín
Mikil harka og barátta fyrstu 23 mínúturnar, Fylkismenn meira með boltann.
19. mín
Þórður Gunnar leikur listir sínar og tekur svo skot/fyrirgjöf sem fer rétt framhjá marki gestanna.
16. mín
Fylkismenn fá tvær hornspyrnur sem ekkert kemur upp úr.
11. mín
Ragnar Bragi með skot fyrir utan teig sem Eskelinen ver örugglega.
10. mín
Sigurbergur Áki með frábæran bolta á Nikulás sem sleppur í gegn en flaggaður rangstæður, réttilega sýnist mér.
6. mín
Nikulás Val með fast skot fyrir utan teig sem fer langt framhjá.
3. mín
Vestramenn fá fyrstu hornspyrnu leiksins en heimamenn skalla frá.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga hér inná völlinn, nú styttist í að þetta hefjist!
Fyrir leik
Tvær breytingar á Fylki - Óbreytt hjá Vestra
Rúnar Páll þjálfari Fylkis gerir tvær breytingar frá síðasta deildarleik. Í byrjunarliðið koma þeir Sigurbergur Áki og Emil Ásmunds í stað Aron Snæs og Benedikts Daríusar sem er að koma til baka eftir meiðsli.

Vestri vann góðan 4-2 sigur á Stjörnunni í síðasta leik en Davíð Smári þjálfari Vestra heldur liði sínu óbreyttu frá þeim leik.
Andri Rúnar er utan hóps vegna veikinda.
Fyrir leik
Fyrir leik
Logi Tómasson spáir í spilin
Fylkir 1 - 0 Vestri

Fylkismenn vinna þennan leik 1-0. Þetta verður lokaður leikur en Fylkismenn finna rammann á lokamínútunum, Ragnar Bragi óvæntur markaskorari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sex stiga leikur
Fylkir tekur á móti Vestra í Árbænum á eftir í fyrirfram spennandi leik.

Fylkir er á botni deildarinnar með aðeins fjögur stig. Rúnar Páll, þjálfari Fylkis segir liðið ekki hafa efni á því að tapa fleiri leikjum.

„Við höfum ekkert efni á að tapa mikið fleiri leikjum. Við verðum að vinna þessi lið í kringum okkur það er nokkuð ljóst og ætlum að safna stigum út úr þeim og verðum að gera það.“

Vestri vann frækinn 4-2 sigur á Stjörnunni í síðasta leik og er í 9. sæti deildarinnar þrátt fyrir að hafa ekki spilað leik fyrir vestan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta-deildin rúllar aftur af stað!
Eftir rúmlega tveggja vikna landsleikjahlé fer Besta-deildin aftur af stað. Fimm leikir verða spilaðir í dag og verða þeir allir í þráðbeinni textalýsingu hér á fótbolti.net

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikir kvöldsins:

Besta-deild karla
18:00 Fylkir-Vestri (Würth völlurinn)
19:15 ÍA-KR (ELKEM völlurinn)
19:15 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)
19:15 Fram-HK (Lambhagavöllurinn)
20:15 Valur-Víkingur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.