SKÝRSLAN: Þú þarft að vera tilbúinn í bardaga í Breiðholtinu
Hvað réði úrslitum?
ÍR-ingar voru bara kraftmiklir í sínum leik og þeir gáfust ekki upp þegar þeir lentu undir. Þeir sýndu mikið hjarta að koma til baka og gáfust ekki upp. Það var alvöru stemning í þeirra liði, þeir börðust og Fjölnismenn réðu ekki við það á endanum. Þú þarft að vera tilbúinn í bardaga í Breiðholtinu!
Bestu leikmenn
1. Jordian G S Farahani (ÍR)
Var algjörlega frábær í bakverðinum hjá ÍR. Vann mörg einvígi og kom boltanum vel frá sér. Mikill stemningsmaður.
2. Bragi Karl Bjarkason (ÍR)
Var svolítið týndur lengi vel en hann steig upp á stóra augnablikinu með tveimur mörkum.
Atvikið
Það er auðvitað sigurmarkið sem Bragi Karl skoraði. Það var alvöru stemning þegar það kom.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta er fyrsti sigurleikur ÍR frá því í fyrstu umferð og þeir ná að lyfta sér upp frá fallsvæðinu. Fjölnir tapar sínum fyrsta leik í deildinni og misstu af tækifærinu að komast á toppinn.
Vondur dagur
Fjölnismenn náðu sér bara ekki á strik. Þetta var ekki eins og lið í öðru sæti að mæta liði í tíunda sæti, bara alls ekki. Það var lítil stemning í Fjölnisliðinu og meiri pirringur en eitthvað annað. Það er hægt að nefna nokkra leikmenn sem náðu sér ekki á strik; Máni Austmann, Dagur Ingi og Reynir Haraldsson. Þessir menn þurfa svolítið að draga vagninn.
Dómarinn - 6
Þetta var erfiður leikur að dæma og mikil læti en mér fannst Twana og hans teymi bara leysa þetta ágætlega á endanum.



