Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild kvenna
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
0 - 2
Tindastóll
Tindastóll
0 - 128' Jordyn Rhodes0 - 286' Jordyn Rhodes
Dómari: Jens Elvar Sævarsson

SKÝRSLAN: Tindastóll krækti í þrjú stig á Krókinn

Hvað réði úrslitum?

Gestirnir voru bara betri á flestum vígstöðvum í dag. Tek ekkert af Keflavík sem setti hjarta og sál í leikinn og reyndi hvað mest þær máttu. Dagurinn var bara ekki þeirra. Á sama tíma ýtti barátta og leikgleði beinskeyttu liði Tindastóls yfir línuna og sendi þrjú stig heim í Skagafjörð.

Bestu leikmenn

1. Jordyn Rhodes

Tvö mörk og þau hefðu alveg getað verið fleiri. Fékk færi til að bæta við mörkum sem fóru þó forgörðum í dag. Hljóp eins og engin væri morgundagurinn og vann gríðarlega vel fyrir liðið.

2. Elísa Bríet Björnsdóttir

Mér finnst magnað að þessi stelpa sé fædd 2008. Hefur frábæra yfirsýn á vellinum og leikskilning sem mun eldri leikmenn væru stoltir af. Framtíð hennar er björt haldi hún vel á spilunum.

Atvikið

Setjum annað mark Tindastóls sem frysti leikinn hér. Keflavík hendir öllu sínu fram en tekst ekki að gera sér mat úr því og er refsað fyrir.

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík fellur niður í níunda sæti deildarinnar þar sem liðið situr með sex stig. Tindastóll lyftir sér upp í sjötta sætið með tíu stig.

Vondur dagur

Saorla Lorraine Miller fékk kjörið tækifæri til þess að jafna leikinn þegar hún sleppur ein í gegn eftir um 70 mínútna leik. Orkan virtist bara vera búin og voru varnarmenn sem byrjuðu að hlaupa til baka talsvert fyrir aftan Saorlu skuggalega fljótar að ná henni. Annars gekk fátt upp í sóknarleik Keflavíkur í dag.

Dómarinn - 8

Vel dæmt hjá Jens og hans teymi frá mér séð í dag. Hafði góða stjórn og leyfði leiknum að fljóta sem mest hann mátti. Ég í það minnsta hef yfir litlu að kvarta hjá þeim í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.