Leik lokið!
Þróttarar sigra!
Þá er Gunnar, góður dómari leiksins, búinn að flauta þetta af. Fyllilega sanngjarn sigur Þróttara en þetta er þeirra þriðji sigur í fjórum leikjum á meðan Fylkiskonur eru að tapa sínum sjöunda deildarleik í röð.
Skýrsla og viðtöl koma inn á síðuna innan skamms.
Þangað til næst, takk fyrir samfylgdina og veriði sæl!
93. mín
Þróttarar virðast ætla að halda þetta út!
Eða hvað?
90. mín
+5 mínútur í uppbót
89. mín
Gult spjald
Gunnar Magnús Jónsson
Gunnar vildi fá Fylkisinnkast alveg upp við varamannabekkina sem hann fékk ekki. Þróttur á innkastið og hann tryllist út í fjórða dómarann.87. mín
InnElísa Björk Hjaltadóttir
ÚtViktoría Diljá Halldórsdóttir
85. mín
InnLea Björt Kristjánsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
85. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtFreyja Karín Þorvarðardóttir
84. mín
DAUÐAFÆRI!
Leah gerir frábærlega inni á teig Fylkis og kemur með bolta til hliðar á Kristrúnu sem er ein og óvölduð inni á teignum. Kristrún tekur skotið í fyrsta sem fer yfir.
Hvernig hitti hún ekki á markið þarna?!
81. mín
Gult spjald
Marija Radojicic
79. mín
InnKolfinna Baldursdóttir
ÚtEva Rut Ásþórsdóttir
Fyrirliðinn fer meiddur af velli. Ekki góðar fréttir fyrir Fylki.
78. mín
InnMaría Eva Eyjólfsdóttir
ÚtÍris Una Þórðardóttir
75. mín
Marija Radojic hefur komið inn í þennan leik með miklum krafti. Á núna hér skot úr erfiðri stöðu sem fer rétt yfir.
Annars mjög lítið að frétta héðan úr Laugardalnum.
68. mín
InnKristrún Rut Antonsdóttir
ÚtÍsabella Anna Húbertsdóttir
68. mín
Leah með tilraun fyrir utan vítateig Fylkis sem fer rétt yfir.
66. mín
Gult spjald
Ísabella Anna Húbertsdóttir
64. mín
InnMarija Radojicic
ÚtHelga Guðrún Kristinsdóttir
63. mín
Munaði litlu!
Sigríður fær boltann rétt fyrir utan vítateig Fylkis og lætur vaða. Skotið var fast, meðfram jörðinni og fór rétt framhjá.
60. mín
Þróttarar sækja og sækja
Caroline vinnur boltann ofarlega á vellinum og lætur vaða á markið en Tinna gerir vel og handsamar boltann.
59. mín
Sæunn tekur spyrnuna inn á teiginn sem Fylksikonur hreinsa frá. Þróttarar halda sóknarpressunni áfram.
58. mín
Þróttur að fá annað horn!
57. mín
Leah kemur boltanum inn á teiginn og það myndast mikið klafs inni á teignum en Fylksikonur ná að standa vaktina og bægja hættunni frá.
57. mín
Þróttur að fá hornspyrnu!
53. mín

Hafliði Breiðfjörð er vopnaður myndavél í Laugardalnum






47. mín
Fylkir í færi!
Þórhildur með glæsilegan sprett upp völlinn og kemur boltanum svo út á Evu. Eva er í góðri stöðu inn á teignum og lætur vaða nema skotið fór í hliðarnetið.
Fylkiskonur byrja seinni hálfleikinn af krafti!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Þá er leikurinn hafinn á ný. Það eru heimakonur sem hefja þetta fyrir okkur. Þær sækja í átt að Kanada en gestirnir sækja í átt að Rússlandi.
45. mín
Þá er Gunnar, góður dómari leiksins, búinn að flauta til hálfleiks. Fyllilega sanngjarnar hálfleikstölur en Þróttarakonur hafa verið mikið betri í þessum fyrri hálfleik.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka að vörmu spori.
45. mín
Sæunn tekur spyrnuna inn á teiginn sem Tinna kýlir frá með herkjum.
45. mín
Þróttur að fá hornspyrnu!
44. mín
Hárrétt spjald
Eva Rut Ásþórsdóttir
Tæklar Caroline niður og er ekkert að reyna við boltann.44. mín
Fáum við annað mark í þennan fyrri hálfleik?
39. mín
Enn eitt hornabrotið
Þórhildur tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer inn á markteiginn en aftur eru Fylkiskonur að brjóta af sér í þessum hornum.
39. mín
Fylkiskonur fá aðra hornspyrnu!
37. mín
Gult spjald
Signý Lára Bjarnadóttir
Þórhildur tekur spyrnuna inn á teiginn og Signý brýtur á sér þegar boltinn er kominn inn á teiginn. Fær gult spjald fyrir.37. mín
Fylkiskonur að fá hornspyrnu!
36. mín
Sláin!
Sóknarpressa Þróttar heldur áfram!
Signý fær núna boltann fyrir utan teiginn kom tekur skotið yfir Tinnu sem fer í þverslána og þaðan í lúkurnar á Tinnu.
36. mín
Leah tekur spyrnuna stutt á Ísabellu sem kemur með boltann fyrir. Fyrirgjöfin var slök og Fylkiskonur hreinsa.
35. mín
Þróttarar sækja og fá hornspyrnu!
33. mín
Þróttarar í færi!
Caroline með glæsilega takta úti vinstra meginn og kemur svo með boltann fyrir. Þar er Sigríður mætt en skotið hennar fer rétt framhjá.
28. mín
Sæunn tekur spyrnuna sem fer í gegnum allan pakkann og í markspyrnu.
28. mín
Þróttarar að fá hornspyrnu!
23. mín
Þróttarar í færi!
Caroline með mjög gott hlaup og á svo fyrirgjöf inn á Freyju sem tekur skotið í fyrsta. Skotið var ekki kraftmikið og lag framhjá. Samt ekki alveg framhjá og aftur fyrir þar sem boltinn fór út í innkast.
20. mín
Þórhildur tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer á Evu Rut en hún nær ekki að stýra boltanum og missir hann of langt frá sér.
19. mín
Fylkiskonur að fá hornspyrnu
19. mín
Heimakonur yfir
Algjörir yfirburðir hjá Þrótturum þessar upphafsmínútur.
17. mín
Sigríður allt í öllu
Hún tekur skotið rétt fyrir utan vítateig Fylkis sem fer beint á Tinnu í markinu.
12. mín
Sæunn tekur spyrnuna sem var alls ekki góð og Guðrún Karítas kemur boltanum frá.
11. mín
Þróttarar að fá hornspyrnu!
Markaskorarinn með skot í varnarmann og aftur fyrir.
7. mín
Eva Rut með skot úr aukaspyrnu langt utan að velli sem Mollee er ekki í neinum vandræðum með.
3. mín
ÞÆR VORU EKKI LENGI AÐ ÞESSU!
Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (stoðsending: Ísabella Anna Húbertsdóttir)
Leah kemur með góðan bolta fyrir sem ratar á Ísabellu. Hún snýr með boltann inni á teignum eins og hún ætli að taka skotið en kemur honum til hliðar á Sigríði í staðinn. Sigríður gerir vel með boltann og klárar glæsilega upp í fjær hornið, nánast yfir Tinnu í marki Fylkis. Þróttarar komnir yfir í fallbaráttuslagnum!1. mín
Þá er þetta byrjað en það eru gestirnir úr Árbænum sem koma þessu í gang fyrir okkur. Þær sækja í átt að Grænlandi en gestirnir sækja í átt að Noregi.
Heimakonur spila í rauðum og hvítum treyjum, svörtum stuttbuxum og hvítum sokkum.
Gestirnir úr Árbænum spila í bláum og appelsínugulum treyjum, bláum stuttbuxum og bláum sokkum.
Fyrir leik
Styttist
Þá ganga liðin til vallar og gera sig klár í slaginn.
Fyrir leik
Elín spáir í spilin
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir, markahæsti leikmaður 2. deildar kvenna, spáir í leikina sem eru framundan. Elín hefur átt frábært sumar með Haukum og skorað 13 mörk í sjö leikjum.
Þróttur R. 1 - 1 Fylkir (18:00 í kvöld)
Þetta verður hörkuleikur. Báðum liðum sárvantar stig, Þróttur nær forystu en Fylkiskonur ná að jafna og stigunum verður deilt.
Fyrir leik
Mættust í bikarnum
Liðin hafa mæst tvisvar á þessari leiktíð. Fyrst var það opnunarleikurinn í deildinni í Árbænum en sá leikur fór 1-1. Seinni leikurinn var í Mólkurbikarnum í Laugardalnum en Þróttarar tóku þann leik sannfærandi, 5-0.


Fyrir leik
Þriðja liðið
Gunnar Freyr Róbertsson dæmir leikinn í kvöld en honum til aðstoðar verða þeir Magnús Garðarsson og Elvar Smári Arnarsson. Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður KSÍ er Ólafur Ingi Guðmundsson.

Fyrir leik
Fylkiskonur kaldar
Fylkiskonur sitja núna á botni deildarinnar en efti ágætisbyrjun á mótinu hafa þær núna tapað 6 leikjum í röð og eru neðstar fyrir vikið. Með sigri í dag geta þær híft sig upp úr fallsæti.

Fyrir leik
Þróttarar tóku sigur
Þróttarar unnu góðan sigur í seinasta leik í Garðarbænum þegar þær mættu Stjörnunni. Þróttarar hafa ekki byrjað tímabilið eins og þær vildu en eru núna komnar með tvo sigra í seinustu þremur lekjum deildarinnar.

Fyrir leik
Sú lang Besta!
Heil og sæl ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Þróttar og Fylkis í Bestu deild kvenna frá Avis vellinum.






