PSG leiðir kapphlaupið um Salah - Tuchel á blaði Man Utd - Newcastle líklegt til að reyna aftur við Guehi
Þróttur R.
4
1
Dalvík/Reynir
0-1 Áki Sölvason '52
Kári Kristjánsson '59 , víti 1-1
Hlynur Þórhallsson '65 2-1
Kári Kristjánsson '74 3-1
Hlynur Þórhallsson '95 4-1
06.07.2024  -  16:00
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Það er hiti í Laugardalnum
Dómari: Pétur Guðmundsson
Maður leiksins: Kári Kristjánsson
Byrjunarlið:
12. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (f)
4. Njörður Þórhallsson
5. Jorgen Pettersen
6. Emil Skúli Einarsson
7. Sigurður Steinar Björnsson ('87)
20. Viktor Steinarsson ('55)
22. Kári Kristjánsson ('75)
25. Hlynur Þórhallsson
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson ('87)
75. Liam Daði Jeffs ('55)

Varamenn:
1. Sveinn Óli Guðnason (m)
3. Stefán Þórður Stefánsson
9. Viktor Andri Hafþórsson ('55)
17. Izaro Abella Sanchez ('87)
19. Ísak Daði Ívarsson ('55)
21. Brynjar Gautur Harðarson ('75)
24. Daníel Karl Þrastarson ('87)
30. Kolbeinn Nói Guðbergsson

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Baldur Hannes Stefánsson
Angelos Barmpas
Branislav Radakovic
Hans Sævar Sævarsson

Gul spjöld:
Njörður Þórhallsson ('55)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þróttarar sigra! Þá er þessum leik lokið. Alls ekkert merkilegur leikur og þróaðist kannski bara eins og fólk hélt að hann myndi gera fyrir leik.

Þróttarar vinna verðskuldaðan sigur í blíðunni í dag. Dalvíkingar hins vegar eru á boti deildarinnar.

Skýrsla og viðtöl á leiðinni innan skamms.

Þangað til næst, takk fyrir mig og hafið það gott!
95. mín MARK!
Hlynur Þórhallsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Jorgen Pettersen
Hlynur er að klára þetta! Hans annað mark í dag og hann er að klára þetta!

Kemur fyrirgjöf inn á teiginn og hann er ekki pikkaður upp og refsar Dalvíkingum!
92. mín
Jörgen tekur spyrnuna inn á teiginn sem Dalvíkingar hreinsa frá.
92. mín
Þróttarar að fá enn einu hornspyrnuna!
89. mín
Jörgen tekur spyrnuna inn á teiginn sem Þröstur skallar frá.
88. mín
Þróttarar fá hornspyrnu!
87. mín
Inn:Daníel Karl Þrastarson (Þróttur R.) Út:Sigurður Steinar Björnsson (Þróttur R.)
87. mín
Inn:Izaro Abella Sanchez (Þróttur R.) Út:Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.)
85. mín
Inn:Elvar Freyr Jónsson (Dalvík/Reynir) Út:Dagbjartur Búi Davíðsson (Dalvík/Reynir)
85. mín
Inn:Jóhann Örn Sigurjónsson (Dalvík/Reynir) Út:Alejandro Zambrano Martin (Dalvík/Reynir)
83. mín
Leikurinn stopp Þórhallur Ísak liggur niðri eftir klafs í teignum og þarf aðhlynningu.
81. mín
Inn:Tómas Þórðarson (Dalvík/Reynir) Út:Nikola Kristinn Stojanovic (Dalvík/Reynir)
81. mín
Inn:Björgvin Máni Bjarnason (Dalvík/Reynir) Út:Borja López (Dalvík/Reynir)
80. mín
DAUÐAFÆRI HJÁ BÁÐUM LIÐUM! Vilhjálmur kaldal með sendingu í gegn á Viktor sem er kominn einn á móti Franko en Franko Lalic ver glæsilega!

Síðan bruna Dalvíkingar í sókn hinum meginn á vellinum. Dagbjartur er skyndilega kominn einn í gegn á móti Þórhalli en skotið fór bara framhjá!
79. mín
Jörgen tekur spyrnuna inn á teiginn sem Borja skallar frá.
79. mín
Þróttarar að fá hornspyrnu!
75. mín
Inn:Brynjar Gautur Harðarson (Þróttur R.) Út:Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
Heiðurskipting
74. mín MARK!
Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Sigurður Steinar Björnsson
Þeir eru að ganga frá þessu! Viktor Andri gerir gífurlega vel og kemur honum á Sigurð Steinar. Sigurður rennir honum til hliðar á Kára sem klárar mjög vel úr D-boganum niður í hornið og framhjá Lalic í marki Dalvíkur.

Eru þeir að ganga frá þessu?!
72. mín
Einhver vesen á búnaði Pétur Guðmundssonar, dómara leiksins, og leikurinn er stopp þessa stundina.
70. mín Gult spjald: Dragan Stojanovic (Dalvík/Reynir)
Dragan að fá spjald fyrir eitthvað tuð greinilega.
68. mín Gult spjald: Þröstur Mikael Jónasson (Dalvík/Reynir)
68. mín
Jörgen tekur spyrnuna inn á teiginn sem Franko kýlir frá og síðan bægja Dalvíkingar hættunni frá.
67. mín
Þróttarar að fá horn!
67. mín
Inn:Bjarmi Fannar Óskarsson (Dalvík/Reynir) Út:Rúnar Helgi Björnsson (Dalvík/Reynir)
65. mín MARK!
Hlynur Þórhallsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Jorgen Pettersen
OG ÞEIR SKORA! Norksi Prinsinn kann að galdra!!!

Jörgen Pettersen kemur með bolta inn á teiginn úr aukaspyrnu út við hliðarlínu. Boltinn fór inn á teiginn og beint á hausinn á Hlyni Þórhallssyni sem skallar boltann í netið. Geggjaður bolti og geggjaður skalli.

Þróttarar komnir verðskuldað yfir!
64. mín
Þróttarar eru líklegri að komast yfir Eiríkur Þorsteins með alvöru neglu inni á vítateig Dalvíkur sem fer í stöngina og í innkast hinum meginn.

Það liggur mark í loftinu, þá aðalega Þróttaramark.
61. mín
Jörgen tekur spyrnuna stutt á Kára sem kemur með einhverskonar skot/fyrirgjöf sem fer framhjá.

Þróttarar mikið að vinna með allskonar útfærslur beint af æfingarsvæðinu.
61. mín
Þróttarar fá hornspyrnu!
59. mín Mark úr víti!
Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
Allt jafnt! Setur hann beint á mitt markið og Franko fer til hægri!

Þetta verða áhugaverðar lokamínútur!
58. mín
Þróttarar fá víti!
58. mín
Þetta er kannski staðan sem menn bjuggust við fyrir leikinn. En þetta er bara sanngjarnt miðað við hvernig þeir byrjuðu seinni hálfleikinn.
55. mín
Inn:Ísak Daði Ívarsson (Þróttur R.) Út:Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
55. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.) Út:Viktor Steinarsson (Þróttur R.)
55. mín Gult spjald: Njörður Þórhallsson (Þróttur R.)
55. mín Gult spjald: Nikola Kristinn Stojanovic (Dalvík/Reynir)
52. mín MARK!
Áki Sölvason (Dalvík/Reynir)
Stoðsending: Nikola Kristinn Stojanovic
Gestirnir taka forystuna!!! Ég var ennþá að skrifa um seinustu hornspyrnu Þróttara þegar Áki er skyndilega kominn einn í gegn á móti Þórhalli. Nikola á boltann í gegn á Áka sem klárar glæsilega framhjá Þórhalli.

Þróttarar vildu rangstöðu á Áka. Síðan vilja þeir meina að Dagbjartur hafi snert boltann á línunni og verið fyrir innan. Verður fróðlegt að skoða þetta mark aftur.
51. mín
Jörgen tekur spyrnuna inn á teiginn sem Mathesu skallar frá.
51. mín
Þróttarar að fá hornspyrnu! Þróttarar keyra upp í skyndisókn og fá úr henni hornspyrnu!
50. mín
Ferskir Dalvíkingar Dalvíkingar byrja seinni hálfleikinn af krafti og eru að sækja hressilega í átt að marki Þróttara.
46. mín
Seinni hálfleikurinn hafinn! Þá er seinni hálfleikurinn hafinn og það eru Þróttarar sem hefja leikinn hér á ný en þeir sækja í átt að miðbænum.
45. mín
Hálfleikur
Ekkert mjög mikið að frétta í þessum fyrri hálfleik. Þróttarar hafa verið betri og fengið færin en Dalvíkingar átt góða spilkafla.

Tökum okkur korterspásu og mætum svo aftur að vörmu spori.
45. mín
Þróttarar aftur í færi! Sigurður Steinar með góðan bolta inn á teiginn sem Liam Daði skallar rétt framhjá.

Þarna munaði litlu rétt fyrir hálfleik!
42. mín
DAUÐAFÆRI! Vilhjálmur gerir vel inni á teig Dalvíkur og kemur með sendingu fyrir markið, sem var mögulega skot, en boltinn lekur þvert fyrir markið og enginn Þróttari mættur í svæðið.

Sigurður Steinar var hins vegar nálægt því að komast í boltann en náði því ekki.
38. mín
Dalvíkingar sækja! Dalvíkingar keyra upp í skyndisókn. Gunnlaugur Rafn kemur með stórglæsilega sendingu á Áka sem keyrir upp vinstri kanntinn, köttar inn á völlinn og lætur vaða á markið sem Þórhallur ver. Þórhallur missir hins vegar boltann fyrst en nær svo að handsama hann að lokum.
34. mín
Dalvíkingar vilja víti Þróttarar taka horn sem Dalvíkingar skalla frá og keyra upp í skyndisókn.

Freyr Jónsson er þá kominn með boltann inni á teig Þróttara og er tekinn niður en ekkert dæmt. Get ekki séð að þetta hafi átt að vera víti. Dalvíkingar hins vegar ekki sáttir.
33. mín
Þróttarar fá horn! Matheus Bissi Da Silva með geggjaða tæklingu og bjargar Dalvíkingum þegar Liam Daði er komin í kjörstöðu inni á teig Dalvíkur.
28. mín
DAUÐAFÆRI! Eiríkur kemur með bolta inn á teig Dalvíkinga. Boltinn dettur niður fyrir Sigurð Steinar sem er þá aleinn inni á teig Dalvíkinga og tekur skotið beint í Franko sem ver þetta samt sem áður mjög vel.
24. mín
Áki Sölva með skot fyrir utan teig Dalvíkinga sem fer beint á Þórhall. Þórhallur missir boltann en nær að handsama hann fljótlega.
24. mín
Borja fær sendingu í gegn og kemur með mjög góðan volta inn á teig Þróttara en þar var enginn Dalvíkingur mættur.

Það er svo mikilvægt fyrir Dalvíkinga að endurheimta spánverjann
22. mín
Dalvíkingar í fínu færi Ekki sá ég hvað gerðist þarna en skyndilega var Áki Sölva mættur í príðilega stöðu. Hann tekur tvær snertingar og lætur svo vaða en skotið var alls ekki nógu gott.
20. mín
Jörgen tekur spyrnuna inn á teiginn sem Alejandro skallar frá.
20. mín
Þróttarar að fá enn eitt hornið
17. mín
Jörgen tekur spyrnuna inn á teiginn en ekkert kemur úr henni.
16. mín
Frábær varsla! Vilhjálmur Kaldal með tilraun við vítateigslínuna sem Lalic ver meistaralega í horn!

Það sáu allir þennan inni!
14. mín
Heyrðu jújú þeir fengu víkingaklappið og það er stuð og stemning í stúkunni hjá þeim sem eru mættir.

Stuðningsmenn beggja liða láta vel í sér heyra.
13. mín
Dalvíkingar vilja víkingaklappið Dalvíkingarnir í stúkuni reyna að fá Þróttara með sér í víkingaklapp en það gekk ekki.

Sjáum hvað setur.
11. mín
Jörgen tekur næsta horn sem fer yfir allan pakkann og sókn Þróttara rennur út í sandinn.
11. mín
Sláin! Jörgen tekur spyrnuna inn á teiginn Njörður Þórhalls tekur skotið í fyrsta. Skotið fer í varnarmann og í slána.

D/R fá annað horn en þetta var eitthvað af æfingarsvæðinu. Ekki slæmt að vera með norska prinsinn á föstu leikatriðunum.
11. mín
Þróttarar fá horn!
10. mín
Þetta fer allt mjög rólega af stað. Ég óska samt kannski eftir aðeins betri mætingu. Veðrið ewr 10/10 og risaleikur fyrir bæði lið.

Vonandi týnist fólk í stúkuna þegar það líður á.
6. mín
Dalvík/Reynir búnir að fá þrjú horn í röð. Ekkert komið úr þeim..
Hafliði Breiðfjörð
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja og sækja í átt að miðbænum.
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikurinn í beinni á Youtube
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Liðin aldrei mæst Samkvæmt vef KSÍ hafa þessi tvö lið aldrei mæst í mótsleik áður. Hins vegar hefur Þróttur R. mætt liðinu Dalvík áður í 9 viðureignum. En Dalvík og Þróttur R. voru í sömu deild árin 1997 og 1999-2001. En árið 2002 sameinuðust Dalvík og Leiftur í Leiftur/Dalvík. Síðan eftir að Leiftur/Dalvík féll úr 2. deild niður í 3. deild árið 2005 var stofnað liðið Dalvík/Reynir.

Mynd:
Fyrir leik
Gyrðir spáir í spilin Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, leikmaður FH, tók að sér það verkefni að spá í leiki umferðarinnar í Lengjudeildinni.

Þróttur R. 2 - 0 Dalvík/Reynir (16:00 í dag)
Þróttur mun vinna þennan leik nokkuð þægilega. Rolin er alltaf að fara skora í þessum leik, Rolin er okkar íslenski Akinfenwa. Samúel verður með stórleik í vörninni og skorar 1 skallamark og heldur lakinu hreinu með hjálp Þórhalls í markinu.
Fyrir leik
Lengjudeildin - Deildin sem allir elska og þar sem töfrar eiga sér stað Liðin sem mætast í Laugardalnum í dag eru einu lið deildarinnar sem eru ekki með tveggja stafa tölu fyrir stigafjöldann sinn.

1. Fjölnir 24 stig (11 leikir)
-------------------------------------
2. Njarðvík 20 stig (11 leikir)
3. ÍBV 16 stig (10 leikir)
4. Grindavík 16 stig (10 leikir)
5. ÍR 16 stig (11 leikir)
-------------------------------------
6. Afturelding 14 stig (11 leikir)
7. Þór A. 13 stig (10 leikir)
8. Keflavík 12 stig (11 leikir)
9. Leiknir 12 stig (10 leikir)
10. Grótta 10 stig (11 leikir)
-------------------------------------
11. Þróttur R. 9 stig (10 leikir)
12. Dalvík/Reynir 7 stig (10 leikir)

Mynd: Lengjan
Fyrir leik
Þriðja liðið Pétur Guðmundsson stýrir flautukonsertinu í dag en honum til aðstoðar verða þeir Hreinn Magnússon og Jakub Marcin Róg. Eftirlitsmaður KSÍ er Skúli Freyr Brynjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hallað undan fæti Eftir að Dalvíkingar fóru upp seinasta sumar var mikil eftirvætting meðal fótboltaáhugamanna að sjá hvernig þeir myndu koma í Lengjudeildina. Dalvíkingar fóru mjög vel af stað í upphafi móts þegar þeir tóku ÍBV 3-1 í Dalvík. Eftir það hafa þeir tapað 5, gert fjögur jafntefli en ekki unnið einn leik.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þurfa sigur - Einn stærsti leikur félagsins seinustu ára
Dalvíkingar sitja núna á botni deildarinnar með 7 stig eftir að andstæðingar þeirra í dag, Þróttur Reykjavík, unnu Grindavík í seinustu umferð. Dalvíkingar eru kaldir en það er mikilvægt að þeir fari að vinna leiki sem fyrst ef þeir vilja halda sér uppi í Lengjudeildinni. Líklega einn stærsti, ef ekki stærsti, leikur seinustu ár hjá Dalvík/Reyni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Geta hoppað úr fallsæti Þróttarar héldu sér uppi á tannþráði í fyrra en eftir það tímabil hefur liðið breyst mjög mikið og einnig er nýtt þjálfarateymi komið í Laugardalinn. Það eru mörg ný andlit í Laugardalnum en Sigruvin hefur oft talað um að það séu nýir tímar framundan í Laugardalnum. Leikmenn, þjálfarar, undirlag á völlinn, treyja, meira að segja merkið á félaginu og margt annað sem er nýtt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Slæm byrjun í Laugardalnum
Liðið fór bísna illa af stað en Þróttarar voru lengi vel neðstir í deildinni. Eftir sigur í seinustu umferð gegn Grindavík á heimavelli eru þeir komnir upp í 11. sætið. Með sigri á botnliði Dalvíkur/Reyni í dag hoppa þeir upp úr fallsæti og senda Gróttu niður fyrir sig.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Fallbaráttuslagur! Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu úr Laugardalnum þar sem Þróttarar fá Dalvíkinga í heimsókn í risaleik í Lengjudeildinni en hér eru neðstu tvö lið deildarinnar að mætast.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Franko Lalic (m)
4. Alejandro Zambrano Martin ('85)
5. Freyr Jónsson
6. Þröstur Mikael Jónasson (f)
8. Borja López ('81)
10. Nikola Kristinn Stojanovic ('81)
17. Gunnlaugur Rafn Ingvarsson
18. Rúnar Helgi Björnsson ('67)
19. Áki Sölvason
26. Dagbjartur Búi Davíðsson ('85)
30. Matheus Bissi Da Silva

Varamenn:
24. Ísak Andri Maronsson Olsen (m)
7. Björgvin Máni Bjarnason ('81)
9. Jóhann Örn Sigurjónsson ('85)
11. Viktor Daði Sævaldsson
15. Bjarmi Fannar Óskarsson ('67)
16. Tómas Þórðarson ('81)
20. Aron Máni Sverrisson
25. Elvar Freyr Jónsson ('85)

Liðsstjórn:
Dragan Stojanovic (Þ)
Gauti Magnason
Hörður Snævar Jónsson

Gul spjöld:
Nikola Kristinn Stojanovic ('55)
Þröstur Mikael Jónasson ('68)
Dragan Stojanovic ('70)

Rauð spjöld: