Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Lengjudeild karla
Rafholtsvöllurinn
Njarðvík
Njarðvík
3 - 2
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 15' Omar SoweDominik Radic 15'1 - 1Dominik Radic 41'2 - 1Dominik Radic 77'3 - 13 - 283' Egill Ingi Benediktsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Leiknismenn lágu á Njarðvíkingum undir lokin en það eru heimamenn sem fagna sigrinum hérna í kvöld!

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín
Sindri Björns við það að komast í flott færi en Njarðvíkingar komast fyrir og Leiknismenn halda boltanum en Njarðvíkingar ná að vinna hann og keyra hratt upp og Dominik Radic á skot hátt yfir markið!
93. mín
Arnór Ingi með fyrirgjöf og Andi Hoti með furðulega tilburði að reyna hæla boltann að marki sem gekk ekki.
Njarðvík
92. mín
Gult spjald

Indriði Áki Þorláksson

Reynslumikið brot þegar sókn Njarðvíkinga rann út í sandinn og Leiknismenn gerðu sig líklega til að sækja hratt.
90. mín
STÖNGIN!!
Gott ef þetta var ekki Þorsteinn Emil sem átti fyrirgjöfina og Sindri Björns sýndist mér ná snetringu á boltann sem endaði í stönginni hjá Njarðvíkingum!
89. mín
Róbert Quental með hornspyrnu innarlega á fjær sem Leiknismenn skalla framhjá. Einhverjir hérna í stúkunni héldu að þessi væri inni.
88. mín
Þetta verða áhugaverðar lokamínútur. Leiknismenn að henda öllu fram.
Njarðvík
84. mín
InnKári Vilberg Atlason
ÚtArnar Helgi Magnússon
Njarðvík
84. mín
InnIbrahima Kalil Camara Diakite
ÚtKenneth Hogg
Leiknir R.
83. mín
ÞETTA ER LEIKUR!

Egill Ingi Benediktsson (stoðsending: Róbert Quental Árnason)

Róbert Quental með flottan bolta fyrir markið og varnarmenn Njarðvíkinga renna í teignum og boltinn berst til Egils Inga á fjærstöng sem setur hann framhjá Aroni Snær í marki Njarðvíkinga!
Leiknir R.
81. mín
Gult spjald

Róbert Quental Árnason

Kjartbrúk líklega.
Leiknir R.
81. mín
Gult spjald

Arnór Ingi Kristinsson

Brotlegur í baráttunni við Kenneth Hogg.
Njarðvík
80. mín
InnAmin Cosic
ÚtOumar Diouck
Njarðvík
80. mín
InnFreysteinn Ingi Guðnason
ÚtKaj Leo Í Bartalstovu
Leiknir R.
77. mín
InnStefan Bilic
ÚtOmar Sowe
Njarðvík
77. mín
ÞRENNA!

Dominik Radic

Eins og Keli pantaði fyrir leik! ÞRENNA frá Dominik Radic!

Hreggviður með fyrirgjöf sem virkaði ekkert alltof sannfærandi en hún rataði til Dominic Radic sem klikkaði á fyrsta færinu en fékk boltann aftur og þá voru enginn mistök fyrir framan markið!
75. mín
Langur bolti fram á Kenneth Hogg sem skýlir boltanum sem skoppar inn á teig og Kenny fellur við í teignum en Helgi Mikael fljótur að gefa bendingar um ekki víti.
74. mín
Hjalti fast skot á nærstöngina en Aron Snær ver þetta.
71. mín
Joao Ananias með tilraun en Viktor Freyr ver þetta nokkuð örugglega.
70. mín
Njarðvíkignar vinna boltann og keyra á fámenna Leiknismenn tilbaka. Kaj Leo setur hann á Dominik Radic sem er í baráttunni við tvo varnarmenn Leiknis og fer niður en Helgi Mikael dæmir ekkert.

Áfram með leikinn.
69. mín
Leiknismenn yfir í baráttunni þessa stundina.
Leiknir R.
67. mín
Gult spjald

Aron Einarsson

66. mín
Omar Sowe stingur sér á milli hafsenta Njarðvíkinga og er komin í heldur þrönga stöðu en nær skoti á markið sem fer líklega af varnarmanni Njarðvíkur og hornspyrna niðurstaðan.

Kemur ekkert úr þessu horni hinsvegar.
65. mín
Aron Ingi með tilraun sem svífur rétt yfir markið!
63. mín
Njarðvíkingar taka hornið stutt og Kaj Leo kemur með fyrirgjöf fyrir markið þar sem Viktor Freyr nær að slá boltann frá en tekur Arnar Helga í leiðinni.

Helgi Mikael dæmir Arnar Helga brotlegann.
62. mín
Njarðvíkingar í flottri sókn og vinna hornspyrnu.
61. mín
Róbert Quental með fyrirgjöf fyrir markið en Arnar Helgi nær að tækla boltann aftur fyrir.
60. mín
Omar Sowe að komast í flott færi en Arnar Helgi með flottan varnarleik.
59. mín
Omar Sowe í mjög góðri stöðu en skallinn beint á Aron Snær.

Njarðvíkingar keyra upp völlinn og Oumar Diouck með frábæran sprett og næstum búin að skora á hinum endanum en skotið rétt framhjá nærstönginni.
55. mín
Daði Bærings nálægt því að missa boltann sem aftasti maður þegar Kenneth Hogg kemur í pressuna en Kenny nær ekki að koma fyrir sig boltanum og Leiknismenn ná að bjarga þessu.
53. mín
Sindri Björns með flottan bolta á bakvið Hreggvið í hlaupið fyrir Arnór Inga en Hreggviður gerir vel að henda sér fyrir og ná að koma boltanum aftur í Arnór Inga áður en hann fer aftur fyrir.
51. mín
Njarðvíkingar í flottri sókn en ná ekki að koma boltanum á markið. Indriði Áki með tilraun framhjá.
Njarðvík
48. mín
Gult spjald

Dominik Radic

Fer með hnéið í höfuðið á Viktori Freyr sem kemur vel út úr markinu.

Algjört óviljaverk en réttilega spjald.
47. mín
Omar Sowe með flottan bolta fyrir á Þorstein Emil sem tekur vel á móti boltanum en nær ekki að koma góðu skoti á markið.
Leiknir R.
46. mín
InnEgill Ingi Benediktsson
ÚtShkelzen Veseli
46. mín
Þetta er farið af stað aftur! Gestirnir sparka þessu af stað.
45. mín
Hálfleikur
Það eru heimamenn sem leiða í hálfleik! Lentu undir en náðu að snúa leiknum sér í hag fyrir hlé.

Bæði lið fengið færin til að skora fleirri mörk. Verið opið og skemmtilegt svo það mun vonandi halda áfram inn í seinni hálfleikinn.
45. mín
Leiknismenn að læða Þorsteini Emil í gegn en Aron Snær vel á verði og kemur út og lokar.
45. mín
Við fáum örugglega um tvær mínútur í uppbót myndi ég giska á.
43. mín
Njarðvíkingar sækja þrír á tvo. Oumar Diouck er með Dominik Radic vinstra meginn og Kaj Leo hægra meginn við sig og kemur boltanum á Kaj Leo en skotið yfir markið.
Njarðvík
41. mín
NJARÐVÍKINGAR TAKA FORYSTU!

Dominik Radic (stoðsending: Joao Ananias Jordao Junior)

Joao Ananias með frábæran bolta fyrir markið á hægri vængnum og Dominik Radic sneiðir boltann í netið með höfðinu!

NJARÐVÍKINGAR LEIÐA!
39. mín
Þessi leit vel út!

Leiknismenn að sækja að marki Njarðvíkinga og boltinn berst fyrir markið á fjærstöng þar sem Hjalti Sig gerir sig líklegan til þess að hamra honum inn en Tómas Bjarki nær að vera fyrir og Hjalti neglir í hann og rétt framhjá nærstönginni!
Leiknir R.
36. mín
InnÞorsteinn Emil Jónsson
ÚtJón Hrafn Barkarson
Leiðinlegt að sjá.
33. mín
Jón Hrafn fer niður í teig Njarðvíkingar og leikurinn stopp meðan hann fær aðhlyningu. Var í baráttu við Indriða Áka.

Leikurinn farinn aftur af stað og virðist eins og hann ætli að harka þetta.
29. mín
Róbert Quental verið hættulegur hjá gestunum. Virkilega skemmtilegt að horfa á hann spila fótbolta.
26. mín
DAUÐAFÆRI!
Frábær sókn hjá Njarðvík sem keyra hratt upp völlinn í einnar snertingar fótbolta. Tómas Bjarki úti hægra meginn og keyrir upp vænginn og kemur með flottan bolta fyrir markið á fjærstöng þar sem Oumar Diouck pikkar honum fyrir markið í hættusvæðið á Kenneth Hogg sem rennur í skotinu og Leiknismenn bjarga þessu!
21. mín
Oumar Sowe með skot beint á Viktor Freyr í marki Leiknis.
19. mín
Omar Sowe battar boltann fyrir Shkelzen Veseli en Sigurjón Már nær að henda sér fyrir og draga allan kraft úr skotinu áður en Aron Snær handsamar boltann.
18. mín
Njarðvíkingar að ógna upp vinstri en Andi Hoti með þetta á lás.
17. mín
Oumar Diouck kemur sér í flott skotfæri en Viktor Freyr sér vel við honum.
16. mín
Flott spil hjá Leikni og Hjalti finnur Omar Sowe í svæði sem kemur skotinu að marki en framhjá fór það.
Njarðvík
15. mín
NJARÐVÍKINGAR JAFNA!

Dominik Radic (stoðsending: Tómas Bjarki Jónsson)

Njarðvíkingar spila vel upp hægri kanntinn og Tómas Bjarki kemur með flotta sendingu inn á teig þar sem Dominik Radic nær að koma skoti á markið úr þröngri stöðu og setur hann í fjærhornið!

ALLT JAFNT!
12. mín
Omar Sowe aftur að komast í gegn en í þetta skiptið er það Aron Snær sem sér við honum.
9. mín
Róbert Quental með flotta rispu og reynir fyrirgjöf en Njarðvíkingar bjarga.
Leiknir R.
5. mín
Leiknir taka forystuna

Omar Sowe (stoðsending: Róbert Quental Árnason)

Omar Sowe er stungið í gegnum vörn Njarðvíkinga og það virtust allir vera að bíða eftir flagginu frá aðstoðardómara sem kom ekki og Omar Sowe fíflar Aron Snær í marki Njarðvíkinga og leggur hann svo í autt markið.

LEIKNISMENN LEIÐA!!
3. mín
Oumar Diouck með fyrirgjöf sem fer aftur fyrir í gegnum hættusvæðið.
1. mín
Það eru heimamenn í Njarðvík sem sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Hrafnkell Freyr Ágústsson, fótboltasérfræðingur og málari, spáir í leikina sem eru framundan.

Njarðvík 3 - 1 Leiknir R.
Njarðvíkingar koma til baka eftir smá dýfu upp á síðkastið. Dominik Radic er að fara að setja þrennu.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Fyrir leik
Styrkingar á leikmannahóp Njarðvíkur
Njarðvíkingar tilkynntu um komu Indriða Áka Þorlákssonar á sunnudaginn og samdi hann út tímabilið í Njarðvík.

Indriði Áki tilkynnti síðastliðinn vetur að hann hafi ákveðið að leggja skóna á hilluna og við það tilefni sagðist hann hlakka til að taka sér loksins sumarfrí.

Indriði Áki er 28 ára miðjumaður sem uppalinn er hjá ÍA og sneri aftur til ÍA fyrir síðasta tímabil og hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni.

Hann hefur í 127 leikjum í næst efstu deild skorað sextán mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Víkingur hefur lánað hinn 19 ára gamla Kára Vilberg Atlason til Njarðvíkur í Lengjudeildinni. Kári er uppalinn Bliki sem skrifaði undir samning við Víking fyrir síðasta tímabil.

Hann kom við sögu í leikjum með meistaraflokki í vetur og kom inn á í sigrinum gegn Víði í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Hann verður hjá Njarðvík út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét




Fyrir leik
Leiknismenn hafa harma að hefna
Þessi lið mættust í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar á Domusvovavellinum í Breiðholti. Þar voru það Njarðvíkingar sem höfðu betur með tveimur mörkum gegn einu. Fyrir Njarðvíkinga voru það Björn Aron Björnsson og Dominik Radic sem komust á skotskónna á meðan Róbert Quental Árnason minnkaði muninn fyrir Leikni.

Þessi félög hafa spilað 20 keppnisleiki sín á milli í sögu félagana samkv. vef KSÍ.

Njarðvíkingar hafa sex sigra (30%) úr þessum einvígjum.
Leiknir hafa ellefu sigra (55%).
Liðin hafa skilið jöfn í þrígang (15%).

Njarðvíkingar hafa í þessum leikjum skorað 23 mörk á meðan Leiknismenn hafa skorað 40 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Njarðvík
Eftir frábæra byrjun á mótinu og að hafa leitt deildina á tímabili hafa Njarðvíkingar aðeins verið að gefa eftir. Í síðustu fjórum leikjum hefur Njarðvík ekki tekist að vinna og aðeins sótt tvö stig. Það er næstum mánuður síðan síðasti sigurleikur Njarðvíkinga leit dagsins ljós en hann kom 19.jún gegn Gróttu.

Þrátt fyrir þetta sitja Njarðvíkingar í 2.sæti deildarinnar með 21 stig. Sex stigum á eftir toppliði Fjölnis og tveim stigum frá ÍBV og ÍR sem fylgja Njarðvíkingum fast á eftir í 3.-4.sæti.

Njarðvíkingar hafa skorað 22 mörk og fengið á sig 15 sem gerir plús 7 í markatölu. Njarðvíkingar hafa hinsvegar ekki skorað í síðustu tveim leikjum sínum.

Mörk Njarðvíkur hafa raðast niður á:

Dominik Radic - 6 mörk
Oumar Sowe - 6 mörk
Kenneth Hogg - 2 mörk
Kaj Leo Í Bartalstovu - 2 mörk
Arnar Helgi Magnússon - 2 mörk
* Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Leiknir R.
Leiknismenn höfðu verið á uppsveiflu síðustu umferðir og klifrað upp töfluna en hafa tapað síðustu tveim leikjum sínum í deild gegn Fjölni og ÍBV. Leiknismenn sitja sem stendur í 10.sæti deildarinnar með 12 stig. Þeir eru eina lið deildarinnar sem á enn eftir að gera jafntefli en þeir hafa unnið fjóra og tapað átta í sínum tólf leikjum.

Í þessum tólf leikjum Leiknis hafa þeir skorað 13 mörk og fengið á sig 20. Það gera mínus sjö í markatölu.

Mörk Leiknis hafa raðast niður á:

Omar Sowe - 5 mörk
Shkelzen Veseli - 3 mörk
Róbert Quental Árnason - 2 mörk
* Aðrir minna

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson fær það verkefni að dæma hér á Rafholtsvellinum í kvöld og honum til aðstoðar verða Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson.
Frosti Viðar Gunnarsson er þá eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Njarðvíkur og Leiknis frá Reykjavík í 13.umferð Lengjudeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.