Haaland verður með riftunarákvæði - Real Madrid ætlar að fá Saliba - Antony til Newcastle?
Þróttur R.
0
0
Fjölnir
31.07.2024  -  19:15
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Veðrið er ekki upp á marga fiska, rok og rigning.
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Viktor Steinarsson
Byrjunarlið:
12. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (f)
6. Emil Skúli Einarsson ('46)
20. Viktor Steinarsson
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
26. Þórir Guðjónsson ('46)
32. Aron Snær Ingason ('75)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
99. Kostiantyn Iaroshenko ('75)

Varamenn:
1. Sveinn Óli Guðnason (m)
3. Stefán Þórður Stefánsson
7. Sigurður Steinar Björnsson ('75)
14. Birkir Björnsson ('46)
17. Izaro Abella Sanchez
30. Kolbeinn Nói Guðbergsson
33. Unnar Steinn Ingvarsson ('46)
75. Liam Daði Jeffs ('75)

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Baldur Hannes Stefánsson
Angelos Barmpas
Branislav Radakovic
Hans Sævar Sævarsson
Bergsveinn Ás Hafliðason

Gul spjöld:
Brynjar Gautur Harðarson ('29)
Aron Snær Ingason ('38)
Viktor Steinarsson ('69)

Rauð spjöld:
@karisnorra Kári Snorrason
Skýrslan: Toppliðið slapp með skrekkinn
Hvað réði úrslitum?
Það er nánast ótrúlegt að Þróttarar hafa ekki skorað mark í þessum leik en þeir skutu í slá, stöng og ótal færi sem þeir klikkuðu á. Fjölnismenn eru heppnir að sleppa með stig í dag.
Bestu leikmenn
1. Viktor Steinarsson
Erfitt að velja einhvern einn úr liði Þróttar en Viktor Steinarsson var frábær á hægri kantinum, olli miklum usla í kvöld. Nánast allir í liði Þróttara sem stóðu sig með prýði í dag.
2. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Þó svo að Vilhjálmur hafi klúðrað dauðafæri í upphafi leiks, skapaði hann og kom sér í urmul af færum og er með ólíkindum að hann hafi ekki skorað eða lagt upp í dag. Skrýtið að velja engann varnarmann eða markvörð í markalausu jafntefli en enginn sem stóð upp úr í vörn beggja liða.
Atvikið
Atvikið var þegar Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson fékk boltann fyrir framan autt mark Fjölnis en tók of langan tíma í að koma boltanum fyrir sig og varnarmaður Fjölnis átti frábæra tæklingu og kom boltanum frá. Dýrt klúður þarna
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir heldur sæti sínu á toppi deildarinnar og eiga 7 stig á ÍBV sem eru í 2. sæti en eiga þó leik til góða. Þróttarar komu sér í 6. sæti deildarinnar og eru þrjú stig í umspilssæti.
Vondur dagur
Eins leiðinlegt og það er verð ég að setja vinnubrögð Gunnars Odds hingað inn. Að nánast hóta tveimur ungum hafsentum Fjölnis fyrir leik er auðvitað stórfurðulegt og eflaust tekur þá úr jafnvægi en við lifum og lærum.
Dómarinn - 4
Einkunn dómaranna lækkar klárlega við að ræða við ungu hafsenta Fjölnis fyrir leik og hóta þeim rauðum spjöldum áður en leikurinn hefst vegna umræðna í ákveðnum hlaðvörpum, furðuleg nálgun. En að leiknum, ódýr gul spjöld í fyrri hálfleik. Úlfur Arnar þjálfari Fjölnis vildi klára vítaspyrnu undir lok leiks en mér sýndist það vera 50/50 atriði við fyrstu og einu sýn. Annars engin önnur atvik sem klikka hjá tríóinu svo ég muni eftir. Fá falleinkunn fyrir vinnubrögðin fyrir leik.
Byrjunarlið:
26. Halldór Snær Georgsson (m)
3. Reynir Haraldsson
4. Júlíus Mar Júlíusson
5. Dagur Austmann ('85)
7. Dagur Ingi Axelsson
9. Máni Austmann Hilmarsson
10. Axel Freyr Harðarson ('60)
14. Daníel Ingvar Ingvarsson
22. Baldvin Þór Berndsen
29. Guðmundur Karl Guðmundsson (f)
88. Kristófer Dagur Arnarsson ('60)

Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
6. Sigurvin Reynisson ('85)
8. Óliver Dagur Thorlacius ('60)
11. Jónatan Guðni Arnarsson
20. Bjarni Þór Hafstein ('60)
27. Sölvi Sigmarsson

Liðsstjórn:
Úlfur Arnar Jökulsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Einar Hermannsson
Einar Jóhannes Finnbogason
Erlendur Jóhann Guðmundsson
Ragnheiður Lóa Stefánsdóttir

Gul spjöld:
Daníel Ingvar Ingvarsson ('57)
Sigurvin Reynisson ('93)

Rauð spjöld: