Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór
Þór
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
2 - 2
Njarðvík
Njarðvík
0 - 146' Dominik Radic0 - 252' Dominik RadicBirkir Heimisson (víti) 70'1 - 2Vilhelm Ottó Biering Ottósson 79'2 - 2
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Aron Einar er kominn heim í Hamar heim

Hvað réði úrslitum?

Þór hefði getað náð góðri forystu strax í upphafi leiks þar sem Rafael Victor komst í tvö dauðafæri. MIstök í varnarleik Þórs varð til þess að Njarðvík komst yfir og þeir bættu öðru markinu við en svo breyttist leikurinn algjörlega með innkomu Arons Einars.

Bestu leikmenn

1. Aron Einar Gunnarsson (Þór)

Þvílíkur fengur fyrir Þór. Kemur inn á í stöðunni 2-0 og leikurinn breytist algjörlega. Hann fullkomnaði sinn leik með því að leggja upp jöfnunarmarkið.

2. Dominic Radic (Njarðvík)

Skorar bæði mörk Njarðvíkur í dag og er í harðri baráttu um gullskóinn. Virkilega sterkur fyrir þetta Njarðvíkurlið. Kominn með 11 mörk í sumar.

Atvikið

Verður atvikið ekki bara að vera heimkoma Arons Einars Gunnarssonar. Vel fagnað þegar hann kom inn á og hann breytti gangi leiksins algjörlega og leggur upp jöfnunarmarkið. Sigur liðsins hefði fullkomnað þetta fyrir hann en það tókst ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvík hefur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum en situr í 4. sæti og er í bullandi baráttu um umspilssætið. Þór stefnir á umspilið en hefur núna aðeins náð í eitt stig úr síðustu fjórum leikjum og er 8 stigum frá umspilssæti.

Vondur dagur

Það er bras á Njarðvíkingum undanfarið. Eftir að hafa náð tveggja marka forystu er alls ekki gott að missa hana svona niður og hefðu getað misst öll stigin.

Dómarinn - 7

Flottur í dag. Það voru tvö atvik þar sem hann dæmdi m.a. víti sem ég held að hafi verið rétt. Njarðvíkingar vildu fá víti þar sem þeir töldu að boltinn hafi farið í höndina á Ragnari Óla en ég sá það ekki frá mínu sjónarhorni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.