Fotbolti.net
Karitas Þórarinsdóttir
Lengjudeild karla
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
2 - 3
Afturelding
Afturelding
Vicente Rafael Valor Martínez 25'1 - 01 - 144' Elmar Kári Enesson CogicOliver Heiðarsson 62'2 - 12 - 272' Georg Bjarnason2 - 375' Arnór Gauti Ragnarsson
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Þrautseigja Mosfellinga í sigri á ÍBV

Hvað réði úrslitum?

Afturelding gafst aldrei upp. Voru tvisvar undir og náðu tvisvar að jafna og svo að komast yfiir.

Bestu leikmenn

1. Jökull Andrésson

Átti nokkrar góðar vörslur sem héldu Aftureldingu inni í leiknum.

2. Georg Bjarnason

Jafnar leikinn í seinna skiptið og þar með var ekki aftur snúið fyrir Aftureldingu.

Atvikið

Maggi setur Arnór Gauta inn á og hann skoraði sigurmarkið í þessum leik.

Hvað þýða úrslitin?

Toppbaráttan er galopin og Afturelding safnar mikilvægum stigum til að elta liðin fyrir ofan sig.

Vondur dagur

Að komast tvisvar yfir og svo tapa leik er mjög sárt. Set þetta á ÍBV liðið í heildina. Þar sem þeim mistókt að halda forystunni í tvígang í leiknum og missa þannig af 3 mikilvægum stigum í toppbaráttunni sem hefði getað gefið þeim meira öryggi á toppnum.

Dómarinn - 6,5-7

Mér fannst halla aðeins á Aftureldingu í þessum leik, nokkur brot sem hefðu átt að detta þeirra megin en gerði ekki. Annars bara allt í góðu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.