SKÝRSLAN: Dauft yfir Dalvík
Hvað réði úrslitum?
Grindvíkingar voru þeir sem réðu úrslitum þessa leiks. Stjórnuðu leiknum frá upphafi til enda og þrátt fyrir að hafa lent undir var ekki ýtt á neina neyðartakka heldur héldu þeir áfram. Þeim tókst að jafna metin stuttu fyrir hálfleik og komust yfir snemma í þeim síðari. Þá datt allur vindur úr heimamönnum og gestirnir gengu á lagið. Mörkin komu á færibandi, og gott betur, og þægileg þrjú stig í hús.
Bestu leikmenn
1. Ion Perelló / Josip Krznaric
Ógnaði sífellt í fyrri hálfleik hvort sem það var úr opnum leik eða úr föstum leikatriðum.
Uppfært: bæti Josip við þar sem hann átti aukaspyrnumarkið. Ég var að fylgjast með ef einhver efast um það, en blessuð blaðamannaaðstaðan hefur ekki besta útsýnið yfir völlinn.
2. Adam Árni Róbertsson
Set hann í annað sætið en gæti eins tekið það fyrsta. Eftir erfiðan fyrri hálfleik og verandi orðinn brúnaþungur og pirraður steig hann heldur betur upp í síðari hálfleiknum. Skoraði frábært mark úr hjólhestaspyrnu og bætti svo við síðar í leiknum.
Ef hann er ósáttur við annað sætið @‘ar hann mig bara á X’inu.
Atvikið
Það er ekki hægt að velja milli marka Ions, Adams og Kristófers. Þeir mega slást um það hver þeirra átti flottasta markið.
Mitt atvik er einfaldlega skýfallið sem átti sér stað í síðari hálfleik, bæði á himnum og í liði Dalvíkur/Reynis. Á sama tíma í fyrra ríkti hér eintóm gleði og hamingja þegar liðið var við það að tryggja sér sæti í næstefstu deild en staðan í dag er þveröfug og liðið á leið niður. Það er dauft yfir Dalvík í dag.
Hvað þýða úrslitin?
Staða Dalvíkur/Reynismanna í deild er sú að þeir eru með þrettán stig eftir nítján leiki, ásamt því að markatalan fór úr öskunni í eldinn.
Grindvíkingar sitja um miðja deild með mun hressari markatölu eftir leik dagsins.
Vondur dagur
Dalvík/Reynir.
Dómarinn - 8
Engar risaákvarðanir sem þurfti að taka. Fagmannleg frammistaða á Dalvíkurvelli í dag.


