Fotbolti.net
Haraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
Extra völlurinn
Smá úði, 7° og örlítil gola
Fjölnir
Fjölnir
2 - 0
Afturelding
Afturelding
Dagur Ingi Axelsson 21'1 - 0Máni Austmann Hilmarsson (víti) 45'2 - 0
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Áhorfendur: 528
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Risa sigur fyrir Fjölnismenn. Vinna fyrsta leikinn sínn síðan í byrjun Júlí.

Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í dag.
95. mín
Þeir taka það bara stutt og halda boltanum mjög vel uppi við hornfánan. Náðu að taka þónokkrar sekúndur af klukkunni þarna.
94. mín
Fjölnismenn fá horn og það hlýtur að vera mjög lítið eftir.
Fjölnir
89. mín
Gult spjald

Rafael Máni Þrastarson

Sparkar boltanum burt eftir að búið var að flauta.
Afturelding
88. mín
Gult spjald

Elmar Kári Enesson Cogic

Stöðvar skyndisókn.
87. mín
Patrekur Orri með gott skot úr góðu færi en Halldór ver virkilega vel frá honum
Fjölnir
85. mín
Gult spjald

Máni Austmann Hilmarsson

Allt of seinn í þessa tæklingu.
Fjölnir
82. mín
Gult spjald

Halldór Snær Georgsson

Var of lengi að taka markspyrnu.
Fjölnir
81. mín
InnSölvi Sigmarsson
ÚtDaníel Ingvar Ingvarsson
Afturelding
80. mín
InnPatrekur Orri Guðjónsson
ÚtOliver Bjerrum Jensen
Fjölnir
78. mín
InnBjarni Þór Hafstein
ÚtJónatan Guðni Arnarsson
Fjölnir
78. mín
InnAxel Freyr Harðarson
ÚtJónatan Guðni Arnarsson
77. mín
Georg kemur með fyrirgjöfina frá hægri aðeins fyrir aftan Aron inn í teig. Aron reynir að taka boltan í fyrsta en skotið vel yfir markið.
73. mín
Fjölnismenn spila á milli sín í kringum teiginn. Á endanum fær Máni boltan við vítateigs línuna og tekur skotið en beint á Arnar Daða.
Fjölnir
70. mín
InnRafael Máni Þrastarson
ÚtSigurvin Reynisson
66. mín
Dagur Ingi er allt í einu sloppinn í gegn upp hægri kantinn. Hann setur svo virkilega góðan bolta fyrir markið en Fjölnismenn voru ekki alveg nógu hungraðir í þennan bolta og hann rúllar bara aftur fyrir.
64. mín
Geggjuð varsla!
Aron Jóh finnur smá pláss inn í teig og tekur skotið. Það fer í varnarmann en hann fær boltan strax aftur. Hann tekur strax annað skot en Halldór ver virkilega vel frá honum.
63. mín
Dagur Ingi með flotta sendingu aftur fyrir vörn Aftureldingar og Máni kemst í gegn þar sem hann klárar snyrtilega framhjá Arnari. Máni hinsvegar dæmdur rangstæður.
62. mín
Aron Elí með sendinguna fyrir teiginn frá vinstri kantinum. Andri stekkur upp í skallan en nær ekki að beina honum í átt að marki.
Afturelding
59. mín
InnAndri Freyr Jónasson
ÚtSævar Atli Hugason
Fjölnir
54. mín
Gult spjald

Sigurvin Reynisson

Tosar Aron Elí niður.
52. mín
Elmar Kári með flott takta fyrir utan teig, fer framhjá einum og tekur svo skotið. Það fer hinsvegar hátt yfir.
50. mín
Jónatan með skot af löngu færi. Það er fast en beint á Arnar Daða.
48. mín
Hrikaleg mistök hjá Sigurpáli. Henn gefur boltan bara beint á Jónatan á eigin vallarhelmingi. Jónatan fer þá inn í teig með boltan en fellur við í baráttunni við varnarmenn. Twana dæmir ekkert en Fjölnismenn vildu aðra vítaspyrnu þarna.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Fjölnismenn leiða í hálfleik nokkuð verðskuldað. Hafa einfaldlega verið betra liðið hingað til.
Fjölnir
45. mín
Mark úr víti!

Máni Austmann Hilmarsson

Öruggt niður í vinstra hornið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Afturelding
44. mín
Gult spjald

Enes Cogic

Einhver á bekknum sem var að mótmæla. Sá ekki hvort þetta ver Enes eða ekki enn hann fær þetta í bili.
43. mín
VÍTI
Fjölnismenn fá víti. Mér sýnist það vera Sigurvin sem fellur eftir baráttu við Aron. Rétt dæmt miðað við það sem ég sá.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
39. mín
Elmar tekur snögga hreyfingu á hægri kantinum til að opna á skotið. Hann skýtur síðan föstu skoti rétt framhjá.
Afturelding
37. mín
Gult spjald

Georg Bjarnason

Elmar kemur með flotta stungusendingu aftur fyrir vörn Fjölnismanna. Georg nær ekki alveg til boltans en reynir að kasta sér á eftir honum. Halldór var hinsvegar kominn úr markinu og tók þennan bolta þannig Georg rennir sér bara beint í Halldór.
36. mín
Elmar Kári brýtur sér leið inn á teiginn frá hægri kantinum. Hann tekur skotið úr þröngu færi en beint á Halldór.
29. mín
Afturelding í góðri sókn. Boltinn skoppar í áttina að Elmari sem tekur skot úr erfðiðri stöðu en boltinn fer af varnarmanni og aftur fyrir.
Fjölnir
21. mín
Frábær sókn!

Dagur Ingi Axelsson (stoðsending: Jónatan Guðni Arnarsson)

Jónatan kemur með boltan upp vinstri kantinn. Hann setur boltan fyrir markið með utan fótar spyrnu, það er svakaleg hreyfing á boltanum í loftinu sem platar varnarmenn Aftureldingar úr stöðu. Þá kemur Dagur á fleygiferð á fjær og potar boltanum inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
16. mín
Fjölnismenn sækja hratt upp hægri kantinn. Fyrirgjöfin kemur en gestirnir ná að skalla frá. En bara beint á Sigurvin sem lúrir fyrir utan teig. Hann tekur skotið en Arnar Daði ver frá honum.
13. mín
Fjölnir skorar!
En það er dæmd rangstæða. Virkilega flott spil samt hjá heimamönnum.
9. mín
Jónatan sleppur í gegn fyrir Fjölnismenn og er kominn einn gegn markmanni. Fyrsta snertingin hans er hinsvegar ekki alveg nógu góð, hann potar boltanum bara beint til Arnars sem hrifsar boltan til sín.
Afturelding
5. mín
Gult spjald

Sævar Atli Hugason

Ljót tækling.
4. mín
Flott spil hjá heimamönnum upp vinstri kantinn. Þeir koma svo með fyrirgjöfina en Afturelding skallar boltan aftur fyrir í horn.

Guðmundur Karl tekur spyrnuna en hann sparkar boltanum bara beint aftur fyrir. Markspyrna.
1. mín
Leikur hafinn
Twana flautar leikinn í gang.
Fyrir leik
Einn leikur búinn í umferðinni
Leikur Keflavíkur og Njarðvíkur fór fram í gær. Sá leikur endaði sem markalaust jafntefli. Það hefur þau áhrif á toppbaráttuna að Keflavík fór upp í 2. sætið jafnir ÍBV að stigum. Njarðvík fór upp í 5. sætið jafnir ÍR að stigum. Það mun líkast til ekki vera niðurstaðan eftir þessa umferð og því er þetta jafntefli ekkert sérlega góð úrslit fyrir liðin sem spiluðu í gær.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Fjölnismenn gera 3 breytingar á liði sínu sem tapaði 2-1 fyrir Gróttu í síðustu umferð. Dagur Austmann, Bjarni Þór Hafstein og Rafael Máni Þrastarson setjast á bekkinn en fyrir þá koma Sigurvin Reynisson, Dagur Ingi Axelsson og Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson.

Afturelding gerir aðeins ina breytingu á sínu liði en það er Markmaðurinn Jökull Andrésson sem er ekki með í dag. Arnar Daði Jóhannesson kemur inn í staðin fyrir hann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spámaðurinn
Karl Friðleifur Gunnarsson er spámaður umferðarinnar. Hann er leikmaður Víkings í Bestu deildinni. Hann fylgir á eftir Kjartani Kára Halldórssyni sem var með tvo leiki rétta í síðustu umferð.

Fjölnir 3 - 2 Afturelding
Rosalegur leikur í Grafarvoginum. Bjarni Þór Hafstein setur sigurmarkið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarinn
Twana Khalid Ahmed verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Eysteinn Hrafnkelsson og Guðmundur Ingi Bjarnason.

Eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Ingi Guðjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Er betra að byrja vel, eða enda vel?
Í dag fáum við líkast til svarið á þessari spurningu. Fjölnismenn byrjuðu tímabilið rosalega vel og voru á toppi deildarinnar lengi. Það er þetta form í byrjun tímabilsins sem heldur þeim ennþá í séns á að fara upp um deild en eins og kemur fram hér fyrir neðan hafa þeir ekki unnið leik í síðustu 7 tilraunum.
Mynd: Fjölnir Facebook

Afturelding hinsvegar byrjaði tímabilið hræðilega og voru í 9. sæti deildarinnar eftir 12 umferðir. Þeir hafa aðeins tapað einum leik síðan þá og eru núna komnir í alvöru baráttu um að fara upp um deild. Leikurinn í dag teflir því eldheitu liði gegn svell köldu liði en það er ljóst að þetta er 'must win' fyrir bæði lið.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Afturelding heitasta liðið í Lengjudeildinni
Mosfellingar hafa verið á gríðarlega góðu róli upp á síðkastið. Þeir eru búnir að vinna síðustu 4 leiki og hafa ekki tapað í síðustu 6. Þeir sitja í 4. sæti deildarinnar, stigi á eftir mótherjum sínum í dag. Afturelding endaði í 2. sæti deildarinnar í fyrra eins og frægt er en tapaði í úrslitaleiknum í umspilinu. Þeir eru því staðráðnir í að fara upp um deild í ár, þar sem þeim finnst líkast til flestum að þeir hefðu átt að gera það í fyrra.
Mynd: Raggi Óla
Fyrir leik
Fjölnismenn í djúpum dal
Fjölnismenn hafa ekki riðið feitum hesti upp á síðkastið þar sem þeir hafa ekki unnið leik 7 leiki í röð. Síðasti sigur liðsins kom gegn Grindavík í 13. umferðinni þann 18. júlí. Þrátt fyrir slæmt gengi liðsins eru þeir ennþá í góðum séns á að fara upp um deild. Fjölnir er í 3. sæti deildarinnar og pakkinn er heldur betur þéttur. Þeir eru aðeins stigi á eftir 1. sætinu en aðeins 3 stigum frá 6. sætinu. Þessi leikur er því gríðarlega mikilvægur fyrir Grafarvogsbúa, ætli þeir sér að fara upp um deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Fjölnis og Aftureldingar í 21. umferð Lengjudeild karla.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður spilaður á Extra vellinum í Grafarvogi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.