SKÝRSLAN: Ekki hennar fyrsta mark á þessu svæði
Hvað réði úrslitum?
Valskonur fengu mun fleiri færi en Þór/KA í þessum leik og nokkur þeirra mjög ákjósanleg. Valur náði að halda Söndru Maríu í skefjum og nýtti eitt af sínum færum sem var nóg í dag. Mjög sanngjarn sigur.
Bestu leikmenn
1. Anna Rakel Pétursdóttir
Skorar eina mark leiksins og átti heilt yfir mjög góðan leik.
2. Lillý Rut/Agnes Birta
Miðverðirnir áttu báðar mjög góðan dag. Lillý hélt hreinu en það var meira að gera hjá Agnesi sem leysti sitt mjög vel.
Atvikið
Sigurmarkið hjá Önnu Rakel var frábært, smellhitti boltann og Shelby Money átti ekki möguleika. Auðvitað skoraði hún sigurmarkið á KA svæðinu þar sem hún er uppalin.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er áfram einu stigi á eftir Breiðablik. Núna eru þrjár umferðir eftir. Þór/KA er áfram í 3. sæti, núna 20 stigum á eftir toppliðinu.
Vondur dagur
Aðstaðan til að lýsa leiknum var mjög döpur. Ég veit ekki við hvern er að sakast í þeim efnum, aðstaðan mun snarbatna þegar spilað verður á nýjum heimavelli KA sumarið 2026. Þetta slapp allt saman með hjálp sjónvarpsútsendingar og í samstafi við fréttamann Vísis náðist að lýsa því helsta.
Dómarinn - 8
Vítið var kannski ódýrt en það var klárlega (af sjónvarpsupptöku að dæma) snerting og hreyfing varnarmannsins klaufaleg. Siggi þurfti ekki að flauta mikið.




