Leik lokið!
Víkingar fara beint á toppinn!
Sannfærandi sigur Víkinga sem þýðir bara eitt, þeir eru komnir á toppinn á ný og það stefnir allt í rosalega toppbaráttu!
Viðtöl og skýrsla koma inn á síðuna í kvöld.
Þangað til næst verið þið sæl!
91. mín
InnSveinn Gísli Þorkelsson
ÚtHelgi Guðjónsson
Mjög góð skipting
91. mín
+5 mínútur í uppbótartíma
90. mín
Beint úr aukaspyrnu!
Viktor Örlygur Andrason
Viktor Örlygur tekur bara spyrnuna og lætur vaða að sjálfsögðu. Þetta var föst spyrna en hún var alls ekki góð og þarna fannst mér Daði átt að gera betur. Viktor er að klára þetta!88. mín
Víkingar að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað
Jóhann Ægir Arnarsson
Fer harkalega í Helga Guðjóns rétt við vítateigslínuna.87. mín
Daði Berg!
Daði Berg tekur frábæra blindandi hælsendingu í gegn á Djuric sem er kominn einn gegn Daða en Daði ver mjög vel.
Sturluð sending þarna hjá Daða!
84. mín
Rúmlega 600 áhorfendur í Víkinni
Hefði viljað sjá fleiri, viðurkenni það, en vel gert hjá þeim sem mættu.
83. mín
Helgi í góðu færi
Helgi fær sendingu í gegn og keyrir af stað áður en hann lætur vaða einn á móti Daða sem ver mjög vel.
Hann hefði getað sett þrennuna þarna.
80. mín
InnDaði Berg Jónsson
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
80. mín
InnÓskar Örn Hauksson
ÚtGísli Gottskálk Þórðarson
80. mín
InnVuk Oskar Dimitrijevic
ÚtBjörn Daníel Sverrisson
80. mín
InnRobby Kumenda Wakaka
ÚtArnór Borg Guðjohnsen
77. mín
Gult spjald
Karl Friðleifur Gunnarsson
Stoppar skyndisókn og fær réttilega gult spjald.76. mín
Hvernig svara FH-ingar?
Hafa lítið ógnað af viti í seinni hálfleiknum og eru núna komnir tveimur mörkum undir.
73. mín
Lúrir á fjærstönginni!
Helgi Guðjónsson (stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson)
Davíð Atla kemur boltanum á Karl Friðleif sem er alveg út við endalínu. Karl kemur boltanum yfir allan pakkann og á fjærstöngina þar sem Helgi Guðjóns er mættur og skallar boltann í netið. Helga Guðjóns leiðist ekki að skora gegn FH, búinn að skora í öllum þremur leikjum sumarsins gegn FH!71. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtAri Sigurpálsson
71. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtAron Elís Þrándarson (f)
70. mín
InnJóhann Ægir Arnarsson
ÚtGrétar Snær Gunnarsson
Grétar Snær fer meiddur af velli.
66. mín
Tarik á leið í bann
Tarik Ibrahimagic
65. mín
Þvílíkur klaufaskapur!
FH-ingar hreinsa fram og Ari Sigurpáls ætlar að senda boltann niður á Ingvar en hittir ekki boltann. Arnór Borg nær boltanum og er með Kjartan með sér á móti Ara.
Arnór er alltof lengi að þessu og keyrir í átt að Kjartani í staðinn fyrir að senda á hann eða fara sjálfur og tapar boltanum.
64. mín
Víkingar að fá hornspyrnu!
63. mín
InnKjartan Kári Halldórsson
ÚtKristján Flóki Finnbogason
Kjartan Kári mættur til leiks
59. mín
Verður í banni í þarnæsta leik
Kristján Flóki Finnbogason
Fyrir gamalt brot á Karl Friðleifi. Kristján má spila næsta leik FH gegn Blikum á heimavelli en missir af útileik á Skaganum í þarnæsta leik FH.56. mín
Fær Arnar annað gult?
Arnar Gunnlaugs er á gulu spjaldi en honum er ansi heitt í hamsi þessa stundina og gæti vel líklega fengið sitt annað gula ef hann heldur áfram að mótmæla svona á mínútufresti.

55. mín
Afhverju skaut hann ekki?
Tarik kemur með geggjaðan bolta upp völlinn á Danijel Djuric sem var með flugbraut og keyrði af stað. Hann sparkaði boltanum fyrir markið sem Ari Sigurpáls var hársbreidd nálægt því að komast í en FH-ingar halda í boltann.
Þarna hefði ég viljað sjá Djuric bara láta vaða á markið.
53. mín
Hvenær mætir Kjartan Kári til leiks?
Kjartan er smá meiddur og gat ekki byrjað. Það er spurning hvenær eða hvort þessi frábæri sóknarmaður getur komið inn á og breytt sóknarleik FH.


51. mín
Ekki fyrsta áminning Arnars í sumar
Arnar Bergmann Gunnlaugsson
Fær spjald fyrir mótmælin51. mín
Víkingar vilja víti!
Aron Elís fer niður í teig FH-inga og Víkingar brjálast og vilja víti!
50. mín
Karl Friðleifur tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer beint á Daða Frey í markinu.
49. mín
Annað horn
Karl Friðleifur tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer á Oliver Ekroth sem á skot sem fer aftur á Karl. Karl kemur með annan bolta inn á teiginn sem FH-ingar hreinsa í aðra hornspyrnu.
49. mín
Víkingar að fá hornspyrnu!
46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn!
Heimamennirnir koma þessu í gang á ný fyrir okkur!
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks (af Stöð 2 Sport)
Með boltann: 55% - 45%
Marktilraunir: 3-7
Á rammann: 2-1
Rangstöður: 1-2
Brot: 3-9
45. mín
Víkingar leiða!
Þá hefur Jóhann Ingi flautað til hálfleiks og það eru Víkingar sem leiða með einu marki þegar liðin ganga til búningsklefa.
Líklega sanngjarnar hálfleikstölur en það er ýmislegt sem FH þarf að gera betur skyldu þeir vilja jafna þetta í seinni hálfleiknum.
Tökum okkur korterspásu og mætum síðan til baka að vörmu spori.
45. mín
Hornspyrnan fer yfir allan pakkann í teignum og Víkingar halda nú í boltann undir mikillri pressu frá FH-ingum.
45. mín
+2 mínútur í uppbótartíma
45. mín
Ingvar ver í horn!
Ingimar Stöle fær boltann fyrir utan teig Víkinga og lætur vaða en Ingvar ver glæsilega í horn.
42. mín
Allir hafsentar FH komnir með gult
Finnur Orri Margeirsson
41. mín
Þeir eru ekki lengi að taka spyrnuna. Arnór Borg fær boltann stutt og þeir koma boltanum inn á teiginn en Víkingar vinna boltann og keyra upp í sókn.
40. mín
FH að fá horn!
Arnór Borg með skot sem Oliver Ekroth kemst fyrir.
38. mín
Aftur liggur Oliver
Oliver Ekroth liggur niðri og þarf aðhlynningu.
Hann er núna staðinn upp og getur haldið leik áfram.
37. mín
Karl Friðleifur hefur tekið þó nokkrar spyrnur í dag en oftar en ekki hafa þær farið í Arnór Borg sem er fremsti varnarmaðurinn í teignum eða einn í vegg.
Karl ekki heldur búinn að eiga góðan leik.
35. mín
Bjarni Guðjón er að eiga mjög erfiðan leik. Það er eins og það sé ekki kveikt á honum. Er að tengja illa við liðsfélagana sína og hefur ekki litið vel út í þessum fyrri hálfleik að mínu mati.
34. mín
Matti Villa kemur væntanlega ekkert við sögu í úrslitakeppninni
33. mín
Karl Friðleifur tekur spyrnuna inn á teiginn sem endar á Ingimar Stöle, hann hreinsar í innkast og Víkingar halda í boltann.
32. mín
Víkingur að fá hornspyrnu!
28. mín
Karl Friðleifur tekur spyrnuna inn á teiginn sem Björn Daníel skallar frá en Víkingar halda í boltann.
27. mín
Víkingur að fá horn!
25. mín
Bjarni klaufi!
FH-ingar gera vel á miðsvæðinu og það kemur bolti í gegn á Bjarna og Arnór en Bjarni var langt fyrir innan. Arnór var það ekki en Bjarni tekur boltann samt og flaggið fer á loft.
Bjarni klaufi þarna!
23. mín
Karl Friðleifur tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer aftur beint á Arnór Borg sem er fyrsti maðurinn í teignum.
FH-ingar halda í boltann þessa stundina.
21. mín
Frábær varsla
Tarik gerir frábærlega fyrir utan vítateig FH. Vinnur boltann og tekur strax mjög gott skot sem Daði Freyr ver mjög vel í horn.
21. mín
Gult spjald
Grétar Snær Gunnarsson
Stoppar hættulega sókn Víkinga. Rétt spjald.19. mín
Bjargað á línu!
Arnór Borg tekur spyrnuna inn á teiginn sem Ísak Óli sýnist mér skallar á markið en Aron Elís bjargar á línu!
19. mín
FH að fá hornspyrnu!
17. mín
Karl Friðleifur tekur spyrnuna inn á teiginn sem FH-ingar hreinsa frá.
Víkingar halda áfram í boltann og eru að stýra leiknum þessa stundina.
17. mín
Víkingur að fá horn!
Karl Friðleifur tekur spyrnuna fyrir markið en Ísak Óli skallar aftur fyrir í horn.
15. mín
Gult spjald
Ísak Óli Ólafsson
Fer harkalega í Djuric og fær verðskuldað spjald. Víkingar að fá aukaspyrnu núna á fínum stað.13. mín
Geggjuð sending!
Helgi Guðjónsson (stoðsending: Aron Elís Þrándarson (f))
Frábært mark hjá Helga sem skorar sitt 10. mark í sumar! Aron fær boltann hægra meginn á miðjum vellinum og kemur með sturlaðan bolta inn fyrir í gegn á Helga Guðjóns. Boltinn fer aftur fyrir Finn Orra sem er hársbreidd frá því að komast fyrir sendinguna. Helgi er þá kominn einn í gegn á Daða og klárar listilega. FH-ingar voru búnir að byrja þetta betur en Víkingar hafa nú tekið forystuna og eru allsráðandi!12. mín
Arnór Borg kemur með boltann inn á teiginn en Gunnar Vatnhamar skallar frá. Ísak Óli fær þá boltann úti við hliðarlínu og kemur með boltann fyrir markið áður en Aron Elís hreinsar.
11. mín
FH að fá aukaspyrnu á góðum stað fyrir fyrirgjöf.
9. mín
Sláin!
Arnór Borg tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer beint á Björn Daníel. Björn skallar boltann í slána og Víkingar ná síðan að hreinsa frá.
FH-ingar mikið hættulegri aðilinn þessar upphafsmínútur!
8. mín
FH að fá hornspyrnu
Ingimar Stöle með góða fyrirgjöf á fjærstöngina þar sem Kristján Flóki er mættur og skallar boltann í varnarmann og aftur fyrir.
4. mín
Oliver Ekroth liggur niðri og er þjáður en þarf ekki aðhlynningu. Leikurinn er stopp í hálfa mínútu en hann stendur svo að lokum upp á ný.
1. mín
Komið í gang!
Það eru gestirnir úr firðinum fagra sem byrja þetta fyrir okkur.
Heimamenn leika í svörtum treyjum, svörtum stuttbuxum og svörtum sokkum.
Gestirnir leika í hvítum treyjum, svörtum stuttbuxum og hvítum sokkum.
Fyrir leik
Böddi veikur
Heimir Guðjóns sagði frá því í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leikinn að Böðvar væri veikur sem er ekki í hóp og að Kjartan Kári væri að glíma við einhver smávægileg meiðsli og er á bekknum.
Logi Hrafn er þá í leikbanni þar sem hann hefur fengið núna samtals 10 áminningar í sumar.
Fyrir leik
Styttist
Þá ganga liðin og dómararnir til vallar í þessu fallega haustveðri í Víkinni og klappa í átt að áhorfendunum.
Fyrir leik
Þessi fallegi dagur
Frábærar aðstæður hérna í Víkinni fyrir knattspyrnuiðkun. Fallegur Dagur með Bubba Morthens ómar hér í tækjunum þegar það eru 40 mínútur í leik og þetta gæti varla verið betra.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Víkingar gera þrjár breytingar á sínu líði frá bikarúrslitum en inn koma Helgi Guðjónsson, Danijel Dejan Djuric og Tarik Ibrahimagic.
FH gera þá einnig þrjár breytingar á sínu liði frá síðasta leik en inn koma Ingimar Torbjörnsson Stöle, Grétar Snær Gunnarsson og Finnur Orri Margeirsson.
Fyrir leik
Hvert stig skiptir máli
Breiðablik heldur áfram að vinna sína leiki og halda pressunni á Víkingum sem verða að vinna í kvöld til að endurheimta toppsætið á markatölu. Það stefnir í gríðarlega spennandi keppni um titilinn og fyrst núna sem við fáum að upplifa þá úrslitakeppni sem okkur var lofað þegar hún var sett á laggirnar.
Fyrir FH er þetta ekki síður mikilvægur leikur með mikilvæg stig í boði. Eftir að það varð ljóst að fjórða sætið gæfi ekki lengur sæti í Evrópu hertist baráttan um Evrópusæti til mikilla muna. Stjarnan og Valur gerður jafntefli og ÍA tapaði fyrir Breiðablik svo FH hugsa sér gott til glóðarinnar í kvöld að sækja að þriðja sætinu. Ef FH tekst að vinna í kvöld verða þeir einungis þrem stigum frá þriðja sætinu og lyfta sér upp í 4.sæti.
Staðan í efri hlutanum fyrir kvöldið:
1.Breiðablik - 52 stig
2.Víkingur R. - 49 stig
3.Valur - 39 stig
4.Stjarnan - 35 stig
5.ÍA - 34 stig
6.FH - 33 stig
* Leikurinn í kvöld er síðasti leikurinn í fyrstu umferð eftir skiptingu


Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir í efstu deild
Þessi lið hafa mæst 55 sinnum í efstu deild samkv. vef KSÍ.
Víkingar hafa 21 sinni (38%) hrósað sigri.
FH hafa 17 (31%) hrósað sigri.
Liðin hafa skilið jöfn 17 sinnum (31%).
Fyrri viðreignir í sumar

Fyrir leik
Spámaðurinn
Ásgeir Frank Ásgeirsson, þjálfari Hvíta riddarans og leikmaður Aftureldingar, er spámaður umferðarinnar. Hann fylgir á eftir Gary Martin sem var með fjóra leiki rétta þegar hann spáði í leiki síðustu umferðar.
Víkingur 4 - 1 FH
Það verður enginn bikarþynnka, bara bikarvíma. Víkingsliðið er með svakalegt sjálfstraust núna og eftir sigur á KA í bikarnum verða menn fljótir að kveikja aftur á sér fyrir þennan leik. Djuric skoraði frábært mark gegn Fylki á dögunum og ég býst ekki við neinu öðru en að hann setji hann í þessum leik, við þurfum á öllum hans kröftum fyrir loka leikina. Credit á Tariq sem þurfti ekki meira en 3-4 leiki að aðlagast, hefur verið frábær í síðustu leikjum. Gísli Gotti, Aron Elís, Djuric og Ari skora mörkin og mér er alveg sama hver skorar fyrir FH, þeir verða bara heppnir að ná að lauma inn einu.
Fyrir leik
Víkingur R.
Víkingar enduðu í efsta sætinu eftir 22 leiki með 49 stig og voru markatölunni á undan Breiðablik í öðru sætinu. Eftir smá hnökra í ágúst mánuði hafa Víkingar unnið þrjá góða sigra í röð í deild.
Víkingar töpuðu bikarúrslitaleiknum gegn KA um liðna helgi 2-0 svo þeir munu eflaust mæta dýrvitlausir til leiks.
Víkingar hafa skorað 56 mörk í sumar í þessum 22 leikjum og fengið á sig 23. Það gera plús 33 í markatölu.
Markahæstu menn Víkings eru:
Helgi Guðjónsson - 9 mörk
Valdimar Þór Ingimundarson - 8 mörk
Danijel Dejan Djuric - 8 mörk
Ari Sigurpálsson - 8 mörk
Nikolaj Hansen - 6 mörk
Aron Elís Þrándarson - 4 mörk
Erlingur Agnarsson - 3 mörk
*Aðrir minna

Fyrir leik
FH
FH enduðu í 6.sæti deildarinnar eftir 22 leiki með 33 stig. FH koma inn í skiptinguna á ekkert sérstöku flugi en þeir hafa aðeins sótt 5 stig úr síðustu fimm leikjum sínum.
FH skoraði 39 mörk í þessum 22 leikjum og fengu á sig 38 sem gera plús einn í markatölu.
Markahæstu menn FH eru:
Björn Daníel Sverrisson - 8 mörk
Sigurður Bjartur Hallsson - 7 mörk
Kjartan Kári Halldórsson - 6 mörk
*Úlfur Ágúst Björnsson - 5 mörk
Vuk Oskar Dimirtijevic - 3 mörk
*Aðrir minna

Fyrir leik
Dómarateymið
Jóhann Ingi Jónsson verður á flautunni og honum til aðstoðar verða Guðmundur Ingi Bjarnason og Antoníus Bjarki Halldórsson.
Twana Khalid Ahmed er varadómari og sérlegur tæknimaður á skiltinu.
Eftirlitsmaður KSÍ er svo Frosti Viðar Gunnarsson.


Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá heimavelli hamingjunnar þar sem Víkingar taka á móti FH.








