Fram
0
0
Vestri
05.10.2024 - 14:00
Lambhagavöllurinn
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lambhagavöllurinn
Besta-deild karla - Neðri hluti
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Fyrir leik
Þorri Stefán skrifar undir 3 ára samning
Þorri Stefán Þorbjörnsson er genginn alfarið í raðir Fram frá Lyngby og skrifar hann undir þriggja ára samning í Úlfarsárdal. Þessi 18 ára gamli miðvörður hefur spilað 23 leiki fyrir Fram í sumar.
Hann er uppalinn hjá Fram en hélt í FH fyrir tímabilið 2022 og var þar í eitt og hálft ár áður en hann samdi í Danmörku. Þorri hefur leikið á láni með Fram á tímabilinu og sagði frá því fyrr á þessu ári að hans vilji væri að yfirgefa Lyngby.

Slæm útreið í Vesturbænum og mikilvægur sigur í Djúpinu
Framarar lágu kylliflatir gegn KR í síðustu umferð þegar þeir töpuðu 7-1 þar sem Benóny Breki skoraði meðal annars fjögur mörk.
Vestri spilaði á móti HK í algjörum 6 stiga leik og var það enginn annar en Andri Rúnar Bjarnason sem skoraði sigurmarkið á 84. mínútu til þess að tryggja Vestra 2-1 sigri.
Vestri spilaði á móti HK í algjörum 6 stiga leik og var það enginn annar en Andri Rúnar Bjarnason sem skoraði sigurmarkið á 84. mínútu til þess að tryggja Vestra 2-1 sigri.
Fyrir leik
Viðureignin í dag
Það er ennþá tölfræðilegur möguleiki á því að Fram falli en sá möguleiki er pínkuponsulítill. Það verður hins vegar fróðlegt að sjá hvernig Fram svarar fyrir niðurlæginguna gegn KR í síðustu umferð. Vestri er hins vegar í bullandi baráttu um að halda sér í deildinni. Þetta verður því afar áhugaverð viðureign í dag.
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld: