SKÝRSLAN: Fertugur Óskar Örn bjargaði stigi fyrir Víkinga
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð rólegur þó að bæði lið hafi alveg fengið færi. Leikurinn opnaðist svo hægt og rólega í seinni hálfleik og þá sérstaklega eftir heimsklassa markið hjá Emil Atla. Þá fór leikurinn töluvert fram og til baka. Stjörnumenn héldu svo að þeir væru búnir að vinna leikinn en Óskar Örn var ekki á því. Hann tók eina neglu fyrir utan teig sem fór af varnarmanni og lak í netið.
Bestu leikmenn
1. Óli Valur Ómarsson (Stjarnan)
Óli var klárlega hættulegasti maður Stjörnumanna í þessum leik. Flest hættulegt sem Stjarnan gerði í leiknum kom frá honum og svo var hann með stoðsendinguna á Hilmar.
2. Óskar Örn Hauksson (Víkingur)
Gamli maðurinn kom inná á 64. mínútu og hafði strax áhrif. Hann var mjög mikið í boltanum og endaði leikinn með mark og stoðsendingu.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins var ótrúlegt. Emil skýtur frá eigin vallarhelmingi yfir Pálma í markinu og undir slánna. Stórkostlegt mark hjá Emil.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru enn á toppi deildarinnar en það gæti breyst ef að Breiðablik vinnur Val í kvöld. Stjarnan jafnar Val af stigum en eru eftir á í markatölu. Tveir leikir eftir og það er gríðarleg spenna í þessari Evrópu baráttu þar sem ÍA er einnig bara tveim stigum á eftir.
Vondur dagur
Oliver Ekroth verður líkast til ekki meira með í deildinni. Hann fór meiddur af velli á 79. mínútu og útlit er fyrir slæma tognun aftan í læri. Það er gríðarlegt högg fyrir Víkinga þar sem Oliver er einn besti hafsent deildarinnar.
Dómarinn - 7
Solid frammistaða hjá Sigurði og hans teymi. Línan með gulu spjöldin í fyrri hálfleik fannst mér ekki alveg bein en annars bara flott.




