Joao Pedro í forgangi hjá Liverpool - Man Utd setur verðmiða á Rashford - Real Madrid missir vonina gagnvart Davies
Í BEINNI
Sambandsdeild UEFA - deildarkeppni
Víkingur R.
LL 1
2
Djurgården
Víkingur R.
1
2
Djurgården
0-1 Keita Kosugi '62
0-2 Gustav Wikheim '65
Ari Sigurpálsson '72 1-2
Miro Tenho '75
12.12.2024  -  13:00
Kópavogsvöllur
Sambandsdeild UEFA - deildarkeppni
Aðstæður: Rigning, smá gola og 5 gráður
Dómari: Luka Bilbija (Bosnía)
Maður leiksins: Aron Elís Þrándarson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth
5. Jón Guðni Fjóluson
7. Erlingur Agnarsson ('89)
8. Viktor Örlygur Andrason ('89)
11. Gísli Gottskálk Þórðarson
19. Danijel Dejan Djuric ('66)
21. Aron Elís Þrándarson ('83)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
24. Davíð Örn Atlason ('66)
25. Valdimar Þór Ingimundarson

Varamenn:
16. Jochum Magnússon (m)
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
3. Davíð Helgi Aronsson
9. Helgi Guðjónsson ('89)
12. Halldór Smári Sigurðsson
17. Ari Sigurpálsson ('66)
20. Tarik Ibrahimagic ('89)
23. Nikolaj Hansen (f) ('66)
27. Matthías Vilhjálmsson ('83)
30. Daði Berg Jónsson
31. Jóhann Kanfory Tjörvason

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)

Gul spjöld:
Valdimar Þór Ingimundarson ('34)
Aron Elís Þrándarson ('57)
Nikolaj Hansen (f) ('82)

Rauð spjöld:
@karisnorra Kári Snorrason
Skýrslan: Útivöllur hamingjunnar að bregðast Víkingum í fyrsta sinn
Hvað réði úrslitum?
Upphaf seinni hálfleiks réði úrslitum í dag. Gestirnir hefðu hæglega getað skorað 4-5 mörk en létu tvö duga. Í fyrri hálfleik var jafnræði með liðunum en Djurgården nýttu meðbyrinn í upphaf seinni hálfleiks. Víkingar minnkuðu þó muninn og voru manni fleiri síðustu tuttugu mínúturnar en náðu ekki að skapa sér mikið manni fleiri. Gestirnir lágu lágt niðri og reyndist það Víkingum erfitt.
Bestu leikmenn
1. Aron Elís Þrándarson
Aron frábær í dag, vann öll návígi. Skellur fyrir Víkinga að hann hafi tognað undir lok leiks.
2. Ingvar Jónsson
Ingvar kom nokkrum sinnum til bjargar, þurfti þó ekki að verja oft en úthlaup hans úr markinu voru frábær og bjargaði Víkingum í nokkur skipti. Gísli Gotti flottur og innkoma Ara Sigurpáls mjög góð.
Atvikið
Ég frétti eftir leik að vinstri bakvörður Djurgården, Japaninn Keita Kosugi væri með einkaljósmyndara á leiknum. Einkaljósmyndarinn fylgdi þá einungis Keita eftir og myndaði hann í bak og fyrir. Keita sem skoraði fyrsta mark leiksins er 18 ára gamall og eru bundnar miklar vonir við hann.
Hvað þýða úrslitin?
Fyrsta tap Víkinga á Kópavogsvelli í Sambandsdeildinni er staðreynd. Víkingar hafa gefið Kópavogsvelli viðurnefnið ,,Útivöllur hamingjunnar" en þeir neyðast til að leika þar, þar sem Víkingsvöllur stenst ekki kröfur UEFA. Víkingar eru með sjö stig í Sambandsdeildinni og eiga einn leik eftir. Þar mæta þeir LASK sem þurfa að sækja úrslit gegn Fiorentina í dag ef þeir ætla að halda vonum sínum á lífi um umspilssæti.
Vondur dagur
Miro Tenho leikmaður Djurgården fékk tvö gul á innan við tveimur mínútum undir lok leiks og ýtti undir von Víkinga á jöfnunarmarki, sem kom þó aldrei.
Dómarinn - 9
Ég er ánægður með Bosníumanninn geðþekka, Luka Bilbija. Nelgdi ákvörðunina um að beita hagnaðarreglunni í marki Víkinga, auðvelt hefði verið að dæma strax brot. Hafði góð tök á leiknum heilt yfir.
Byrjunarlið:
35. Jacob Rinne (m)
3. Marcus Danielson
5. Miro Tenho
11. Deniz Hümmet ('88)
13. Daniel Stensson
14. Besard Sabovic
16. Tobias Gulliksen ('88)
18. Adam Ståhl
20. Tokmac Nguen ('79)
23. Gustav Wikheim ('79)
27. Keita Kosugi

Varamenn:
40. Max Croon (m)
45. Oscar Jansson (m)
6. Rasmus Schüller ('79)
9. Haris Radetinac ('88)
15. Oskar Fallenius
17. Peter Therkildsen ('79)
19. Viktor Bergh
22. Patric Åslund
26. August Priske ('88)
29. Santeri Haarala

Liðsstjórn:
Roberth Björknesjö (Þ)

Gul spjöld:
Keita Kosugi ('27)
Daniel Stensson ('45)
Miro Tenho ('74)

Rauð spjöld:
Miro Tenho ('75)