Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tchouameni og Scott á óskalista Man Utd

Fer Van Dijk frá Liverpool?

Mynd: EPA

Tchouameni til Man Utd?

Mynd: EPA

Fer Van Dijk frá Liverpool?

Mynd: EPA

Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins, en það eru margir áhugaverðir mola í pakka dagsins.
Liverpool er tilbúið að hlusta á tilboð í hollenska miðvörðinn og fyrirliðann Virgil van Dijk (34) í sumar. Sumir innan félagsins líta á það sem mistök að hafa framlengt við leikmanninn á síðasta ári. (Teamtalk)
Fulham er komið í kapphlaupið um hollenska vængmanninn Crysencio Summerville (24) frá West Ham. Chelsea og Manchester United hafa einnig áhuga á honum. (Guardian)
Umboðsmaður enska miðvarðarins Trevoh Chalobah (26) hefur rætt við Inter og Como. (Gazzetta dello Sport)
Barcelona ætlar ekki að eltast við Harry Kane (32), framherja Bayern Munchen í Þýskalandi. (Sport)
Matty Warhurst (19), framherji Manchester City, er á óskalista hjá Northampton Town, Stockport County og Swindon Town. (Mail)
Viðræður Arsenal og Aston Villa um Morgan Rogers (26) munu dragast eitthvað á langinn, enda langt á milli félaganna í verðmati á leikmanninum. (Football Insider)
Leeds er komið á undan Juventus í baráttunni um japanska markvörðinn Zion Suzuki (23), sem er á mála hjá Parma á Ítalíu. Hann mun kosta um 25 milljónir punda. (Sport Italia)
Franski miðjumaðurinn Aurelien Tchouameni (26) og Alex Scott (22), leikmaður Bournemouth, eru ofarlega á óskalista Manchester United. (Sky Sports)
Mark Travers (27), markvörður Everton og írska landsliðsins, er í sigtinu hjá nýliðum Coventry City. (Mail)
Líklegast er að egypski vængmaðurinn Mohamed Salah (34) fari til Sádi-Arabíu, en hann yfirgaf Liverpool eftir tímabilið. (Mirror)
Coventry er meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á belgíska framherjanum Lois Openda (26), sem er á mála hjá Juventus á Ítalíu. (Gazzetta dello Sport)