Fylkir
2
3
Valur

Guðmundur Tyrfingsson
'12
1-0
Benedikt Daríus Garðarsson
'20
2-0
2-1
Orri Hrafn Kjartansson
'23
2-2
Patrick Pedersen
'82
2-3
Sigurður Egill Lárusson
'83
22.03.2025 - 14:00
Würth völlurinn
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Maður leiksins: Ragnar Bragi Sveinsson
Würth völlurinn
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Maður leiksins: Ragnar Bragi Sveinsson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Segatta

8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Eyþór Aron Wöhler
10. Benedikt Daríus Garðarsson
('45)

13. Bjarki Steinsen Arnarsson
14. Theodór Ingi Óskarsson
16. Emil Ásmundsson
19. Arnar Númi Gíslason
70. Guðmundur Tyrfingsson
('73)

Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
7. Daði Ólafsson
11. Pablo Aguilera Simon
('45)

15. Eyjólfur Andri Sverrisson
17. Stefán Logi Sigurjónsson
22. Þórður Ingi Ingimundarson
('73)

23. Þorkell Víkingsson
Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Ólafur Engilbert Árnason
Gul spjöld:
Orri Sveinn Segatta ('90)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Valsmenn eru Lengjubikarmeistarar árið 2025
Ívar Orri flautar til leiksloka. Endurkomu sigur en Valsmenn lentu 2-0 undir og náðu að svara með þremur mörkum.
Takk fyrir mig í dag. Nánari umfjöllun á síðuna síðar í dag.
Takk fyrir mig í dag. Nánari umfjöllun á síðuna síðar í dag.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma. Allt útlit fyrir að Valsmenn eru að fara sigla þessu heim.
87. mín
Hólmar að bjarga á línu
Fylkir nálægt því að jafna þetta.
Númi með fyrirgjöf á teiginn á Ásgeir Eyþórs sem nær skalla en Hólmar Örn bjargar á línu.
Númi með fyrirgjöf á teiginn á Ásgeir Eyþórs sem nær skalla en Hólmar Örn bjargar á línu.
83. mín
MARK!

Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Comeback á Wurthvellinum
Góð sending inn fyrir á Jónatan Inga sem leggur boltann á Sigurð Egil sem setur boltann i netið.
82. mín
MARK!

Patrick Pedersen (Valur)
Fylkismenn ná ekki að hreinsa boltann almennilega og boltinn hrekkur fyrir fætur Patta Pedersen sem klárar
Allt jafnt!!
Allt jafnt!!
75. mín
Valur fær hornspyrnu.
Birkir Heimisson spyrnusérfræðingur Vals teiknar boltann á Hólmar Örn skallar boltann yfir.
Birkir Heimisson spyrnusérfræðingur Vals teiknar boltann á Hólmar Örn skallar boltann yfir.
64. mín
Eynþór Wöhler nálægt því að setja hann þarna. Fær boltann við teiginn og reynir að lauma boltanum i nær en boltinn rétt framhjá.
58. mín
Jónatan Ingi keyrir upp hægri vænginn og reynir að finna Albin fyrir utan en Fylkismenn komast í boltann.
56. mín
Tryggvi Hrafn
Patrick Pedersen fær boltann fyrir utan og leggur boltann til hliðar á Tryggva Hrafn en skot hans framhjá.
52. mín
Tómas Bent fær boltann fyrir utan teig og á skot sem Ólafur Kristófer þarf að verja í hornspyrnu.
Alvöru hraði í þessu síðustu mínútur.
Alvöru hraði í þessu síðustu mínútur.
52. mín
Fylkir keyrir upp og boltinn endar hjá Tedda sem á skot fyrir utan og boltinn fer í slánna.
51. mín
Valur fær aukaspyrnu á vinstri vængnum.
Birkir Heimisson með frábæran bolta inn á teiginn en enginn Valsari ræðst á boltann.
Birkir Heimisson með frábæran bolta inn á teiginn en enginn Valsari ræðst á boltann.
45. mín
Hálfleikur
Ívar Orri flautar til hálfleiks.
Fylkir fer með 2-1 forskot inn til búningsherbegja. Tökum okkur pásu í korter.
Fylkir fer með 2-1 forskot inn til búningsherbegja. Tökum okkur pásu í korter.
35. mín
Emil Ásmundsson fær boltann fyrir utan teig og á skot sem er þægilegt fyrir Stefán.
31. mín
Pedersen fær boltann í gegn
Flaggið á loft.
Valsmenn eru að gera sig líklega í að jafna leikinn hérna fyrir hálfleik.
Valsmenn eru að gera sig líklega í að jafna leikinn hérna fyrir hálfleik.
29. mín
Valsarar hóta
Patrick Pedersen fær boltann inn fyrir og finnur Jónatan Inga sem gerir frábærlega úti hægra megin og á flottan bolta inn á teig Fylkis þar sem Tryggvi Hrafn er aleinn en setur boltann yfir markið.
Þetta var dauðafæri og þarna átti Tryggvi Hrafn bara hreinlega að skora.
Þetta var dauðafæri og þarna átti Tryggvi Hrafn bara hreinlega að skora.
26. mín
Birkir Heimisson með hornspyrnu á hausinn á Tómasi Bent sem á skalla sem ratar ekki á markið.
23. mín
MARK!

Orri Hrafn Kjartansson (Valur)
MAAAAAAAARKKKKK.
Orri Hrafn fer í gott samspil við Albin og Orri fær hann inn fyrir og leikur á nokkra Fylkismenn áður en hann setur boltann í netið.
2-1. Líf og fjör í þessu.
2-1. Líf og fjör í þessu.
20. mín
MARK!

Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir)
Stoðsending: Emil Ásmundsson
Stoðsending: Emil Ásmundsson
MAAAAAAAAAAAAAAARK
Skyndisókn og 2-0. Ég skal segja ykkur það!!!!
Emil Ásmundsson með bolta inn fyrir á Benedikt Daríus sem klárar frábærlega framhjá Stefáni.
Emil Ásmundsson með bolta inn fyrir á Benedikt Daríus sem klárar frábærlega framhjá Stefáni.
20. mín
Tryggvi Hrafn nær einhverneigin að troða sér í gegn og nær máttlausu skoti sem fer beint á Ólaf Kristófer.
18. mín
Númi með frábæra hornspyrnu frá hægri á hausinn á Emil sem nær skalla en boltinn ekki í netið.
Fylkir nálægt því þarna að bæta við.
Fylkir nálægt því þarna að bæta við.
14. mín
Valsmenn nálæt því asð svara
Birkir Heimisson með hornspyrnu frá hægri beint á hausinn á Tómas Bent en Ólafur Kristófer ekki í vandræðum.
12. mín
MARK!

Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson
Stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson
MAAAAAAAAARK
Fylkismenn eru komnir yfir!!!!
Bjarki Steinsen fær boltann hægra megin og Theodór Ingi tekur utan á hlaup á Bjarka. Theodór neglir boltanum meðfram jörðinni inn á hættusvæðið og þar mætir Guðmdundur Tyrfingsson og neglir boltanum sláin og inn.
Frábært mark hjá heimamönnum.

9. mín
Bjarki Steinsen með frábæran bolta inn á Guðmund Tyrfings sem nær skalla á markið en náði ekki að stýra boltanum framhjá Stefáni í marki Valsmanana.
6. mín
Guðmundur Tyrfings er hér skyndilega sloppinn einn í gegn en Stefán Þór ver frá Guðmundi.
5. mín
Valur fær hornspyrnu
Góður sprettur hjá Markus Lund sem vinnur hornspyrnu.
Tryggvi Hrafn tekur spyrnuna á Hólmar sem nær ekki að strýra boltanum á markið.
Tryggvi Hrafn tekur spyrnuna á Hólmar sem nær ekki að strýra boltanum á markið.
2. mín
Gult spjald: Orri Sigurður Ómarsson (Valur)

Rífur í Ragnar Braga og er hér færður til bókar.
Algjör óþarfi hjá Orra en engin hætta var þarna. Vont sem varnarmaður að vera komin í bókina eftir þriggja mínútna gamlan leik.
Algjör óþarfi hjá Orra en engin hætta var þarna. Vont sem varnarmaður að vera komin í bókina eftir þriggja mínútna gamlan leik.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað
Fylkismenn byrja með boltann og sækja í átt að Árbæjarlaug.
Fyrir leik
Ívar Orri leiðir liðin til leiks
Vallarþulur Fylkis er að kynna liðin, búið að hella upp á og styttist í að við fáum upphafsflautið hér í Árbænum.
Vonandi fáum við mikla skemmtun hér í dag.
Vonandi fáum við mikla skemmtun hér í dag.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Stefán Þór Ágústsson kemur inn í mark Valsara í stöð Ögmundar Kristinssonar sem fékk rauða spjaldið í undanúrslitum.
Það er eina breyting Vals í dag og þá er Andi Hoti, sem kom frá Leikni í gær, á bekknum.
Fylkismenn gera sömuleiðis eina breytingu. Benedikt Daríus Garðarsson kemur inn fyrir Guðmar Gauta Sævarsson.

Dómarinn
Ívar Orri Kristjánsson fær góðan undirbúning fyrir Íslandsmótið sem hefst eftir tæpa 14 daga með því að vera á flautunni hér í dag. Hann verður með þá Birki Sigurðsson og Eysteinn Hrafnkelsson. Varadómari í dag verður Gunnar Freyr Róbertsson

Fyrir leik
Valur
Valsmenn komu sér einnig í undanúrslitin með því að vinna riðil 1 og einnig ósigraðir. Valsmenn unnu fjóra leiki og gerði liðið eitt jafntefli.
Valur fékk ÍR í heimsókn á Hlíðarenda og komst liðið í úrslitaleik Lengjubikarsins eftir sigur í vítaspyrnukeppni.
Valur fékk ÍR í heimsókn á Hlíðarenda og komst liðið í úrslitaleik Lengjubikarsins eftir sigur í vítaspyrnukeppni.

Fyrir leik
Fylkir
Fylkirmenn komu sér í undarnúrslitin með því að vinna riðil 2 ósigrðir. Liðið vann þrjá og gerði 2 jafntefli.
Fylkir fékk KR í heimsókn upp í Árbæ í undanúrslitunum og endaði sá leikur með 2-1 sigri Fylkis eftir mikla dramatík þegar Eyþór Aron Wöhler skoraði og tryggði Fylkismönnum þennan leik hér í dag.

25. Stefán Þór Ágústsson (m)
4. Markus Lund Nakkim
8. Jónatan Ingi Jónsson
9. Patrick Pedersen

12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
('63)

14. Albin Skoglund
15. Hólmar Örn Eyjólfsson

19. Orri Hrafn Kjartansson
('73)

20. Orri Sigurður Ómarsson
('73)

24. Tómas Bent Magnússon
('63)

71. Birkir Heimisson
Varamenn:
31. Tómas Blöndal-Petersson (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
('73)

6. Marius Lundemo
('63)

11. Sigurður Egill Lárusson
('73)

16. Gísli Laxdal Unnarsson
17. Lúkas Logi Heimisson
('63)

21. Andi Hoti
Liðsstjórn:
Srdjan Tufegdzic (Þ)
Haukur Páll Sigurðsson
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Jóhann Emil Elíasson
Örn Erlingsson
Gul spjöld:
Orri Sigurður Ómarsson ('2)
Hólmar Örn Eyjólfsson ('50)
Rauð spjöld: