Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Keflavík
Keflavík
Mjólkurbikar karla
Nettóhöllin-gervigras
6 - 0
Þróttur V.
Þróttur V.
Eiður Orri Ragnarsson 40'1 - 0Kári Sigfússon 51'2 - 0Gabríel Aron Sævarsson 53'3 - 0Muhamed Alghoul (víti) 57'4 - 0Kári Sigfússon 61'5 - 0Valur Þór Hákonarson 89'6 - 0
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: Keflavík kafsigldi Þrótt V. í síðari hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Keflavík átti fleiri gíra fyrir leik dagsins. Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik skipti Keflavík algjörlega um gír í þeim seinni og leit aldrei um öxl, Gestirnir úr Vogum réðu ekki við neitt og því fór sem fór.

Bestu leikmenn

1. Kári Sigfússon

Var nokkuð rólegur í fyrri hálfleik en sprakk út í þeim síðari. Hætta skapaðist í hvert sinn sem hann fékk boltann og var í raun óheppinn að skora bara tvö í dag.

2. Gabríel Aron Sævarsson

Duglegur að finna sér svæði í kringum vörn Þróttar og uppskar eins og hann sáði. Skoraði gott mark og átti heilt yfir fínan leik. Framtíðarmaður í liði Keflavíkur.

Atvikið

Rétt fyrir hálfleiksflautið fengur gestirnir hörkufæri sem nýttist þó ekki. Hefði leikurinn þróast öðruvísi ef liðin hefðu gengið jöfn til búningsherbergja í hálfleik?

Hvað þýða úrslitin?

Keflavík verður í pottinum þegar dregið verður í 32 liða úrslit á morgun. Bikardraumar Þróttar eru þó ekki með öllu úr sögunni því þeir eru einnig þáttakendur í Fótbolta.net bikarnum sem hefst í júní.

Vondur dagur

Auðun Helgason þjálfari Þróttar hafði á orði eftir leik að lið hans ætti nokkuð í land. Það má færa rök fyrir því að hann hafi fyllilega rétt fyrir sér. Brotnuðu snemma í síðari hálfleik og voru farnir ansi langt út úr því skipulagi sem hafði reynst þeim svo vel í fyrri hálfleik. Reynsla sem þeir munu væntanlega draga lærdóm af.

Dómarinn - 8

Ekkert upp á tríóið að klaga. Leikurinn sem slíkur mögulega ekki erfiður að dæma heldur og lítið um pústra og brot til að tala um.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.