SKÝRSLAN: Glæsimark sendi stigin þrjú á Skagann
Hvað réði úrslitum?
Stórkostleg aukaspyrna Rúnars Más Sigurjónssonar skildi liðin að og réði úrslitum þegar upp var staðið. Agaður varnarleikur og sterkar vörslur Árna í marki ÍA undir lokin læstu stigunum svo endanlega í fang ÍA.
Bestu leikmenn
1. Rúnar Már Sigurjónsson
Sterkur á miðju vallarinns og átti góðan leik. Glæsimarkið spillti ekki fyrir.
2. Árni Marinó Einarsson
Í leik þar sem þú sem markvörður hefur lítið að gera í að verja mark þitt er auðvelt að missa einbeitingu. Eftir tíðindalítin leik í eigin teig fékk Árni krefjandi verkefni undir lokin þegar hann átti tvær stórgóðar markvörslur eftir dauðafæri liðs Fram. Stóð að af sér og fær því þetta sæti.
Atvikið
Mark Rúnars stendur klárlega upp úr eftir svona iðnaðarslag.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn sækja sér 3 stig og byrja mótið á góðu róli. Fram enn stigalaust.
Vondur dagur
Rúnar Kristinsson sagði lið sitt ekki hafa þorað að spila boltanum með jörðinni með vindinn í bakið í fyrri hálfleik. Betur gekk í þeim síðari en Rúnar hlýtur að vera súr með það að gefa mönnum réttu verkfærin sem þeir svo þora ekki að nýta.
Dómarinn - 7
Heilt yfir fínn leikur hjá Twana og hans teymi. Leyfðu leiknum að fljóta nokkuð vel og dæmdu leikinn ágætlega. Tvær mínútur í uppbótartíma er ég þó ekki alveg viss með. Ég hefði reiknað með fjórum miðað við gang leiksins í síðari hálfleik.



