Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Þrjár gráður og blástur
4 - 0
KA
KA
Valdimar Þór Ingimundarson 3'1 - 0Valdimar Þór Ingimundarson 14'2 - 0Karl Friðleifur Gunnarsson 24'3 - 0Helgi Guðjónsson 55'4 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Víkingar kláruðu KA á 24 mínútum

Hvað réði úrslitum?

Eftir rúmar 20. mínútur áttu Víkingar fjögur skot en staðan 3-0. Í hvert einasta skipti sem þeir fengu tækifæri til þá refsuðu þeir. KA voru ekkert mun slakari en gæðin fram á við hjá Víkingum voru bara of mikil. Í stöðunni 3-0 sá kom pirringur í KA-menn og um leið fór trúin. Þessi sigur var aldrei í hættu hjá Víkingum.

Bestu leikmenn

1. Helgi Guðjónsson

Helgi skoraði og lagði upp í dag. Hefði getað skorað fleiri en eitt, samt sem áður frábær í dag.

2. Karl Friðleifur Gunnarsson

Karl Friðleifur geggjaður í dag. Fannst hann ekki stíga feilspor. Skoraði síðan frábært mark. Síðan verður að minnast á Valdimar Þór sem var óstöðvandi þessar tuttugu mínútur sem hann spilaði.

Atvikið

Ætli það sé ekki mark Karl Friðleifs sem endanlega kláraði þennan leik á 24. mínútum.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga. KA er eins og stendur í 11. sæti með eitt stig.

Vondur dagur

Úff, það eru ansi margir úr þessu KA-liði sem voru slakir í dag. Hans Viktor var þó langt frá því að vera á sínum besta degi þannig að hann hlýtur þessa nafnbót.

Dómarinn - 8

Villi Alvar og félagar flottir í dag. Ekkert við kvartettinn að sakast.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.