Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Mjólkurbikar karla
Malbikstöðin að Varmá
Sólin skín
Afturelding
Afturelding
5 - 0
Höttur/Huginn
Höttur/Huginn
Elmar Kári Enesson Cogic 14'1 - 0Enes Þór Enesson Cogic 33'2 - 0Aron Elí Sævarsson 55'3 - 0Hrannar Snær Magnússon 69'4 - 0Arnór Gauti Ragnarsson 73'5 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Enginn uppbótartími
Afturelding verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Takk fyrir samfylgdina í dag!
88. mín
Aftureldinga að fá hornspyrnu
Afturelding
85. mín
InnÓðinn Már Guðmundsson
ÚtSævar Atli Hugason
Afturelding
77. mín
InnRikharður Smári Gröndal
ÚtAron Elí Sævarsson
Aron búinn að vera frábær í dag
77. mín
Arnór Gauti skallar boltann frá í innkast.
Höttur/Huginn
77. mín
InnAlexander Klausen
ÚtAndré Musa Solórzano Abed
Höttur/Huginn
77. mín
InnBjörgvin Stefán Pétursson
ÚtSæþór Ívan Viðarsson
Höttur/Huginn
77. mín
InnÞór Albertsson
ÚtÍvar Logi Jóhannsson
75. mín
Gestirnir að fá hornspyrnu
Afturelding
73. mín
Varamennirnir endanlega að klára þetta!

Arnór Gauti Ragnarsson (stoðsending: Hrannar Snær Magnússon)

Hrannar Snær kemur boltanum inn á teiginn á Arnór Gauta sem er einn og óvaldaður. Hann tekur á móti boltanum og klárar síðan fantavel framhjá Gerard. 5-0!
Afturelding
69. mín
Ekki lengi að skora!

Hrannar Snær Magnússon

Hrannar búinn að vera inn á í einhverjar tvær mínútur þegar hann skorar. Fær langan bolta yfir á vinstri kantinn áður en hann keyrir inn á teiginn og klárar afbragðs vel.
Afturelding
67. mín
InnHrannar Snær Magnússon
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
Afturelding
67. mín
InnBjartur Bjarmi Barkarson
ÚtGeorg Bjarnason
Afturelding
67. mín
InnArnór Gauti Ragnarsson
ÚtAndri Freyr Jónasson
63. mín
Bjargað á línu í slána og svo hreinsað frá!
Þórður Gunnar gerði frábærlega á vinstri kantinum og tekur skotið á markið sem fer í varnarmann, í slána, þaðan í markmanninn áður en varnarmaðurinn nær á einhvern ótrúlegan hátt að hreinsa aftur frá.
60. mín
120 áhorfendur í Mosó
Ekki hægt að segja að það sé fjölmennt á leiknum.
59. mín
Önnur hornspyrna!
Boltinn berst út á Elmar Kára sem dúndrar boltanum á Gerard í markinu sem vera boltann aftur fyrir í annað horn.
58. mín
Heimamenn fá hornspyrnu!
Seinni hálfleikurinn byrjar frábærlega hjá Aftureldingu.
Afturelding
55. mín
Fyrirliðinn skallar hann í netið!

Aron Elí Sævarsson (stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic)

Elmar Kári tekur spyrnuna á fjærsvæðið þar sem Aron Elí er mættur og skallar boltann yfir Gerard í markinu og í netið. Skallinn var lengi á leiðinni í markið og spurning hvort Gerard hefði getað gert betur í markinu.
53. mín
Elmar Kári tekur spyrnuna inn á teiginn sem gestirnir skalla frá á Sævar Atla, hann reynir skotið sem Hattar/Hugins menn verjast vel.
52. mín
Mosfellingar að fá hornspyrnu!
Klaufagangur í uppspili gestanna.
49. mín
Hattar/Hugins menn verjast vel.
49. mín
Afturelding að fá hornspyrnu!
46. mín
Seinni er farinn af stað!
Hinn frábæri Sæþór Ívan kemur okkur aftur í gang!
45. mín
Mosfellingar leiða 2-0 í hálfleik mjög sanngjarnt.
45. mín
1 mínúta í uppbótartíma
Höttur/Huginn
44. mín
Gult spjald

Genis Arrastraria Caballe

Sýndist það vera Genis frekar en fyrirliðinn André sem átti þessa tæklingu.
37. mín
Sláin!
Aron Elí kemur með góðan bolta inn á teiginn á Georg Bjarna sem skallar boltann í þverslána og fer svo aftur fyrir í markspyrnu.
Afturelding
33. mín
Bræðra samvinna!

Enes Þór Enesson Cogic (stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic)

Elmar Kári fær boltann við vítateiginn hægra meginn og kemur honum á litla bróður sinn, Enes Þór, sem klárar smekklega í nærhornið og tvöfaldar forystu Aftureldingar. Bræðraveisla og samvinna í Mosó!
32. mín
Georg Bjarnason keyrir upp hægri kantinn og kemur boltanum fyrir á Elmar Kára sem stangar boltann bein á Gerard.
30. mín
Leikurinn róast
Afturelding hefur náð að róa leikinn niður eftir opnunarmarkið. Halda meira og minna í boltann og gefa gestunum lítinn tíma á boltanum.
Höttur/Huginn
22. mín
InnÞórhallur Ási Aðalsteinsson
ÚtStefán Ómar Magnússon
Fyrsta skipting leiksins
Afturelding
14. mín
OG ÞAÐ KOM MARK!

Elmar Kári Enesson Cogic

Auðvitað var það Elmar Kári sem skoraði fyrsta mark leiksins. Fær boltann við vítateigslínuna og klárar fantavel framhjá Gerard. Þetta lá í loftinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
13. mín
Aron Elí, fyrirliði heimamanna, gerir frábærlega á vinstri kantinum og kemur boltanum fyrir markið á Sævar Atla. Sævar tekur skotið í fyrsta sem Gerard nær að handsama. Það liggur mark í loftinu hjá Mosfellingum.
11. mín
Afturelding ógnar
Þórður Gunnar fær boltann í gegn og setur hann fyrir markið á Andra Frey sem tekur skotið beint á Gerard í markinu en aðstoðardómarinn setur flaggið á loft. Boltinn fór víst útaf hjá Þórði Gunnari.
8. mín
Leikurinn byrjar afar rólega, Afturelding meira með boltann eins og við mátti búast en Hattar/Hugins menn eru að hóta með skyndisóknum og löngum boltum.
3. mín
Arnar Daði byrjar í markinu
Arnar Daði Jóhannesson byrjar milli stanganna í dag á meðan aðalmarkmaðurinn, Jökull Andrésson, tekur sér sæti á bekknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. mín
Það eru heimamennirnir úr Mosfellsbænum sem byrja þetta fyrir okkur í dag.
0. mín
Þjálfari Aftureldingar á góðar minningar gegn Hetti
Afturelding er að spila sína fyrstu leiktíð í sögunni í efstu deild eins og flestir vita en Höttur/Huginn leikur í 2. deildinni. Afturelding hefur aldrei spilað við Hött/Huginn en þeir hafa nokkrum sinnum spilað við Hött og Huginn. Seinast þegar Mosfellingar mættu Hetti var það útileikur í lokaumferð 2. deildar karla árið 2018 en þá var Magnús Már Einarsson, núverandi þjálfari Aftureldingar, aðstoðarþjálfari Aftureldinar. Höttur þurfti sigur til þess að eiga möguleika á að halda sér uppi og Afturelding þurfti sigur til þess að komast upp í B deildina. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Hetti. Afturelding vann leikinn 3-1 sem gerði það að verkum að þeir unnu deildina á markatölu. Höttur féll það tímabil ásamt Huginn niður í 3. deildina en eftir það tímabil sameinuðust liðinn í Höttur/Huginn.
Mynd: Hanna Símonardóttir
0. mín
Bikar Baddi spáir í spilin
Baldvin Már Borgarsson spáir í spilin í bikarnum þessa helgina. Afturelding 3 - 0 Höttur/Huginn (í dag klukkan 14) Mosfellingar eru of stór biti fyrir Brynjar Árna og hans lærisveina, Maggiball fær að njóta sín betur gegn 2. deildarliði en hann hefur fengið í upphafi Bestu deildarinnar og sækja nokkrir leikmenn sér smá sjálfstraust í þennan leik, Hrannar Snær skorar.
0. mín
Þriðja liðið
Helgi Mikael sér um að dæma þennan leik en honum til aðstoðar verða þeir Kristján Már Ólafs og Tryggvi Elías Hermannson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Skírdagur í Mosó!
Heil og sæl gott fólk og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Aftureldingar og Hattar/Hugins í Mjólkurbikarnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.