Leik lokið!
Frábær sigur Eyjamanna staðreynd.
Frábær síðari hálfleikur skilar þeim farseðli í 16 liða úrslit. Víkingar sem ætluðu sér bikarinn aftur verða að bíta í það súra epli að falla út á fyrstu hindrun.
92. mín
InnJóhann Kanfory Tjörvason
ÚtStígur Diljan Þórðarson
92. mín
InnÞorri Ingólfsson
ÚtHelgi Guðjónsson
88. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtArnór Ingi Kristinsson
88. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
85. mín
Framhjá!
Ingvar í rangt horn en Bjarki setur boltann framhjá markinu.
84. mín
Eyjamenn eru að fá víti
Víðir sækir vítaspyrnu sem er kolröng Ingvar á undan í boltann.
Ekki að það breyti neinu.
83. mín
InnVíðir Þorvarðarson
ÚtÞorlákur Breki Þ. Baxter
83. mín
InnNökkvi Már Nökkvason
ÚtArnar Breki Gunnarsson
79. mín
Oliver í algjöru dauðafæri í teig Víkinga en þrumar boltanum yfir markið.
76. mín
InnHermann Þór Ragnarsson
ÚtOmar Sowe
72. mín
Gylfi með máttlítinn skalla að marki eftir fyrirgjöf frá Helga.
68. mín
Eyjamenn eru að klára þetta!
Omar Sowe (stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson)
Alex Freyr með boltann fyrir markið frá hægri eftir að Víkingar skalla hornið frá. Omar Sowe mætir á fjær og skallar boltann í netið af stuttu færi.67. mín
Omar Sowe með skot úr teignum sem fer af varnarmanni og í hornspyrnu.
64. mín
Gult spjald
Sveinn Gísli Þorkelsson
Skrefinu of seinn í Oliver og uppsker gult spjald.61. mín
Dauðafæri Víkinga
Helgi Guðjónsson með frábæra sendingu inn á teiginn á Atla sem aftur fer gríðarlega illa með dauðafæri og setur boltann framhjá markinu.
58. mín
Gult spjald
Arnar Breki Gunnarsson
Nokkuð groddaraleg tækling og klárt gult spjald.57. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtMatthías Vilhjálmsson
54. mín
Eyjamenn refsa!
Alex Freyr Hilmarsson
Oliver með sendingu frá hægri inn á teiginn. Boltinn fellur fyrir Alex Frey sem á skot í varnarmann. Boltinn aftur á Alex sem verða á engin mistök og skilar boltanum i netið í annari tilraun.53. mín
Atli Þór í dauðafæri
Vinnur skallann á markteig en skallar boltann víðsfjarri markinu. Átti að gera mun betur þarna.
52. mín
Víkingar þurfa að svara
Verið með boltann frá marki ÍBV en ekki skapað sér færi.
47. mín
MAAAARK!
Omar Sowe (stoðsending: Oliver Heiðarsson)
Oliver Heiðarsson úti til vinstri með boltann tekur Svein Gísla á og leggur boltann inn á teiginn. Þar vinnur Omar sig framhjá Karli Friðleifi og skilar boltanum í netið af stuttu færi.46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Eyjamenn sparka okkur af stað á ný.
45. mín
+2
Enn allt jafnt í Vestmannaeyjum eftir þennan fyrri hálfleik. Víkingar verið heilt yfir meira með boltann en Eyjamenn sennilega fengið hættulegri færi það sem af er.
Komum aftur að vörmu spori með síðari hálfleikinn.
45. mín
+2
Atli Þór Jónasson
45. mín
Tvær mínútur að lágmarki í uppbótartíma
43. mín
Alex Freyr í hörkufæri
Fær boltann í teignum frá Þorláki Breka og nær skotinu. Matti Vill vel á verði og hendir sér fyrir skotið og Eyjamenn eiga horn.
35. mín
Oliver á sprettinn
Stingur einfaldlega af og keyrir í gegnum vörn Víkinga. Skot hans hárfínt framhjá.
34. mín
Tarik reynir skot eftir hornspyrnu. Fer vel undir boltann og lyftir honum hátt yfir.
31. mín
Gult spjald
Alex Freyr Hilmarsson
Brýtur á Helga Guðjónssyni á vallarhelmingi ÍBV29. mín
Omar Sowe með hörkuskot af vítateigslínu. Tiltölulega beint á Ingvar sem nær þó ekki að halda boltanum.
28. mín
Bjarki Björn flýgur á stöngina eftir fyrirgjöf frá vinstri. Rís fljótt upp aftur og virðist í lagi.
25. mín
Omar Sowe er sestur á völlinn og kveinkar sér.
Heldur um ökklann og virðist nokkuð kvalinn.
Mætir þó aftur til leiks.
24. mín
Vikingar að herða tökin
Boltinn fyrir markið frá hægri yfir á fjær. Þar er Stígur mættur en nær ekki að koma boltanum á markið. Hjörvar í vandræðum með að handsama boltann en gerir það í annari tilraun.
20. mín
Hjörvar Daði
Gerir frábærlega að verja skalla frá Atla Þór af stuttu færi. Hefði ekki talið þó þar sem flaggið fer á loft.
19. mín
Helgi Guðjónsson með skot eftir laglega sendingu frá Gylfa, hittir ekki markið og markspyrna frá marki ÍBV.
15. mín
Oliver Heiðarsson með alvöru sprett upp völlinn, nær fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Omar Sowe bíður en Matti Vill fyrri til og hreinsar i horn.
14. mín
Bjarki Björn gerir vel að vinna boltann á vallarhelmingi Víkinga. Skot hans i kjölfarið þó slakt og ekki til vandræða fyrir Ingvar.
11. mín
Stígur Diljan að vinna sig í færi en varnarmenn komast fyrir skot hans og boltinn í horn.
9. mín
Gult spjald
Tarik Ibrahimagic
Fyrir brot á miðjum vellinum.6. mín
Fyrsta skotið
Oliver reynir að taka hann í fyrsta þegar boltinn dettur niður í teig Víkinga en setur boltann himinhátt yfir markið.
4. mín
Fer rólega af stað.
Sólin skín en talsverður vindur er á vellinum í Eyjum. Liðin að fóta sig á vellinum og fátt um fína drætti á þessum fyrstu mínútum.
1. mín
Þetta er farið af stað í Vestmannaeyjum. Það eru Víkingar sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Liðin mætt í hús
Þorlákur Árnason gerir breytingar á liði ÍBV frá deildarleik liðsins gegn Aftureldingu á dögunum. MIlan Tomic og Hermann Þór Ragnarsson fara úr byrjunarliði þeirra fyrir þá Arnar Breka Gunnarsson og Omar Sowe.
Víkingar gera sömuleiðis breytingar á sínu liði frá 4-0 sigrinum á gegn KA á dögunum. Erlingur Agnarsson, Viktor Örlygur Andrason og Valdimar Þór Ingimundarson detta út. Í þeirra stað byrja þeir Stígur Dilján Þórðarson, Atli Þór Jónasson og Gylfi Þór Sigurðsson.
Fyrir leik
Bikar Baddi rýnir í gögnin
Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net í bikarnum og hann spáir í leikina.
17.04.2025 10:46
ÍBV 1 - 2 Víkingur
Alvöru grasleikur af gamla skólanum, Víkingar eru physical og direct, Eyjamenn eru alltaf Eyjamenn og þá sérstaklega í Eyjum, þetta verður stál í stál og það kemur einhver hark klafs winner seint í leiknum, þetta verður ekkert sami brasilíski bílastæðaboltinn og gegn KA um daginn.
Bikar Baddi spáir í 32-liða úrslitin

Fyrir leik
Þórsvöllur er klár
Eyjamenn hafa verið að gera allt klárt á Þórsvelli og meðal annars hafa verið sett sæti í brekkuna til að gera alla aðstöðu sem besta.


Fyrir leik
Eftirminnilegur bikarslagur
Liðin áttust við í 8 liða úrslitum Mjólkurbikarsins árið 2019 í mjög svo eftirminnilegum leik.
Víkingar lentu í gríðarlegri brekku í leiknum þar sem Guðmundur Magnússon fór mikinn og gerði tvö mörk í fyrri hálfleik á 14. og 32.mínútu leiksins. Eyjamenn með tveggja marka forskot í hálfleik og hálfleiksræða Arnars Gunnlaugssonar hefur verið eitthvað í það skiptið.
Sölvi Geir Ottesen nú þjálfari Víkinga hóf endurkomu þeirra á á 57. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið eftir aukaspyrnu. Víkingar þurfu að bíða nokkuð lengi eftir jöfnunarmarkinu en það gerði Nikolaj Hansen úr vítaspyrnu eftir að Gilson Correia braut á Sölva Geir innan teigs. Aðeins fjórum mínútum síðar tryggðu Víkingar sér svo sigur þegar Erlingur Agnarsson skoraði af harðfylgi úr teignum eftir mikið klafs og farseðill Víkinga í undanúrslit tryggður.
26.06.2019 20:22
Ótrúleg endurkoma Víkinga
26.06.2019 20:34
Arnar breytti ekki neinu í hálfleik: Erum betri en ÍBV
26.06.2019 20:40
Gummi Magg: Einstaklingsmistök að kosta okkur
Fyrir leik
Víkingar eiga EKKI titil að verja
Það er hreinlega hálf sérstakt að skrifa þessa fyrirsögn eftir gull ár Víkinga í bikarnum frá 2019-2023. Þetta er þó staðan og Víkingar þurftu að horfa á eftir Mjólkurbikarnum í skaut KA eftir 2-0 tap í sjálfum úrslitaleiknum.
Hefst vegferðin að því að endurheimta bikarinn í Víkina í Vestmannaeyjum í dag?

Fyrir leik
Bikardagur á Heimaey
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik ÍBV og Víkings í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla.
Flautað verður til leiks á Þórsvelli í Vestmannaeyjum á slaginu 16:00







