Leik lokið!
Keflavík áfram
Heimamenn betri í fyrri hálfleik. Leiknismenn með mikla yfirburði í seinni hálfleik en þeim gekk erfiðlega að skapa sér opin marktækifæri.
90. mín
Komið að uppbótartímanum. Keflavík nálægt því að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslitin.
87. mín
Hræðileg aukaspyrna
Leiknir fékk aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Shkelzen Veseli með hræðilega spyrnu hátt yfir. Hefði getað hæft flugvél.
86. mín
InnStefán Jón Friðriksson
ÚtMuhamed Alghoul
84. mín
Gult spjald
Nemanja Pjevic
Aðstoðarþjálfari Leiknis fær gult fyrir mótmæli.84. mín
Gult spjald
Valur Þór Hákonarson
83. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtGabríel Aron Sævarsson
82. mín
Skyndisókn hjá Keflavík og Kári Sigfússon á skot sem Bjarki nær að verja.
78. mín
"Við erum búnir að vera í köðlunum í seinni hálfleik," segja stuðningsmenn Keflavíkur sem eru hér rétt fyrir utan blaðamannaskúrinn.
77. mín
Róbert Quental með stórhættulegt skot rétt yfir.
75. mín
InnShkelzen Veseli
ÚtÞorsteinn Emil Jónsson
75. mín
Leiknir heldur áfram að einoka boltann, þrátt fyrir yfirburðina í seinni hálfleik vantar meira bit í liðið. Frans svo nálægt því að bæta við fyrir Keflavík rétt á eftir úr sjaldséðri Keflavíkursókn í seinni hálfleik.
67. mín
InnFrans Elvarsson
ÚtEiður Orri Ragnarsson
65. mín
Leiknir er með öll völd á vellinum þess stundina en gengur erfiðlega að skapa sér opin marktækifæri.
57. mín
Leiknismenn að eiga nokkuð góðan kafla og eru orðnir líklegri.
53. mín
InnBogdan Bogdanovic
ÚtArnór Daði Aðalsteinsson
52. mín
Arnór Daði Aðalsteinsson meiðist og þarf aðhlynningu. Leiknismenn þurfa að gera skiptingu.
50. mín
Hættuleg sókn Leiknis. Róbert Quental hirðir boltann af Marin Brigic og Leiknir kemst í lofandi sókn. Róbert sendir á Þorstein Emil sem nær þó ekki stjórn á boltanum.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn á fulla ferð
Óli Hrannar þjálfari Leiknis gerði þrefalda skiptingu í hálfleik.
46. mín
InnAxel Freyr Harðarson
ÚtJón Arnar Sigurðsson
46. mín
InnAnton Fannar Kjartansson
ÚtDagur Ingi Hammer Gunnarsson
46. mín
InnRóbert Quental Árnason
ÚtDavíð Júlían Jónsson
45. mín
Verðskulduð forysta Keflavíkur í hálfleik
44. mín
Kári Sigfússon kemst einn gegn Bjarka markverði, Bjarki kemur út á móti og Kári fellur. Keflvíkingar kalla eftir víti en Vilhjálmur Alvar vel staðsettur og metur að Bjarki hafi farið í boltann.
41. mín
Gult spjald
Daði Bærings Halldórsson
39. mín
Kári Sigfússon með skot sem fer beint í fangið á Bjarka markverði Leiknis.
38. mín
Gabríel Aron skallar framhjá eftir horn.
32. mín
76 seldir miðar
Ekki hægt að segja að það sé múgur og margmenni á þessum leik.
29. mín
Gult spjald
Axel Ingi Jóhannesson
26. mín
Leiknir svo nálægt því að jafna
Sindri Kristinn ver skot frá Kára Steini með miklum tilþrifum.
23. mín
Þetta hefur legið í loftinu
Gabríel Aron Sævarsson (stoðsending: Kári Sigfússon)
Gabríel laus í teignum og skorar af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá vinstri.22. mín
Keflvíkingar mun líklegri
Gabríel kemst í fínt færi en setur boltann naumlega framhjá.
20. mín
Bjarki ver núna frá Muhamed Alghoul.
18. mín
Kári Sigfússon með skot fyrir utan teig en beint á Bjarka Arnaldarson í marki Leiknis.
17. mín
Jæja þá ná Leiknismenn loksins að skapa smá usla. Nacho Heras, fyrrum leikmaður Leiknis, nær að komast í boltann áður en Davíð Júlían gerir það og hreinsar frá.
14. mín
Áfram heldur Keflavík að sækja. Leiknir varla náð að komast nálægt marki heimamanna.
11. mín
Keflvíkingar mun meira með boltann hér í upphafi. Muhamed Alghoul með skot yfir markið.
4. mín
Vindurinn hefur mikil áhrif
Það er hreinlega rok, eitthvað sem kemur ekki á óvart á þessum velli. Rokið er þvert á völlinn.
1. mín
Vilhjálmur Alvar hefur flautað til leiks
Leiknismenn í hvítum varatreyjum í dag.
0. mín
Kaldur vindur
Sem betur fer er Rúnar Vífill vallarstjóri búinn að hella upp á sjóðandi kaffi því hér á vellinum er nístingskaldur vindurinn að láta finna fyrir sér. Haraldur Freyr þjálfari Keflavíkur leitaði skjóls í fréttamannaskúrnum og fékk sér einn bolla á meðan hans menn eru á fullu í upphitun.
0. mín
Í byrjunarliði Leiknis eru tveir leikmenn sem gengu í raðir félagsins yrir þetta tímabil. Það eru varnarmaðurinn Jón Arnar Sigurðsson sem kom á láni frá KR og svo Dagur Ingi Hammer Gunnarsson sem þekkir vel til á þessum slóðum en hann hefur verið iðinn við kolann á undirbúningstímabilinu.
Ný andlit í Leiknisliðinu

0. mín
Markverðirnir eru mættir út að hita. Í rammanum hjá Keflavík er Sindri Kristinn Ólafsson, mættur aftur í Keflavíkurtreyjuna. Ásgeir Orri sem varði mark Keflavíkur í fyrra með mikilli prýði varð fyrir því óláni að slíta krossband og spilar ekki í sumar.
Sindri Kristinn mættur aftur í Keflavíkurtreyjuna

23.03.2025 11:38
Var í viðræðum við óvænt félag er Keflavík hafði samband - „Á alltaf að treysta innri tilfinningu"
0. mín
Níu mörk síðast þegar liðin mættust!
Liðin voru saman í Lengjubikarnum og mættust í Reykjaneshöllinni, örfáum metrum frá, þann 7. mars síðastliðinn og þá var sannkallað þrumustuð. Keflavík vann 5-4 sigur í stórskemmtilegum og furðulegum fótboltaleik.
Keflavík 5-4 Leiknir
1-0 Stefan Alexander Ljubicic ('5 )
1-1 Daði Bærings Halldórsson ('10 )
2-1 Stefan Alexander Ljubicic ('20 )
3-1 Stefan Alexander Ljubicic ('30 )
4-1 Eiður Orri Ragnarsson ('45 )
5-1 Muhamed Alghoul ('46 )
5-2 Sindri Snær Magnússon ('49 , Sjálfsmark)
5-3 Andi Hoti ('56 )
5-4 Kári Steinn Hlífarsson ('90 )
Rautt spjald: Bjarki Arnaldarson , Leiknir R. ('83)
0. mín
Aðstoðardómarar: Daníel Ingi Þórisson og Milan Djurovic. Eftirlitsmaður KSÍ: Þórður Ingi Guðjónsson.
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

0. mín
Haraldur Freyr Guðmundsson stýrir Keflvíkingum, en liðið fór í umspil Lengjudeildarinnar í fyrra. Þar komst liðið í úrslitaleik en missti af sæti í Bestu-deildinni þar sem það tapaði 1-0 fyrir Aftureldingu.
Keflavík
Komnir
Stefan Alexander Ljubicic frá Svíþjóð
Sindri Kristinn Ólafsson frá FH
Hreggviður Hermannsson frá Njarðvík
Eiður Orri Ragnarsson frá KFA
Mihajlo Rajakovac frá Ítalíu
Muhamed Alghoul frá Króatíu
Marin Brigic frá Króatíu
Björn Bogi Guðnason
Farnir
Sami Kamel til Noregs
Ásgeir Helgi Orrason í Breiðablik (var á láni)
Mihael Mladen til Króatíu
Rúnar Ingi Eysteinsson í Þrótt Vogum (á láni)
Óliver Andri Einarsson í ÍR
Sigurður Orri Ingimarsson í ÍR
Oleksii Kovtun til Austurríkis
Mamadou Diaw
Keflavík

0. mín
Ólafur Hrannar Kristjánsson stýrir Leiknisliðinu en hann tók við liðinu á síðasta tímabili. Breiðhyltingar höfnuðu í áttunda sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.
Leiknir
Komnir
Axel Freyr Harðarson frá Fjölni
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson frá Grindavík
Anton Fannar Kjartansson frá Ægi
Jón Arnar Sigurðsson frá KR (á láni)
Farnir
Andi Hoti í Val
Omar Sowe í ÍBV
Hjalti Sigurðsson í KR
Róbert Hauksson í Fram
Viktor Freyr Sigurðsson í Fram
Arnór Ingi Kristinsson í ÍBV
Ósvald Jarl Traustason hættur
Leiknir

0. mín
Lengjudeildarslagur framundan á gervigrasinu við Reykjaneshöllina. Keflavík tekur á móti Leikni og við fylgjumst með gangi mála. Ef á þarf að halda verður leikið til þrautar og möguleiki er á vítakeppni.
Góðan og gleðilegan Skírdag

0. mín
32-liða úrslit Mjólkurbikarsins leikin um páskana
fimmtudagur 17. apríl
14:00 Keflavík-Leiknir R. (Nettóhöllin-gervigras)
14:00 Afturelding-Höttur/Huginn (Malbikstöðin að Varmá)
14:00 Kári-Fylkir (Akraneshöllin)
14:00 Víkingur Ó.-Úlfarnir (Ólafsvíkurvöllur)
16:00 ÍBV-Víkingur R. (Þórsvöllur Vey)
föstudagur 18. apríl
14:00 Selfoss-Haukar (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Grótta-ÍA (AVIS völlurinn)
15:00 Völsungur-Þróttur R. (PCC völlurinn Húsavík)
16:00 Stjarnan-Njarðvík (Samsungvöllurinn)
16:00 Vestri-HK (Kerecisvöllurinn)
17:30 KA-KFA (Greifavöllurinn)
19:15 Breiðablik-Fjölnir (Kópavogsvöllur)
laugardagur 19. apríl
14:00 Grindavík-Valur (Nettóhöllin-gervigras)
14:00 KR-KÁ (KR-völlur)
15:00 Þór-ÍR (Boginn)
16:00 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)





