SKÝRSLAN: Topplið Vestra heldur áfram að salla inn stigum
Hvað réði úrslitum?
Lið Vestra var einfaldlega meira tilbúið í þennan leik. Þeir voru með plan og þeir fóru eftir því. Svo það má segja að skipulag og agi hafi ráðið úrslitum. Í ofanálag nutu liðsmenn Vestra þess að spila leikinn og liðsandi og leikgleði skein í gegn þegar þeir fögnuðu öllum smáum sigrum á vellinum.
Bestu leikmenn
1. Eiður Aron Sigurbjörnsson
Ég ætlaði upphaflega að hafa Daða Berg hér en Eiður og félagar í vörn Vestra voru ekkert minna en frábærir í þessum leik. Skagamenn fengu því sem næst aldrei að komast í þær stöður sem þeir vilja og ef það gerðist þá voru Eiður og félagar með það allt í teskeið.
2. Daði Berg Jónsson
Mark og stoðsending hjá drengnum í dag. Gefur liði Vestra rosalega mikið. Er með gott auga fyrir spili og gríðarlega kraftmikill á velli. Víkingar hugsa sér gott til glóðarinnar til framtíðar en það verður þá að vera peningalega því þessi drengur verður ekki í mörg ár enn á Íslandi.
Atvikið
Það er fyrra mark Vestra í dag. Virkilega vel útfærð skyndisókn sem skilar marki. Höfðu hótað fyrr í leiknum en þessi skilaði árangri og var útfærslan upp á tíu.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri fer í sjö stig og lyftir sér í toppsætið um stundarsakir í það minnsta. Skagamann enn með sín þrjú stig í áttunda sæti
Vondur dagur
Sóknarleikur Skagamanna var hvorki fugl né fiskur í dag og fremstu menn hafa átt betri daga. Ekki nóg með að koma boltanum ekki í netið heldur var pressa þeirra ómarkviss og á köflum bara léleg. Lið Vestra átti í það minnsta ekki í teljandi vandræðum að spila sig út úr henni að mestu leiti.
Dómarinn - 7
Heilt yfir góður leikur hjá Helga Mikael og teyminu. Það er spurning hvort að ÍA hafi átt að fá vítaspyrnu þegar að boltinn fór í hönd Daða Berg í teig Vestra en Helgi var fljótur að ákveða að dæma ekki.



