SKÝRSLAN: Tindastóll í 8-liða úrslit
Hvað réði úrslitum?
Það sem skilaði Tindastól þessum sigri var vinnusemi, hjarta og að þær nýttu færin sem þér fengu vel.
Stjarnan var meira með boltann og stýrði leiknum að stórum hluta en þær voru ekki að skapa sér nóg og voru ekki nægilega beinskeyttar á síðasta þriðjungi. Ekki hægt að segja að þetta hafi verið ósanngjörn úrslit
Bestu leikmenn
1. Genevieve Jae Crenshaw
Algjörlega frábær í rammanum í kvöld. Átti nokkrar góðar vörslur og var alltaf rétt staðsett. Örugg í teignum og át allt sem þangað kom.
2. María Dögg Jóhannesdóttir
Það eru nokkrar sem koma til greina hér en María átti flottan leik og fær þetta sérstaklega fyrir að skora frábært mark. Ekki var það bara flott heldur gríðarlega mikilvægt, kom Tindastól yfir í upphafi framlengingar.
Atvikið
Mark Maríu í upphafi framlengingarinnar. Stjarnan var nýbúin að jafna leikinn í upphafi framlengingar og margir héldu að Stjarnan væri að fara að klára þetta í framlengingu. Það voru miklar sveiflur á stuttum tíma.
Hvað þýða úrslitin?
Tindastóll fer áfram í Mjólkurbikarnum og verða í pottinum þegar dregið er í 8-liða úrslitin. Stjarnan úr leik, svo einfalt er það.
Vondur dagur
Sóknarmenn Stjörnunnar áttu ekki sinn besta dag. Of mörg mistök á síðasta þriðjungi komu í veg fyrir að þær sköpuðu sér nóg og svo fóru þær illa með nokkur góð færi.
Dómarinn - 6
Ágæt frammistaða hjá tríóinu. Nokkrar furðulegar ákvarðanir, en ekkert stórvægilegt.


