Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
ÍBV
ÍBV
Besta-deild karla
Þórsvöllur Vey
Frábærar aðstæður. Sól og logn.
0 - 0
KA
KA
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Steindautt jafntefli í Eyjum

Hvað réði úrslitum?

Hvorugt liðið náði að skapa sér færi að einhverju viti í dag. Það gerðist lítið í þessum leik og var alls ekki fyrir augað. Bæði liðin voru sem fín varnarlega og baráttan var klárlega til staðar enda fengu bæði lið urmul af aukaspyrnum. En bæði lið bitlaus sóknarlega.

Bestu leikmenn

1. Steinþór Már Auðunsson

Var mjög öruggur í sínum aðgerðum. Hann greip inn í margar fyrirgjafir Eyjamanna. Kom oft á tíðum vel út úr markinu þegar þurfti á að halda. Lokaði vel á Bjarka Björn í góðu færi í seinni hálfleik.

2. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Þetta er bara erfitt sko. En hann var öflugur og nældi i margar aukaspyrnur á hættulegum stöðum fyrir KA, þó svo að ekki hafi komið mikið út úr þeim. Átti alveg fína spretti inn á milli og var svo eini sem náði að skapa einhvern usla í vörn Eyjamanna.

Atvikið

Ekkert í raun.

Hvað þýða úrslitin?

KA enn í botnbaráttu og lítið að ganga. ÍBV er áfram um miðja deild og líklega nokkuð sáttir með það.

Vondur dagur

Bara bæði lið. Sóknarlína ÍBV ekki góð án Omar Sowe og svo fóru Oliver Heiðars og Hermann Þór snemma útaf og þá er mikið farið. Ákvarðantökur lélegar á síðasta þriðjungi hjá báðum liðum og lítið að frétta sóknarlega enda hvorugt liðið sem náði að skapa sér færi til að skora úr.

Dómarinn - 8

Það var alveg mikið að gera hjá dómaranum enda mjög mikið um aukaspyrnur og nokkuð mikið um spjöld líka. Bæði lið spiluðu nokkuð hart en dómarinn var með fína línu og dæmdi leikinn vel að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.