Rodrygo orðaður við Arsenal - Wirtz velur milli Bayern og Liverpool - Barcelona vill Díaz
Lengjudeild kvenna
Grindavík/Njarðvík
LL 3
2
Grótta
Lengjudeild kvenna
ÍBV
LL 4
0
KR
Grindavík/Njarðvík
3
2
Grótta
0-1 Lovísa Davíðsdóttir Scheving '7
0-2 Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir '41
Danai Kaldaridou '67 1-2
Emma Nicole Phillips '69 2-2
Tinna Hrönn Einarsdóttir '89 3-2
22.05.2025  -  19:15
JBÓ völlurinn
Lengjudeild kvenna
Aðstæður: Kalt, kvast og blautt...
Dómari: Konráð Garðar Guðlaugsson
Byrjunarlið:
1. María Martínez López (m) ('80)
5. Brookelynn Paige Entz
6. Emma Nicole Phillips
11. Eydís María Waagfjörð ('60)
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir
16. Viktoría Sól Sævarsdóttir (f)
18. Ása Björg Einarsdóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir
23. Júlía Rán Bjarnadóttir
26. Eydís Arna Hallgrímsdóttir ('80)
31. Krista Sól Nielsen
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
Ástrós Anna Ólafsdóttir
3. Kamilla Ósk Jensdóttir
4. Rakel Rós Unnarsdóttir ('93)
12. Þórunn Elfa Helgadóttir ('80)
20. Svanhildur Röfn Róbertsdóttir
21. Birta Eiríksdóttir ('80) ('93)
24. Danai Kaldaridou ('60)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ)
Armandas Leskys
Alexander Birgir Björnsson
Gabríel Sindri Möller

Gul spjöld:
Emma Nicole Phillips ('61)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Endurkomusigur hjá Grindavík/Njarðvík!

Sterkur sigur í erfiðum aðstæðum.
97. mín
Erum djúpt inni í uppbótartíma og Grótta er búið að færa sig vel upp.Fáum við dramatík?
94. mín
Grótta að ýta sér ofar.
93. mín
Inn:Rakel Rós Unnarsdóttir (Grindavík/Njarðvík) Út:Birta Eiríksdóttir (Grindavík/Njarðvík)
91. mín
Við fáum sennilega einhvern smá uppbótartíma en þegar María og Eydís Arna skullu saman áðan fór alveg smá tími í það.
89. mín MARK!
Tinna Hrönn Einarsdóttir (Grindavík/Njarðvík)
Beint úr horni! Tinna Hrönn með hornspyrnu upp í vindinn og Margrét Rún lendir í smá vandræðum með þetta og nær ekki að slá boltann burt og hann endar í netinu!

Beint úr horni!
87. mín
Svoo nálægt! Emma Phillips með flotta pressu á Margréti Rún sem kemur út á móti og sparkar boltanum í hana og hann rúllar rétt framhjá markinu.
86. mín
Fáum við sigurmark í þessum leik?
80. mín
Inn:Birta Eiríksdóttir (Grindavík/Njarðvík) Út:Eydís Arna Hallgrímsdóttir (Grindavík/Njarðvík)
80. mín
Inn:Þórunn Elfa Helgadóttir (Grindavík/Njarðvík) Út:María Martínez López (Grindavík/Njarðvík)
Markmannsskipting.
76. mín
Fyrirgjöf frá Gróttu fyrir markið og María Lopez og Eydís Arna sýnist mér það vera sem skella samann og leikurinn stopp.
73. mín
Inn:Margrét Edda Lian Bjarnadóttir (Grótta) Út:Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
69. mín MARK!
Emma Nicole Phillips (Grindavík/Njarðvík)
Þær jafna! Grindavík/Njarðvík með skot sem Margrét Rún heldur ekki og Emma Phillips hendir sér á frákastið og jafnar leikinn!
68. mín
Brookelynn með tilraun rétt framhjá markinu.
67. mín MARK!
Danai Kaldaridou (Grindavík/Njarðvík)
Sleggja! Boltinn dettur fyrir fæturnar á Danai fyrir utan teig sem lætur vaða og boltinn syngur í netinu!
65. mín
Aðeins meira líf í Grindavík/Njarðvík í seinni með vindinn í bakið.
61. mín Gult spjald: Emma Nicole Phillips (Grindavík/Njarðvík)
60. mín
Inn:Danai Kaldaridou (Grindavík/Njarðvík) Út:Eydís María Waagfjörð (Grindavík/Njarðvík)
55. mín
Færi Mistök í öftustu línu Grindavík/Njarðvík og Hulda Ösp kemst á milli og reynir að lyfta boltanum yfir Maríu Lopez en nær ekki að hitta á rammann.
48. mín
Fínasta tilraun en yfir markið.
47. mín
Grindavík/Njarðvík að fá aukaspyrnu á flottum stað. Tinna Hrönn stillir sér upp að taka þessa spyrnu.
47. mín Gult spjald: Telma Sif Búadóttir (Grótta)
46. mín
Þetta er farið af stað aftur og það eru heimakonur sem sparka okkur af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Grótta leiðir í hálfleik nokkuð sannfærandi og sanngjarnt. Ódýr mörk sem Grindavík/Njarðvík fá á sig en það er ekkert alltaf spurt af því. Leikurinn svo gott sem farið fram á vallarhelmingi heimakvenna enda Grótta með vindinn í bakið.

Verður áhugavert að sjá hvort þetta muni snúast eitthvað í seinni þegar Grindavík/Njarðvík spila með vindinn í bakið.
41. mín MARK!
Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir (Grótta)
Úfff... Sigrún Ösp kemur með fyrirgjöf frá hægri fyrir markið sem María Lopez slær í netið.

María Lopez fékk skot á sig stuttu áður sem var líka tæpt á að vera slegið inn en þá slapp það og boltinn barst út á hægri væng þar sem fyrirgjöf varð að marki.
39. mín
Brookelynn liggur eftir og meðan það er hugað af henni taka liðin lítil leikhlé til að fara yfir stöðuna.
37. mín
Grótta að spila með vindinn í bakið en eru þó ekki að nýta sér það neitt af viti. Skora gott mark með flottu skoti utan af velli úr aukaspyrnu sem skapaði urlsa en hafa þess utan ekkert verið að prufa sig áfram með vindinn í bakið.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Grótta að leita af opnunum en þétt vörn Grindavík/Njarðvík stendur enn sem komið er.
23. mín
Grótta reynir skot af löngu færi en beint í fangið á Maríu Lopez.
18. mín
Það er ekki mikið spil í þessu og boltinn átt það til að fjúka úr leik.
11. mín
Grótta byrjað mun betur og búnar að þrýsta Grindavík/Njarðvík vel niður.
7. mín MARK!
Lovísa Davíðsdóttir Scheving (Grótta)
Grótta tekur forystuna! Aukaspyrna inn á teig sem dettur fyrir Lovísu í kraðakinu og hún leggur hann í netið. María Lopez ver aukaspyrnuna en fellur svo fyrir fætur Lovísu sem klárar.
6. mín
Það er mjög blautt hérna og hvast.. Fótboltinn svolítið eftir því.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir í Gróttu sem eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Ekki alveg sama rjómablíðan Þetta er ekki alveg sama rjómablíðan og hefur blessað okkur síðustu daga. Heiðarlegt reality check að við séum víst á Íslandi eftir allt er tekið við..
Fyrir leik
Lengjan í beinni Leikir dagsins í Lengjudeild kvenna eru í beinni útsendingu á Fótbolti.net í samstarfi við Livey.

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík Grindavík/Njarðvík byrjaði mótið á sigri hér heima gegn ÍBV en hafa síðan tapað gegn Fylki og gerðu jafntefli í síðasta leik gegn ÍA þar sem þær fengu á sig mjög svo umdeilt jöfnunarmark í lokin.
Fjögur stig og þær vonast til þess að komast aftur á sigurbraut.


Mynd: Grindavík

Fyrir leik
Grótta Grótta hefur átt brösótta byrjun þar sem þær töpuðu fyrstu tveim leikjum sínum en unnu þó sterkan sigur á Fylki í síðustu umferð 3-0 svo þær koma með smá byr inn í leikinn í kvöld og freista þess að bæta við stigum á töfluna.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Dómari Konráð Garðar Guðlaugsson fær það verkefni að halda utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Margeir Valur Sigurðsson og Kristinn Freyr Victorsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heil og sæl! Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem Grindavík/Njarðvík taka á móti Gróttu í fjórðu umferð Lengjudeild kvenna í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Margrét Rún Stefánsdóttir (m)
5. Hulda Ösp Ágústsdóttir
6. Telma Sif Búadóttir
8. Tara Jónsdóttir
10. Rebekka Sif Brynjarsdóttir
11. Haylee Rae Spray
15. Ryanne Molenaar
17. Katrín Rut Kvaran
20. Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir (f)
21. Hildur Björk Búadóttir
24. Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('73)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Þórdís Ösp Melsted (m)
4. Hallgerður Kristjánsdóttir
22. Margrét Edda Lian Bjarnadóttir ('73)
25. María Björk Ómarsdóttir
26. Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir
29. María Lovísa Jónasdóttir
39. Lilja Davíðsdóttir Scheving
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Dominic Ankers (Þ)
Jórunn María Þorsteinsdóttir
Melkorka Katrín Fl Pétursdóttir
Guðni Snær Emilsson
Aron Logi Sigurpálsson
Alex Mar Bjarkason
Díana Ásta Guðmundsdóttir

Gul spjöld:
Telma Sif Búadóttir ('47)

Rauð spjöld: