Man Utd ætlar að hreinsa til í leikmannahópnum - Vardy orðaður við Valencia
Besta-deild karla
KR
LL 2
3
Fram
Lengjudeild karla
HK
LL 1
3
Njarðvík
Lengjudeild karla
Keflavík
LL 6
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
ÍR
LL 2
0
Selfoss
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 1
2
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
Valur
LL 1
1
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
FH
LL 2
1
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Fram
LL 1
0
Tindastóll
Fylkir
1
2
Þróttur R.
0-1 Aron Snær Ingason '19
0-2 Liam Daði Jeffs '63
Ásgeir Eyþórsson '91 1-2
23.05.2025  -  19:15
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson
5. Orri Sveinn Segatta ('68)
8. Ragnar Bragi Sveinsson (f)
9. Eyþór Aron Wöhler ('68)
11. Pablo Aguilera Simon ('81)
17. Birkir Eyþórsson
19. Arnar Númi Gíslason ('68)
20. Theodór Ingi Óskarsson
34. Guðmar Gauti Sævarsson ('56)
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson ('68)
7. Tumi Fannar Gunnarsson ('68)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('56)
14. Þóroddur Víkingsson ('68)
15. Axel Máni Guðbjörnsson
70. Guðmundur Tyrfingsson ('81)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Daði Ólafsson
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Ólafur Engilbert Árnason

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þessu er lokið í Árbænum Arnar Þór flautar til leiksloka. Þróttur vinnur nokkuð sannfærandi sigur á heimamönnum í Fylki.

Takk fyrir mig í kvöld.
94. mín
Fylkir fær hornspyrnu
91. mín MARK!
Ásgeir Eyþórsson (Fylkir)
ER VON FYRIR FYLKI AÐ FÁ EITTHVAÐ ÚT ÚR ÞESSU? Arnór Breki með frábræan bolta inn á teiginn. Ásgeir Eyþórs gerir frábærlega og stýrir boltanum í fjærhornið.

Við fáum leik í restina.

90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
88. mín
Fylkir fær hornspyrnu
84. mín
Eiríkur Blöndal tekur straujið upp völlinn og þræðir boltann inn á Jakob Gunnar sem klárar færið vel en flaggið á loft.
83. mín
Inn:Emil Skúli Einarsson (Þróttur R.) Út:Benóný Haraldsson (Þróttur R.)
83. mín
Inn:Kolbeinn Nói Guðbergsson (Þróttur R.) Út:Unnar Steinn Ingvarsson (Þróttur R.)
81. mín
Inn:Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir) Út:Pablo Aguilera Simon (Fylkir)
80. mín
Arnór Breki með langan bolta frá vinstri inn á Þórodd sem nær ekki að stýra boltanum í netið.
77. mín
Jakob Gunnar fær boltann inn á teiginn en nær ekki að skalla að marki og markspyrna frá marki Þróttar.
74. mín
Inn:Jakob Gunnar Sigurðsson (Þróttur R.) Út:Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
74. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.) Út:Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
73. mín
Bjarki með sprett upp hægri vænginn, fær boltann og á fyrirgjöf inn á teiginn. Benedikt Daríus fyrstur á boltann og nær skoti en boltinn í varnarmann.
72. mín
Pablo með bolta inn á teiginn en Þróttarar skalla í burtu.
68. mín
Inn:Þóroddur Víkingsson (Fylkir) Út:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
Árni Freyr er að bregðast hér við og gerir þrefalda breytingu.
68. mín
Inn:Tumi Fannar Gunnarsson (Fylkir) Út:Orri Sveinn Segatta (Fylkir)
68. mín
Inn:Arnór Breki Ásþórsson (Fylkir) Út:Arnar Númi Gíslason (Fylkir)
66. mín
Pablo með skot að marki Þróttar. Njörður fær boltann í sig og boltinn í hendurnar á Þórhalli.
63. mín MARK!
Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
Þróttarar eru að tvöfalda!! Þróttarar vinna boltann inn á miðjunni og það kemur langur bolti upp á milli hafsenta Fylkis. Liam hefur betur í baráttunni við Orra Segatta og klárar framhjá Ólafi.

0-2.
60. mín
Nú vilja Þróttarar víti Benóný Haralds fellur inn á teig Fylkis og liggur eftir. Arnar Þór dæmir ekkert.
56. mín
Inn:Benedikt Daríus Garðarsson (Fylkir) Út:Guðmar Gauti Sævarsson (Fylkir)
Benedikt Daríus ætti klárlega að geta hrist upp í hlutunum fyrir heimamenn.
55. mín
Þróttur fær hornspyrnu
53. mín
HVERNIG ENDAÐI ÞESSI EKKI Í NETINU HA???? Ég skil ekkert í þessu dæmi úfffffff

Teddi fær boltann út til hægri og leikur á Þróttara og ætlar að setja boltann í fjær hornið. Pablo Aquilera fær boltann í hnéð og boltinn framhjá. Ég held að Pablo hafi verið að koma í veg fyrir mark frá eigin liði þarna.
46. mín
Seinni er byrjaður!
45. mín
Hálfleikur
Arnar Þór flautar til hálfleiks. Gestirnir í Þrótti Reykjavík leiða inn í hálfleikinn.

Tökum okkur pásu og komum svo með seinni.
45. mín
Fylkismenn orðnir vel pirraðir Bæði leikmenn og stuðningsmenn eru orðnir brjálaðir út í Arnar Þór dómara leiksins.

Einbeiting ætti frekar að vera á eigin leik og að eigin liði ef ég má vera hreinskilinn.
42. mín
ÞÓRHALLUR ÍSAK!!! Pabolo Simon fær boltann inn á teignum og er aleinns gegn Þórhalli. Pablo ákveður í staðin fyrir að klára færið sjálfur að leggja boltann til hliðar á Eyþór Aron sem á skot sem Þórhallur ver.

Þarna áttu Fylkismenn bara að skora.
41. mín
Arnor Snær sleppur aleinn í gegn Annað skiptið í þessum fyrri hálfleik sem Fylkismenn eru steinsofandi. Arnór Snær fær boltann og ætlar að setja boltann framhjá Ólafi en boltinn rétt framhjá.

Dauðafærii
40. mín
Kári Kristjánsson með frábæra aukspyrnu á fjær þar sem Aron Snær er en skalli hans fer framhjá.
39. mín
Þróttur fær hornspyrnu
36. mín
EYÞÓR ARON MEÐ SKALLA Í STÖNGINA Arnór Númi gerir vel vinstra megin, tekur Þróttara á og kemur með boltann fyrir á Eyþór sem skallar boltann í slánna! Boltinn rúllar aftur út í teiginn og Pablo kemur á ferðinni en Þróttarart kasta sér fyrir skotið.

Óheppnir Fylkismenn þarna.
33. mín
Rosalega lélegt hjá Fylkismönnum Fylkismenn hafa ekkert gert að viti hér í kvöld en liðinu skortir öll gæði sóknarlega.
32. mín
Fylkismenn vilja víti Bjarki Steinn ætlar að kom a boltanum fyrir og Fylkismenn vilja meina að boltinn hafi farið í hönd Þróttara.

Ekkert dæmt og áfram með leikinn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
25. mín
Orri Segatta tekur hlaup inn á teiginn og fær boltann og brýtur á Þórhalli og aukspyrna dæmd.
24. mín
Liam Daði Jeffs liggur eftir og þarf aðhlyningu.
19. mín MARK!
Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
Stoðsending: Kári Kristjánsson
GESTIRNIR ERU KOMNIR YFIR!!! Aron Snær sleppur skyndilega í gegn eftir sendingu frá Kára og klárar frábærlega framhjá Ólafi í marki Fylkis.

Fylkismenn vilja rangstöðu en ekkert flagg á loft.
17. mín
Mjög róleg byrjun Það er ekki neitt að frétta hérna og byrjunin á þessum leik ekki sú skemmtilegasta.

Vonandi fer að færast líf.
12. mín
Arnar Númi með fyrirgjöf í átt að teignum og boltinn í Þróttara. Hornspyrna Fylkir.
8. mín
Fylkir fær hornspyrnu
7. mín
Þróttur fær fyrstu hornspyrnu leiksins Þróttur vinnur hornspyrnu sem ekkert varð úr og boltinn aftur fyrir.

Það hefur ekkert gerst hérna fyrstu sjö mínútur leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað í Árbænum Arnar Þór Stefánsson flautar til leiks.
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks á Tekk völlinn Arnar Þór Stefánsson leiðir liðin til leiks. Vallarþulur heimamanna er byrjaður að kynna liðin.

Það fer allt að verða til reiðu.
Fyrir leik
Keli the Cat spáir Hrafnkell Freyr Ágústsson, sérfræðingur í hlaðvarpinu Dr Football spáir í leikina sem eru framundan í fjórðu umferð. Hún verður að mestu leikin í kvöld en það er einnig spilað á morgun.

Fylkir 3 - 1 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Tvö góð lið. Ekki búið að ganga eins vel hjá Fylki og maður bjóst við miðað við undirbúningstímabilið. Þeir rífa sig í gang í kvöld. Pablo Aguilera með tvö mörk og eina stoðsendingu. Eyþór Wöhler kemst á blað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikir kvöldsins Fjórir leikir verða leiknir í deildinni í kvöld. Við erum með menn á öllum völlum.

19:15 Keflavík-Leiknir R. (HS Orku völlurinn)
19:15 ÍR-Selfoss (AutoCenter-völlurinn)
19:15 Fylkir-Þróttur R. (tekk VÖLLURINN)
19:15 HK-Njarðvík (Kórinn)
Fyrir leik
Dómarinn Arnar Þór Stefánsson sér um að dæma þennan leik í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Guðni Freyr Ingvason og Ásgeir Viktorsson.

Eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Georg Lárusson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur Hæ hæ !

Verið hjartanlega velkomin með okkur í beina textalýsingu frá leik Fylkis og Þróttar Reykjavík í Lengjudeild karla.

Um er að ræða mjög áhugaverðan leik. Leikurinn hefst klukkan 19:15

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (f)
4. Njörður Þórhallsson
19. Benóný Haraldsson ('83)
20. Viktor Steinarsson
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason ('74)
33. Unnar Steinn Ingvarsson ('83)
80. Liam Daði Jeffs ('74)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
3. Stefán Þórður Stefánsson
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson ('83)
6. Emil Skúli Einarsson ('83)
9. Viktor Andri Hafþórsson ('74)
10. Jakob Gunnar Sigurðsson ('74)
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Baldur Hannes Stefánsson
Eiður Jack Erlingsson
Hans Sævar Sævarsson
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira

Gul spjöld:

Rauð spjöld: