KA
1
1
Stjarnan

0-1
Benedikt V. Warén
'35
Alex Þór Hauksson
'38

Ásgeir Sigurgeirsson
'88
1-1
01.06.2025 - 17:00
Greifavöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 515
Maður leiksins: Sindri Þór Ingimarsson
Greifavöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 515
Maður leiksins: Sindri Þór Ingimarsson
Byrjunarlið:
12. William Tönning (m)
2. Birgir Baldvinsson
('67)

5. Ívar Örn Árnason (f)
7. Jóan Símun Edmundsson
8. Marcel Ibsen Römer
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson

11. Ásgeir Sigurgeirsson

28. Hans Viktor Guðmundsson
29. Jakob Snær Árnason

30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
('87)

77. Bjarni Aðalsteinsson
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
99. Jóhann Mikael Ingólfsson (m)
4. Rodrigo Gomes Mateo
14. Andri Fannar Stefánsson
18. Sigurður Nói Jóhannsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
23. Markús Máni Pétursson
26. Ingimar Torbjörnsson Stöle
('67)

44. Valdimar Logi Sævarsson
('87)

90. Snorri Kristinsson
- Meðalaldur 23 ár
Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)

Halldór Hermann Jónsson
Steingrímur Örn Eiðsson
Michael Charpentier Kjeldsen
Tryggvi Björnsson
Gul spjöld:
Birgir Baldvinsson ('13)
Hallgrímur Jónasson ('60)
Bjarni Aðalsteinsson ('80)
Jakob Snær Árnason ('83)
Valdimar Logi Sævarsson ('91)
Hallgrímur Mar Steingrímsson ('93)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Endar með jafntefli
1-1 lokatölur. Útisigur hefði verið algjört rán, en KA menn eflaust svekktir að hafa ekki náð öllum stigunum.
94. mín
Samúel Kári heldur um andlitið á sér og leikurinn stöðvaður, KA menn ósáttir við enn eitt stoppið í uppbótartíma. Leikurinn búinn að vera í leik í svona 30-40 sek í uppbótartímanum.
93. mín
Gult spjald: Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)

Grímsi fær gult fyrir brot á Þorra. Fannst þetta ódýrt brot.
92. mín

Inn:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
Út:Emil Atlason (Stjarnan)
Leikurinn stopp í akkúrat tvær mínútur, gæti farið upp í 97!
88. mín
MARK!

Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
KA jafnar!!
KA fékk horn eftir vörslu Árna. Heimamenn tóku spyrnuna fljótt og Ásgeir Sigurgeirsson er fyrstur á lausan bolta og jafnar þennan leik!
Boltinn fór á markteiginn, Árni kom út en nær ekki að kýla boltann í burtu og Ásgeir var bara fyrstur á boltann og kom honum í netið.
Boltinn fór á markteiginn, Árni kom út en nær ekki að kýla boltann í burtu og Ásgeir var bara fyrstur á boltann og kom honum í netið.
88. mín
Enn eitt hornið hjá KA, Sindri skallar í burtu og Valdimar reynir skot í fyrsta en það er ekki nógu gott og Stjarnan nær að hreinsa.
Valdimar fær svo aðra tilraun mjög stuttu seinna og Árni ver.
Valdimar fær svo aðra tilraun mjög stuttu seinna og Árni ver.
86. mín
KA fær hornspyrnu.
Ívar reynir að klippa boltann í netið en Stjörnumenn koma boltanum frá.
Ívar reynir að klippa boltann í netið en Stjörnumenn koma boltanum frá.
80. mín
Haukur Brink þarf aðhlynningu, mikil hlaup fyrir gestina í seinni hálfleiknum manni færri.
79. mín
Jakob Snær fer illa með varnarmanninn gegn sér við vítateiginn og reynir svo skot á nærstöngina en Árni Snær sér við honum.
78. mín
Jakob Snær með fína fyrigjöf á fjærstöngina, finnur Guðjón Erni sem á skalla sem Árni Snær á í litlum vandræðum með að verja.
75. mín
Þversláin!
Grímsi með þrumuskot af vítateigslínunni sem smellur í þverslánni. Þarna voru gestirnir aftur heppnir. Brot dæmt á Jáon Símun í frákastinu.
73. mín
Grímsi með skot með vinstri fæti vinstra megin úr teignum en skotið fer rétt yfir mark gestanna.
72. mín
KA vinnur hornspyrnu. Grímsi tekur og KA fær hornspyrnu hinu megin sem Jóan Símun tekur.
71. mín
Kjartan Már með skot fyrir utan vítateig KA sem fer af varnarmanni og skrúfast framhjá fjærstönginni. Stjarnan á horn.
Ekkert kom upp úr horninu.
Ekkert kom upp úr horninu.
67. mín

Inn:Ingimar Torbjörnsson Stöle (KA)
Út:Birgir Baldvinsson (KA)
Jakob Snær færir sig í vinstri bakvörðinn og Ingimar kemur á hægri kantinn.
65. mín
Þorri fellur við vítateig KA, er dottinn áður en snertingin er við Hans Viktor og því engin aukaspyrna dæmd.
Skömmu á undan hafði Haukur átt tilraun í varnarmann, fyrsta eiginlega sókn gestanna í seinni hálfleik.
Skömmu á undan hafði Haukur átt tilraun í varnarmann, fyrsta eiginlega sókn gestanna í seinni hálfleik.
62. mín
Jóan Símun kemst upp að endamörkum og á sendingu fyrir en einhvern veginn skrúfast hann yfir mark Stjörnunnar.
60. mín
KA vill hendi-víti og rautt!
Bjarni með skto af vítateigslínunni sem fer í Samúel Kára sýnist mér og aftur fyrir. Samúel bendir á höfuðið á sér en KA menn vilja hendi.
KA menn hópast að Elíasi en hann bendir á hornfánann.
Held að þetta hafi átt að vera víti, gestirnir stálheppnir!
Er núna búinn að sjá hæga endursýningu, þetta er 100 prósent hendi-víti og þar með rautt líka.

58. mín
Grímsi í kjörstöðu til að leggja boltann í fjærhornið, er við vítateigslínuna, en lyftir boltanum alltof mikið og boltinn fer yfir auglýsingaskiltin.
56. mín
Árni Snær!
Guðjón Ernir með flotta fyrirgjöf inn á miðjan teiginn, finnur þar óvæntan Grímsa sem á fínan skalla en Árni Snær ver meistaralega!
Heimamenn að banka.
Heimamenn að banka.
55. mín
Grímsi með aðra fína fyrirgjöf en nú fer boltinn rétt yfir Hans Viktor á fjærstönginni og Stjarnan fær markspyrnu.
52. mín
Grímsi lætur vaða af löngu færi og hittir boltann furðulega illa. Lélegt skot sem fer langt yfir.
51. mín
Góð fyrirgjöf
Grímsi með flottan bolta inn á miðjan teiginn en þar fara tveir KA menn, Hans Viktor og Bjarni sýndist mér, í sömu árás og boltinn fer af Hans og yfir mark Stjörnunnar.
49. mín
Stjörnumenn aðeins ósáttir að KA menn skiluðu ekki boltanum til baka eftir að Árni Snær sendi boltann viljandi í innkast. Það kom ekkert upp úr þessu og enginn skaði skeður, en skrítið atvik engu að síður.
48. mín
Jakob Snær í fínni stöðu inn á Stjörnuteignum en það er eins og honum hafi brugðið við hversu góð móttakan var og skotið var mjög dapurt, beint í Örvar.
47. mín
KA strax í færi
Strax eftir 61 sek er Bjarni Aðalsteins kominn í mjög fínt skotfæri, reynir að leggja boltann í hornið en hann fer framhjá fjærstönginni.
45. mín
Hálfleikstölfræði
Samkvæmt Flashscore:
xG: 0,65-0,97
Possession: 39%-61%
Skot: 7-9
Skot á mark: 1-5
Hornspyrnur: 4-1
xG: 0,65-0,97
Possession: 39%-61%
Skot: 7-9
Skot á mark: 1-5
Hornspyrnur: 4-1
45. mín
Hálfleikur
Stjarnan leiðir verðskuldað með einu marki gegn engu í hálfleik.
KA fékk hættulegt færi í byrjun leiks og gerðu tilkall til vítaspyrnu, en annars hefur lítið verið að frétta sóknarlega hjá KA. Stjarnan ógnað talsvert meira, en gestirnir eru manni færri og það stefnir í áhugaverðan seinni hálfleik.

45+2
KA menn vilja aukaspyrnu í D-boganum þegar Birgir fer niður. Hans Viktor reynir í kjölfarið skot sem fer hátt yfir, mjög misheppnað skot með verri fætinum. KA menn hefðu þegið aukaspyrnu þarna.

45+1
Grímsi með boltann fyrir en Örvar skallar hann aftur fyrir. KA fær horn.
Tveimur mínútum bætt við.
Grímsi með boltann fyrir en Örvar skallar hann aftur fyrir. KA fær horn.
Tveimur mínútum bætt við.
45. mín
Kjartan brýtur á Grímsa við vítateig Stjörnunnar, fín fyrirgjafarstaða fyrir heimamenn.
43. mín
Jóan Símun á að gera betur þarna inn á teignum, KA í fínni stöðu en þetta rennur út í sandinn út af lélegri snertingu.
42. mín
Smá bras á KA, Emil fær langa sendingu í gegn, Tönning slær boltann til hliðar, sýnist það vera Haukur sem reynir að finna Benedikt sem hefði verið í algjöru dauðafæri, en KA menn ná að stoppa þetta.
40. mín
Stjörnumenn verða því manni færri þessar síðustu 50 mínútur af leiknum. Þetta verður fróðlegt!
38. mín
Rautt spjald: Alex Þór Hauksson (Stjarnan)

KA menn kalla eftir rauðu
Og rautt er niðurstaðan.
Tönning kemur út fyrri teiginn og hreinsar í burtu. Alex rennir sér og virðist fara í markmanninn með sólann. Ívar, sem var í kapphlaupi við Alex, og Tönning liggja eftir.
Ég held að Elías hafi ekki séð þetta en fékk aðstoð frá sínum aðstoðarmönnum. Þetta var nokkuð hart rautt spjald, en þetta var alveg appelsínugult.

37. mín
Birgir með skalla framhjá eftir hornspyrnu Jóans. Mjög laus skalli og engin hætta.
35. mín
MARK!

Benedikt V. Warén (Stjarnan)
Stoðsending: Þorri Mar Þórisson
Stoðsending: Þorri Mar Þórisson
Fyrsta markið!
Þorri með glæsilega fyrirgjöf eftir að hafa komist í gegnum návígi gegn Grímsa.
Benedikt rís upp í markteignum og skallar boltann í netið af stuttu færi. Stekkur upp á milli Hans Viktors og Guðjóns í teignum, einhvern veginn enginn að dekka hann.
Benedikt rís upp í markteignum og skallar boltann í netið af stuttu færi. Stekkur upp á milli Hans Viktors og Guðjóns í teignum, einhvern veginn enginn að dekka hann.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
27. mín
KA vill víti!
Hornspyrna sem Hans kemst fyrstur í og inn á markteignum kemst Jakob fyrstur í boltann og skallar aftur í sig. Hann fær hendurnar á Árna í sig og liggur eftir. Boltinn fer yfir mark Stjörnunnar og KA menn vilja víti.
Skil tilkallið, en ekki víti fyrir mér.
Skil tilkallið, en ekki víti fyrir mér.
26. mín
Grímsi kemst í fyrsta sinn í leiknum held ég almennilega í boltann, gerir vel og keyrir inn á vallarhelming Stjörnunnar. Hann finnur Ásgeir við vítateiginn og hann á skot sem fer af varnarmanni og yfir mark Stjörnunnar.
Hornspyrna niðurstaðan.
Hornspyrna niðurstaðan.
21. mín
Haukur með sendingu yfir vörnina og finnur Emil hægra megin í teignum. Tönning gerir vel að mæta út á móti og lokar vel á framherjann sem lætur verja frá sér úr þröngu færi.
16. mín
Vel spilað hjá KA og sókninni lýkur á skoti frá Birgi við vítateiginn en það fer af varnarmanni og aftur fyrir, hornspyrna niðurstaðan.
Sindri skallar hornspyrnu Grímsa í burtu.
Sindri skallar hornspyrnu Grímsa í burtu.
15. mín
Byrjað að hellirigna
Komin alvöru demba á Akureyri, úrhellir. 'Mér finnst rigningin góð' heyrist í stúkunni og auglýstar regnhlífar í sjoppunni.
13. mín
Gult spjald: Birgir Baldvinsson (KA)

Togaði í treyju Emils á sprettinum. Emil hafði klobbað Ívar sekúndu á undan og var í góðri stöðu Elías gerði vel að veita hagnað og lyfta svo gulu eftir sóknina.
13. mín
HAAA??
Ótrúlegt að Stjarnan skoraði ekki þarna...
Emil fer illa með varnarmenn KA, rennir boltanum til hliðar á Benedikt sem á sendingu á Hauk sem er í dauðafæri en einhvern veginn fipast og nær ekki almennilegri tilraun. Þarna var risa séns fyrir gestina.

11. mín
Þorri Mar með skot fyrir utan teig sem Tönning er ekki í neinum vandræðum með. Mjög þægileg varsla.
10. mín
Tönning!
Benedikt Warén í mjög fínu færi inn á vítateig KA, á nokkuð gott skot en Tönning er snöggur niður og nær að verja. Stjarnan fær hornspyrnu. Hans Viktor skallar svo spyrnu Jóhanns Árna í burtu.

9. mín
Hans bjargar á línu
Haukur Brink í dauðafæri, reynir að setja hann framhjá Tönning og í hornið en Hans Viktor les þetta frábærlega og bjargar glæsilega á línu.
Slakur varnarleikur hjá Römer gegn Benedikt Warén í aðdragandanum, alltof auðvelt fyrir gestina.
Slakur varnarleikur hjá Römer gegn Benedikt Warén í aðdragandanum, alltof auðvelt fyrir gestina.
5. mín
Örvar kemst upp að endalínu inn á vítateig KA, reynir fyrirgjöf en hún er þægileg fyrir Tönning í markinu.
4. mín
Stjarnan nær að spila sig í gegnum pressu KA en Birgir og Bjarni ná í sameiningu að stöðva Hauk inn á vítateig KA.
3. mín
Dauðafæri
Guðjón Ernir með frábæra fyrirgjöf á fjærstöngina, þar er Ásgeir í dauðafæri en skalli hans fer beint á Árna í markinu sem handsamar boltann.
2. mín
Stjarnan
Árni
Þorri - Samúel - Sindri - Örvar
Alex - Kjartan (djúpur) - Jóhann
Haukur - Emil - Benó
Þorri - Samúel - Sindri - Örvar
Alex - Kjartan (djúpur) - Jóhann
Haukur - Emil - Benó
1. mín
KA
Tönning
Guðjón - Hans - Ívar - Birgir
Marcel (djúpur) - Bjarni
Jakob - Jóan - Grímsi
Ásgeir
Eða eitthvað í áttina að þessu.
Guðjón - Hans - Ívar - Birgir
Marcel (djúpur) - Bjarni
Jakob - Jóan - Grímsi
Ásgeir
Eða eitthvað í áttina að þessu.
Fyrir leik
Liðin mætt inn á og þetta fer að bresta á. KA spilar í gulum treyjum og bláum stuttbuxum, Stjarnan er í bláum treyjum og hvítum stuttbuxum.
Hrós á KA fyrir nettar upphitunarpeysur!
Hrós á KA fyrir nettar upphitunarpeysur!
Fyrir leik
Svokallaður 50/50 leikur samkvæmt stuðlunum hjá Epic. Það er mikil lykt af jafntefli hér í dag en þessi lið gerðu einmitt 1-1 jafntefli hér á síðustu leiktíð. Á Epic er stuðullinn á X 3.90.
Fyrir leik
Viðar og Stjörnumennirnir þrír meiddir
Það sem ég heyri er að Viðar Örn Kjartansson hjá KA og þeir Guðmundur Kristjánsson, Örvar Eggertsson og Daníel Finns séu ekki með vegna meiðsla.
Fyrir leik
Sturlaðar aðstæður
Það eru geggjaðar aðstæður til fótboltaiðkunar á Greifavellinum, það er búið að rigna og sú gula skín líka skært. Völlurinn ætti því að vera rennandi blautur og í toppstandi fyrir flottan fótboltaleik.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá 1-2 útisigrinum gegn Fram á fimmtudag. Rodri og Hrannar Björn taka sér sæti á bekknum og inn í þeirra stað koma þeir Guðjón Ernir og hetjan úr síðasta leik, Jóan Símun. William Tönning er áfram í markinu en athygli vekur að Viðar Örn Kjartansson er ekki í hópnum. Inn í hópinn kemur Sigurður Nói Jóhannsson sem fæddur er árið 2010.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn KR á fimmtudagskvöld. Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði liðsins, er ekki í hópnum vegna meiðsla. Þeir Örvar Eggertsson og Daníel Finns Matthíasson eru heldur ekki með. Inn í liðið koma þeir Kjartan Már Kjartansson, sem var í banni í síðasta leik, Haukur Örn Brink og Jóhann Árni Gunnarsson. Guðmundur Baldvin Nökkvason og Sigurður Gunnar Jónsson koma inn í hópinn frá síðasta leik.

Viðtölin eftir síðasta leik
Fyrir leik
Menn tæpir fyrir leikinn
Þeir Rodri og Hrannar Björn Steingrímsson fóru af velli vegna meiðsla gegn Fram. Birgir Baldvinsson fór þá snemma af velli í seinni hálfleik. Það verður fróðlegt að sjá hvort þeir verði allir klárir í leikinn í dag. KA var þá án Stubbs, Steinþórs Más Auðunssonar aðalmarkmanns, gegn Fram. William Tönning stóð vaktina í markinu og stóð sig ágætlega.
Stjarnan endurheimtir Kjartan Má Kjartansson úr leikbanni en allar líkur á því að fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson verði ekki með en hann þurfti að fara snemma af velli gegn KR. Guðmundur Baldvin Nökkvason var ekki með gegn KR vegna veikinda og gæti spilað í dag.

Staðan í deildinni
Það eru tvö stig á milli liðanna eftir níu umferðir, Stjarnan er með þrettán stig í 5. sæti og KA er í 8. sæti með ellefu stig. KA hefur unnið tvo leiki í röð, 1-0 heimasigur gegn Aftureldingu og svo 1-2 útisigur gegn Fram á fimmtudaginn.
Stjarnan vann 4-2 heimasigur á KR á fimmtudaginn eftir að hafa þar á undan tapað 3-1 á Ísafirði gegn Vestra.
Jóan Símun tryggði KA öll stigin með marki undir lokin gegn Fram
Stjarnan vann 4-2 heimasigur á KR á fimmtudaginn eftir að hafa þar á undan tapað 3-1 á Ísafirði gegn Vestra.

Jóan Símun tryggði KA öll stigin með marki undir lokin gegn Fram
Fyrir leik
Dómarateymið
Elías Ingi Árnason er með flautuna og í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Guðmundur Ingi Bjarnason og Eðvarð Eðvarðsson. Sveinn Arnarsson er svo fjórði dómari.
Bragi Bergmann er eftirlitsmaður KSÍ.
Elías Ingi
Bragi Bergmann er eftirlitsmaður KSÍ.

Elías Ingi
Fyrir leik
Einar Jóns spáir jafntefli
Handboltaþjálfarinn Einar Jónsson er spámaður umferðarinnar í Bestu deildinni. Hann spáir jafntefli í þessum leik.
KA 1 - 1 Stjarnan
Þessi deild er náttúrulega að spilast ótrúlega, það vinna fá lið tvo í röð. Spurning hvort Stjörnumenn nái 50+ heppnaðar sendingar í þessum leik?
Ég sá Norðanmenn vinna mína menn í Dal Draumanna í síðustu umferð. Þeir heilluðu mig ekkert alltof mikið en fundu leið til að fara með stiginn þrjú. Hallgrímur byrjaður að snúa við dæminu hjá KA. Jölli mætir og virðir punktinn frá fyrstu mínútu, kemst yfir í fyrri hálfleik og pönkast aðeins í Hallgrími á leið til búningsherbergja.
Viðar Kjartansson sem skuldar mörk jafnar á 82. mín, 1-1.

12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Þorri Mar Þórisson

6. Sindri Þór Ingimarsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
('81)

10. Samúel Kári Friðjónsson
22. Emil Atlason (f)
('92)

23. Benedikt V. Warén
('69)

29. Alex Þór Hauksson

30. Kjartan Már Kjartansson
32. Örvar Logi Örvarsson
37. Haukur Örn Brink
('81)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
11. Adolf Daði Birgisson
14. Jón Hrafn Barkarson
('81)

18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
('81)

24. Sigurður Gunnar Jónsson
28. Baldur Logi Guðlaugsson
('69)

49. Aron Freyr Heimisson
99. Andri Rúnar Bjarnason
('92)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Rajko Stanisic
Þór Sigurðsson
Egill Atlason
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Aleksandar Cvetic
Gul spjöld:
Þorri Mar Þórisson ('64)
Rauð spjöld:
Alex Þór Hauksson ('38)