SKÝRSLAN: Markalaust jafntefli á Kaplakrikavelli
Hvað réði úrslitum?
Þessi leikur fer seint í sögubækurnar og ég hreinlega vorkenni leikgreinendum að þurfa að sitja í gegnum þennan leik aftur. 0-0 var nokkurn veginn sanngjarnt, þó að FH hefði mögulega geta laumað inn einu.
Bestu leikmenn
1. Úlfur Ágúst Björnsson
Hann var hættulegasti leikmaðurinn í leiknum og ef einhver hefði geta skorað, þá var það hann.
2. Axel Óskar Andrésson
Skallar alla bolta frá og steig ekki feilspor. Leikur sem hentaði honum vel.
Atvikið
Ekkert sem kemur upp í hugann í fljótu bragði. Mögulega þegar Elmar Cogic féll við í teignum og vildi fá víti. Hefði geta opnað leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að FH heldur sér í 10. sæti Bestu deildar en Afturelding í því ellefta.
Vondur dagur
Vondur dagur fer á áhorfendur leiksins. Þetta var ekki mikil skemmtun. Það var mikið stoppað, boltinn mikið úr leik og margar misheppnaðar sendingar.
Dómarinn - 8
Fín frammistaða hjá Vilhjálmi Alvari.



