SKÝRSLAN: Baráttuglaðir Blikar unnu ósannfærandi Víkinga
Hvað réði úrslitum?
Eldgamla góða „þeir vildu þetta meira“. Mér fannst Blikarnir ofan á í baráttunni í dag sem skilaði sér. Orkan var mjög spes í Víkingsliðinu. Fyrri hálfleikurinn var sérstaklega lélegur hjá Víkingum, þeir voru ekki að tengja saman sendingar og fara illa með ágætar stöður. Víkingarnir voru mjög ósannfærandi í dag.
Bestu leikmenn
1. Viktor Örn Margeirsson
Var stórkostlegur í hjarta varnarinnar. Skoraði eitt mark og á einn sprett til baka þegar Valdimar er nánast sloppinn einn í gegn. Frábær í dag frá A til Ö. Gaman líka að sjá hann spila með Antoni Loga í hafsentnum.
2. Tobias Thomsen
Skorar tvö og leggur upp eitt. Gæti þess vegna verið maður leiksins og umferðarinnar. Frábær í dag og hefur verið gífurlega mikilvægur fyrir þetta Blikalið í sumar. Klárlega ein af kaupum tímabilsins.
Atvikið
Þriðja markið hjá Blikum. Það svona gerir endanlega út um leikinn. Spurning líka hvort það hafi verið brotið á Gunnari Vatnhamar í aðdragandanum. Mér fannst það við fyrstu sín og svo vildu Víkingar líka rangstöðu. En þriðja mark Blika fór með leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru áfram á toppnum með 20 stig en Blikar minnka bilið í 1 stig og eru andandi ofan í hálsmálinu á þeim.
Vondur dagur
Gylfi Þór Sigurðsson átti alls ekki góðan leik í dag og sást varla í leik Víkinga. Maður gerir ráð fyrir svo miklu meira en þetta frá leikmanni eins og Gylfa í dag. Hann fær þetta frá mér þótt að aðrir Víkingar koma einnig sterklega til greina.
Dómarinn - 7
Mér fannst þetta heilt yfir vel dæmdur leikur hjá Ívari en það eru tvö atvik sem eru spurningarmerki. Ingvar fer út á miðjan völl og brýtur á Viktori Karl og fær gult. Það er spurning hvort það hefði átt að vera rautt. Svo var það þriðja mark Blika þar sem mér sýndist vera brotið á Gunnari Vatnhamar í aðdragandanum. Einnig vildu Víkingar fá rangstöðu dæmda.




