SKÝRSLAN: Ef ekki rautt og ef annað rautt?
Hvað réði úrslitum?
Einfaldast að segja að rauða spjaldið í fyrri hálfleik hafi ráðið úrslitum, Stjarnan var með algjör tök á leiknum og hefði ef eitthvað er átt að vera með meira en eins marks forskot á þeim tímapunkti. Eftir spjaldið þrýstir KA liði Stjörnunnar alveg niður það sem eftir lifir leiks og KA átti meira en skilið að jafna þennan leik. Svo er hægt að spyrja mikið af ef og hefði spurningum.
Bestu leikmenn
1. Sindri Þór Ingimarsson
Byrja á því að taka fram að það var erfitt að velja í þessi box. Sindri þótti mér virkilega góður í þessum leik, öruggur í sínum aðgerðum og ekkert vesen á honum þó að KA hafi verið að þrýsta vel á gestina í 50 mínútur af þessum leik.
2. Árni Snær Ólafsson
Mér fannst Árni virkilega góður í dag, varði einu sinni meistaralega skalla frá Grímsa. Það er hægt að setja spurningarmerki við hann í jöfnunarmarkinu, en fannst eðlilegt að Árni færi út í þann bolta. Ekki verið neitt sérstaklega hrifinn af Árna í upphafi móts en fannst hann góður í dag. Guðjón Ernir, Benedikt Warén og Marcel Römer fá shout.
Atvikið
Hendi, víti og rautt - Stjarnan með níu menn eftir og KA á vítapunktinum til að jafna. Hálftími þá eftir af leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
KA hefur fengið átta stig úr síðustu fjórum leikjum, algjör breyting á spilamennsku liðsins eftir erfiða byrjun. KA er með sjö stigum meira núna en á sama tímapunkti í fyrra. Stjarnan er með tveimur stigum minna en á sama tíma í fyrra, en ef horft er í fyrri hálfleikinn gegn mjög svo massífu KA liði þá eru mjög jákvæð teikn á lofti í Garðabænum.
Vondur dagur
Alex Þór og Elías Ingi koma upp í hugann hér. Alex fær að mínu ósanngjarnt rautt spjald, svo við förum bara í næsta box þar sem verður fjallað um vin fyrirliða KA.
Dómarinn - 3
Missir af skoti sem fer í hönd varnarmanns inn á vítateig þegar boltinn er á leið að marki, Samúel kannski klókur að benda sjálfur strax á höfuðið á sér. Fyrir mitt leyti er svo mjög grimmt að reka Alex af velli út frá mínu sjónarhorni í blaðamannaaðstöðu KA, og ekki hjálpaði endursýningin mikið. Það kom mér á óvart að rauða fór á loft eftir svona langan umhugsunarfrest. Eflaust ekki góð tilfinning í maganum á Ella eftir þennan leik.




