Leik lokið!
Markalaust jafntefli niðurstaðan
90. mín
+6 Arnór Gauti með annað langt innkast sem Aron Elí skallar beint á Rosenörn.
90. mín
+5 Skallatennis inni á teignum eftir langt innkast frá Arnóri Gauta en gestirnir ná ekki að skapa sér færi.
90. mín
Gult spjald
Arngrímur Bjartur Guðmundsson
+390. mín
Uppbótartíminn er átta mínútur.
89. mín
Aukaspyrnan er fín í nærhornið en Jökull sér við honum.
88. mín
Kjartan Kári er að stilla sér upp fyrir aukaspyrnu.
87. mín
InnArnór Gauti Ragnarsson
ÚtElmar Kári Enesson Cogic
84. mín
Gunnar Oddur Hafliðason kemur núna inn á fyrir AD2 Bryngeir Valdimarsson, sem þarf að víkja vegna meiðsla.
82. mín
InnÍsak Óli Ólafsson
ÚtJóhann Ægir Arnarsson
82. mín
InnBragi Karl Bjarkason
ÚtDagur Örn Fjeldsted
82. mín
InnGrétar Snær Gunnarsson
ÚtTómas Orri Róbertsson
81. mín
Elmar Cogic dansar með boltann inn á teignum en lætur sig svo detta í baráttu við Jóhann Ægi og vill fá víti! Vilhjálmur Alvar gefur ekkert fyrir það og ekki heldur Jóhann Ægir, sem lætur Elmar heyra það.
74. mín
InnEinar Karl Ingvarsson
ÚtBaldur Kári Helgason
74. mín
InnÞórður Gunnar Hafþórsson
ÚtOliver Sigurjónsson
74. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtAron Jóhannsson
72. mín
Aron Jó með hornspyrnu beint af æfingasvæðinu og boltinn endar hjá Elmari Cogic sem nær skoti á markið en Rosenörn ver frá honum.
71. mín
Bjartur Bjarmi skýtur rétt fyrir utan teig og boltinn fer í horn.
68. mín
Þvílíkt skot!
Kjartan Kári ákveður að þruma boltanum á markið af löngu færi og Jökull þarf alveg að hafa fyrir þessari vörslu!
66. mín
Gult spjald
Björn Daníel Sverrisson
Ekki lengi að næla sér í spjald.63. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtGunnar Bergmann Sigmarsson
63. mín
InnBjörn Daníel Sverrisson
ÚtSigurður Bjartur Hallsson
Ekki amalegt að fá Björn Daníel inn á.
62. mín
Nú leggst Gunnar Bergmann aftur og hann hlýtur einfaldlega að þurfa skiptingu. Sigurpáll Melberg liggur einnig eftir.
60. mín
Leikurinn er stoppaður, vegna þess að Gunnar Bergmann liggur eftir og fær aðhlynningu.
58. mín
Sigurður Bjartur á góðan sprett upp kantinn og gefur fyrir en aldrei svo vant, skallar Axel Óskar frá.
54. mín
Fyrsta gula spjaldið á loft
Bjartur Bjarmi Barkarson
50. mín
Arngrímur þræðir boltann inn á teiginn, þar sem Tómas Orri stendur. Tómas nær hins vegar sáralitlum krafti í skotið.
47. mín
Jökull Andrésson liggur og fær aðhlynningu.
46. mín
Jæja þetta er farið af stað á ný!
45. mín
Um að gera að nota hálfleikinn í að horfa á þetta magnaða myndband
Sá fagurblái er mættur ????
— FHingar (@fhingar) June 1, 2025
Í ár stöndum við saman með Gleym mér ei styrktarfélag!
Lestur: Ebba Katrín Finnsdóttir
Lag: Friðrik Dór pic.twitter.com/wdI4RXdtPv
45. mín
Vilhjálmur Alvar flautar til hálfleiks. Það verður að segjast, að þessi fyrri hálfleikur er einhver leiðinlegasti fyrri hálfleikur tímabilsins.
45. mín
Hendi?
Arngrímur á sendingu inn á teiginn á Úlf, sem reynir að koma boltanum á markið en hann fer í Axel Óskar og FH-ingar vilja fá dæmda hendi á hann!
43. mín
Benjamin Stokke sækir aukaspyrnu á fínum stað. Aron tekur spyrnuna en hún fer beint á Rosenörn.
37. mín
Það er voða lítið til þess að fjalla um í þessum leik. Það er nákvæmlega ekki neitt að gerast á Kaplakrikavelli.
29. mín
Tómas Orri lætur vaða á markið rétt fyrir utan teig en boltann fer beint á Jökul.
27. mín
Þessi leikur hefur verið rosalega tíðindalítill hingað til.
23. mín
Sigurður Bjartur sækir aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Kjartan Kári mun setja þennan bolta fyrir.
18. mín
Álitleg staða
Úlfur rennir boltanum til hægri á Dag sem reynir að koma boltanum á markið en Aron Elí nær að komast fyrir boltann. Dagur Fjeldsted er oft á tíðum með óþarflega mikið pláss út á hægri væng.
13. mín
Það er áhugavert að skoða leikskipulag FH-inga. Þeir eru í 4-2-3-1 og Úlfur Ágúst er fyrir aftan Sigurð Bjart í þeirri uppstillingu og fær mikið frjálsræði í því hlutverki.
12. mín
FH-ingar sækja hart að marki Aftureldingar og nú er það Baldur Kári sem á skot en það fer framhjá.
11. mín
Þarna þarf Sigurður Bjartur að gera betur!
Úlfur Ágúst þeytist upp kantinn og teiknar frábæran bolta inn á teiginn en Sigurður Bjartur missir af honum.
6. mín
Gott færi!
Kjartan Kári á fína fyrirgjöf sem vörn Aftureldingar nær að bægja frá en boltinn dettur fyrir Úlf, sem á svo gott skot en Jökull ver.
4. mín
Fín tilraun!
Elmar Kári á skot vel fyrir utan teig sem fer rétt framhjá markinu.
3. mín
Úlfur Ágúst vinnur boltann vel á miðsvæðinu. Sendir hann út í breiddina á Dag Fjeldsted sem er með allt pláss í heiminum en Vilhjálmur Alvar dæmir svo peysutog á Úlf, þegar Dagur er að sleppa í gegn.
1. mín
Vilhjálmur Alvar flautar leikinn í gang! Gestirnir hefja leik.
Fyrir leik
FHingar hafa verið ansi öflugir í síðustu tveimur heimaleikjum og unnið sannfærandi sigra á bæði Val og Breiðablik. Grunar að leikstíll Aftureldingar henti FHingum ágætlega á grasinu í Kaplakrika og því eflaust margir sem horfa í FH sigur á stuðlinum 1.72.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin!
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá leiknum í Eyjum. Birkir Valur Jónsson, Björn Daníel Sverrisson og Grétar Snær Gunnarsson setjast á bekkinn. Inn í liðið koma Arngrímur Bjartur Guðmundsson, Dagur Örn Fjeldsted og Jóhann Ægir Arnarsson.
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir einungis eina breytingu á sínu liði. Aron Jóhannsson kemur aftur inn í liðið fyrir Sævar Atla Hugason.
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir einungis eina breytingu á sínu liði. Aron Jóhannsson kemur aftur inn í liðið fyrir Sævar Atla Hugason.
Fyrir leik
Góðgerðartreyjan frumsýnd!
Hinn árlegi góðgerðarleikur FH-inga mun fara fram í kvöld. Góðgerðartreyjan verður frumsýnd og verður spennandi að sjá hana.
Fyrir leik
Veisla í bestu í dag!
Það eru margir leikir á dagskrá í Bestu deild karla í dag. Sannkölluð veisla.
14:00 KR-Vestri (AVIS völlurinn)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
18:00 ÍA-ÍBV (ELKEM völlurinn)
18:00 FH-Afturelding (Kaplakrikavöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur R. (Kópavogsvöllur)

14:00 KR-Vestri (AVIS völlurinn)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
18:00 ÍA-ÍBV (ELKEM völlurinn)
18:00 FH-Afturelding (Kaplakrikavöllur)
19:15 Breiðablik-Víkingur R. (Kópavogsvöllur)

Fyrir leik
Nýliðarnir
Nýliðarnir úr Mosfellsbæ sitja í 11. sæti Bestu deildarinnar með jafnmörg stig og FH. Þeir geta einnig slitið sig frá botninum með sigri í dag. Hins vegar hafa þeir tapað seinustu tveimur leikjum gegn KA og Val. 

Fyrir leik
FH
FH situr í 10. sæti Bestu deildar karla með 10 stig og hafa fagnað góðu gengi á heimavelli í byrjun móts en þeir hafa ekki enn tapað í Kaplakrika. Þeir töpuðu fyrir ÍBV í Vestmannnaeyjum í síðustu umferð en þeir geta rifið sig upp í efra hluta deildarinnar með sigri í dag. 

Fyrir leik
Verið velkomin!
Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá viðureign FH gegn Aftureldingu á Kaplakrikavelli í kvöld! 





Takk fyrir samfylgdina. Viðtöl og skýrsla væntanleg.